föstudagur, 16. október 2015

Fundargerðir sem skipta máli á þessum tímapunkti.

03.09.2012 11:11

Endurrit af upptöku heima


Jæja þá er ég kominn og að þessu sinni með fræðslufund sem þú hefur beðið okkur um og spurning hvar eigum við að byrja? Fortíð nútíð framtíð? Þú vilt vita um afleiðingar nýju orkunnar á heiminn sem við settum á en hún nær í gegn um lofthjúp andrúmsloft sjó og vötn og hefur gerst áður þótt það sé ekki skrifað en við getum byrjað á árum Krists og horft yfir Galileuvatn og fiskadauða þar.

Þetta eru stór skref sem við erum að taka og þurfum að gera en því miður vitið þið aðeins um hluta þessara afleiðinga sem eins og ég sagði hafa gerst áður þótt í ykkar sögu sé ekki viska um það en þau bókfell eru týnd.

Ástæðan fyrir þessu er að æðri meistarar eru að færa sig nær mannfólkinu til undirbúnings þess sem koma skal og ekki útilokað að einhverjir af meistunum verði sýnilegir þeim ljósberum sem til þess hafa verið valdir af þeim víða um heim en aðeins örfáir hafa þau lykklavöld að ljósinu eins og þú í ákveðnum tilgangi sem læknir og kennari enda varst þú það áður.

Þið megið búast við fleiri óvæntum hlutum tengdum þessum orkubreytingum en ekki er það vilji okkar að deyða neinn en þetta var óumflýjanlegt til að flýta komu þeirra nær mannfólkinu og munu þeir stýra því sjálfir tengdir ljósberunum og því sem koma skal en mannkærleikur er stærsti þáttur þessarra breytinga. Þér hefur verið sýndar ýmsar myndir úr fortíðinni þar á meðal mannveran í hellinum á bekknum í Jerusalem en það var gert til að kveikja upp gamlar minningar sem greyptar eru í sálina.

Þinn tilgangur er einnig að sinna sálum í jarðvistinni sem urðu eftir og vísa þeim leiðina í ljósið eftir að við höfum samþykkt slíkt og lykklana hefur þú og þess vegna á fundum hjá þér sækja þessar sálir að þér til að leita hjálpar.

þeirra hafa beðið lengi eftir slíkri aðstoð sem nú hefur ræst.

Þú munt síðan halda þessu starfi áfram þegar jarðvistinni lýkur og ná háum aldri enda mikið starf framundan sem þér er ætlað að sinna.

Þessi tól og tæki fékkst þú í Agra þar sem þú sinntir okkar fundarboði og við þurftum hreinar sálir til samvinnu við okkur en þessu fylgir mikil ábyrgð og við treystum þér til þessa verks og færð til þess ljós og styrk okkar.

Þeir aðilar sem við höfum valið sem ljósbera annarra í þeirri uppvakningu sem munu verða á næstunni munu allir fá skilaboð og tengingar þegar tíminn er réttur en þeir verða leiðtogar hinna í uppvakningunni. Egoistar rúmast ekki innan þess kjarna heldur þeir sem eru hjartahreinir. 13 janúar Þið munið sjá nýtt tákn á himni fljótlega en það verður öllum sýnilegt þegar nær dregur

Endurrit af fræðslufundi fyrir ljósberana 14 janúar.

Beðið var sérstaklega um fræðslu um tilgang okkar hér í jarðvistinni tengdri lífinu þeirra hinu meginn.

Sálirnar hafa allar heimild til þess að fara aftur í jarðvistina telji þær að einhverju hafi verið ábótavant í þeirra lífi sem þurfi að klára en það verður þó aldrei á meðan einhverjir ættingjar eru í jarðvistinni en ekki er ólíklegt að þið hittuð einhvern sem þið teljið ykkur kannst við en getið ekki staðsett það nánar.

þú spyrð um nýlegan fund fornleyfafræðinga í Jerusalem á beinagrind sem talin er svo gömul að hugsanlega þurfi að skrifa sögu mannkyns upp á nýtt. Ég er ekki með þær upplýsingar haldbærar en saga ykkar er nokkuð vel skrifuð með nokkrum vanköntum þó og hin biblíulega saga er mjög mislit og ekki er allt rétt sem þar er skrifað frá upphafi enda voru skrásetjarar að fletta upp í eigin minni við það. Þetta er þó allt tengt tilfinninga þroska sem sálin leitar eftir og metur hvenær réttar aðstæður eru til að koma. Tilgangur þessa eilífa lífs sálar er að afla reynslu þroska á milli alda.

Það er ekki við okkur að sakast ef líf fer sviplega heldur aðstæðum hverju sinni en alltaf er tekið á móti öllum þeim sem hingað koma og þeir vakna ekki upp einir á grasbala umkringdir blómum heldur er tekið á móti þeim með kærleik og friði um leið og þau koma og er svo um alla og það sama á við fóstur þau alast upp hjá okkur studd nánustu ættingjum.

Þó þurfa þau sem aðrir að undirgangast það erfiða verk að horfast í augu við eins nakinn sannleika og hann er vegna misgjörða sinna í jarðvistinni. Þá fyrst getur það haldið áfram ferðinni í ljósið og hljóta fræðslu og leiðbeiningar en síðar geta þau valið um að koma aftur. Aðstæður geta breyst og slys gerast sem við getum ekki komið í veg fyrir.

