laugardagur, 24. mars 2018

Friður sé með yður öllum hvar sem þið búið á jarðkringlunni.

Okkar maður er mjög sáttur við að lesendur þessarar síðu minnar eru að nálgast 52.000 og dreyfist hún víða um heimin vegna þýðingar prógrams Google sem er á henni ( Välj Språk ).

Við erum ekki með neitt sérstakt á prjónunum þessa páskahelgi annað en að óska öllum friðar á jörðinni en það virðist verða langsótt.

2008 skrifaði okkar maður pistil að trúarbragða stríð yrðu ekki unnin með hefðbundnum vopnum.

Þór að þú stígir í maurabú og færð ærlegan skammt her maurum á fæturnar og víðar um búkinn, og svipað gerist þegar röng vopn eru notuð.

Þá skrifaði hann einnig um byssukúlur í stærstu her-riflana til að fá meiri kraft úr þeim, en hann minntist einnig á íblöndunarefnið isótóba sem sett væri fremst í hleðsluna til að ná öruggum kvlarfullum dauðdaga þess sem fær kúluna í sig.

Gerum okkar allra besta til að styðja ungliðahreifingar í Háskólum USA og herða til muna reglur um skotvopn á heimilum fólks.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 4. mars 2018

Eigi að komast á heimsfriður þurfa USSR og USA að umgangast ?

í Gærkveldi var ég með 3 nema í miðlun, sem ekki hafa enn séð transinn í öllu sínu veldi og ætla þau að passa upp á að allt verði í lagi í kring um mig.

20 min pása og fundur hefst.

Aðal stjórnandi minn kemur fyrstur, og kveðst ætla að stýra fundinum í kvöld þar sem ég sé með 3 nema sem áheyrendur og jafnframt að deila orku til mín og magna transinn í nýjar hæðir sem ég hafi ekki áður farið .

Ég er núna kominn út fyrir gufuhvolf jarðar af ókunnum orsökum, en skýrist fljótt þegar við komum í stjórnstöðina sem ég fékk að heimsækja árið 2009 og er eins og stjórnkerfi í þotum.

Þarna gat ég séð þá sem voru að koma yfir og móttökulið hvers og eins, en hryllingurinn frá Yemen er þyngri en tárum taki þar sem eingöngu börn hafa komið í hópum og eru núna 1. mars orðin 2500, og finna þarf ættingja þeirra hérna megin en fyrst er viðkoma á sjúkrahús þar sem sum höfðu slasast í húsarústum og önnur orðið fyrir byssukúlum.

Við getum ómögulega skilið hvers vegna bandariska þjóðin kaus leiðtoga sem er ekki alveg heill á geðsmunum og telur flesta óvini sína, en okkur sýnist að fjölskylda hans sé að sundrast vegna hneikslismála sem er auðvitað þeirra mál.

Við höfum miklar áhyggjur af Pútin Rússlandsforseta sem er bráðskarpur í herkænsku og nýjustu leikföngin sem hann hefur sýnt er bara brot af því sem sérfræðingar hans hafa fundið upp og framleitt.

Eigi að komast á heimsfriður þurfa USSR og USA að umgangast hvort annað sem jafningja og rétta hjálparhönd þar sem þess er þörf.

Við höfum nú farið vel yfir tímamörk sem ætluð voru í þennan fund og vonum að nemarnir hafi skilið hvernig þetta gerist, og er ekki hættulegt þeim sem text að komast hluta leiðarinnar, en afar fáir þola þrýstingin á þeim sviðum sem okkar maður vinnur á og fundar einn með okkur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.