Við neytum heldur ekki fastrar fæðu heldur nýtum orku sem hér er til staðar og okkur fullnægjandi. Við höfum mikla áhyggjur af umgengni ykkar við móður náttúru sem komið hefur fram áður en það verður að vernda hana vel annars fer illa.

Það verða áfram miklar hamfarir á hnettinum en þar er jörðin að minna á sig með jarðskjálftum en boranir ykkar víða um heim hafa komið af stað miklu ójafnvægi í náttúrunni og skilið eftir gríðarlega hella þar sem áður var olía en sem betur fer eruð þið að komast með tækni ykkar inn á nýjar brautir sjálfbærrar þróunnar en það er bara ekki nóg heldur verðið þið að virða náttúruna. Eiturefni eru víða sem þið hafið framleitt og skilið eftir en þau eyðast ekki af sjálfu sér

Við höfum ekki bein afskipti af hinum Cosmiska heimi en ég hef áður sagt frá miklum breytingum náttúrunnar og orkunnar en fuglar eru afar viðkvæmir fyrir þessu en við fylgjumst með en þetta verður að ske eigið þið að komast af. Við sjáum ekki að þetta muni valda skaða en við þessu mátti búast en þetta er ekki af okkar völdum.

Það eiga eftir að vera mikil átök á hafsbotnum víða um heim eldfjöll munu spúa eldi og hafið á eftir að ganga á land viða en sjávarstaða fer hækkandi sem aftur leiðir til enn stærri vandamála fyrir sum lönd.

Varðandi spurningu þína að þá er það ekki frekja að spyrja hvort hægt sé að setja fram óskir til okkar um ákveðna leiðbeinendur á sviði miðlunar þar sem þeir stýra samskiptum á fundum er til að svara að við tökum vel í slíkt en þá er margs að gæta. Orkan þarf að passa sem farvegurinn hefur og því orkusviði sem stjórnandinn hefur og passi þetta saman og hann sé samþykkur þá er þetta ekki fyrirstaða.

Þú spyrð um veikindi barna. Því er til að svara að alvarleg veikindi barna eru ekki af okkar völdum heldur genagallar viðkvæms líkama í upphafi sem getur allt frá unga aldri og löngu fyrir ætluð lok í jarðvistinni komið yfir til okkar og við því er ekkert að gera. Það er ekki skrifað í sálina að viðkomandi eigi að hafa stutta viðdvöl í jarðvistinni heldur lífshlaupið almennt en mannslíkaminn er ófullkominn að því leiti. Ljósberarnir þurfa ekki að óttast að einhver komi að í slíkum miðlunar samböndunum sem ekki hefur heilindi til starfans frá okkur enda slíkt óhugsandi.

Þú spyrð um Mayja indiánana og Nostradamus sem þér var sýndar myndir af þá var þetta hluti af stærri heild sem er að koma til þín en iniánarnir voru sérstakir mjög hlédrægir vel gefnir en þeir voru allir á hærri tíðnisviði og vitund en mannfólkið í dag og gátu því tekið við þekkingu og boðum frá okkur án notkunnar tækja sem þeir þó smíðuðu með okkar tilsögn til þess að hafa eitthvað fyrir stafni og til að vinna þeirra skilaði frekari trúverðuleika að þeim gengnum.

Hvað þig varðar þá tekur þú með þér í þessa jarðvist sem áður hefur verið gert og heldur áfram á þeirri þróunarbraut með nýjum upplifunum til viðbótar því sem þú áður gerðir og á einhverjum staðartíma finnast þér hlutnirnir kunnuglegir en áttar þig ekki frekar á þeim strax.

Hvað almanakið varðar þá táknar það ekkert sérstakt að það skuli enda í árslok 2012 og annað tekur við það sama átti við Nostradamus hann hafði alla eiginleika miðlunar og gat því með okkar hjálp og þjálfun skráð niður til seinni tíma skoðunnar.

Þetta endurspeglar ekki neitt sérstakt en þetta má segja að hafi ekki verið skrifað lengra þar sem þess gerðist ekki þörf. Megintilgangur var að upplýsa þig um lifnaðarhætti og forsögu þessara aðila á þeim tíma til notkunar síðar á þínum ferli.

Sú tortryggni þjóða í milli hver sé öflugastur hefur ekkert með daglegt líf fólks að gera heldur eru þetta egoistar og sjálfsdýrkendur í öllu sínu veldi engum til góðs.

Mannfólkið verður að fara að taka höndum saman um að mynda frið og kærleik sín í milli eigi jörðin ekki að líða undir lok. Persónulegar upplýsingar fékk ég um núverandi störf foreldra minna sem er fyrir mig einan.

Viðbót 20 september 2015

Nú fer í hönd sá árstími þegar allir sérfræðingar með eða án orku spretta fram og auglýsa þjónustu sína við en horfa um leið í tóma budduna sina og hugleiða hvað get ég plokkað marga í dag en ekki hvað get ég látið gott af mér leiða?

Svarið er að hver er sinnar gæfusmiður og stendur andspænis okkur á þeim tima þegar hingað er komið en í jarðvistinni er þetta líklega kallað vinsældir þótt þessir eiginleikar séu vandmeðfarnir og ekki til skemmtunnar.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.