mánudagur, 7. desember 2015

Hver á hvaða kirkju og hvernig gerðist það.

Formaður kirkjuráðs reifar innihald samninga um eignir kirkjunnar sem er fólksins í landinu öllu, enda eignir hrifsaðar af bændum upp úr aldamótunum sýnist mér, en þá fóru svartstakkar milli bænda að telja þeim trú um að sálu þeirra yrði borgið með því að gefa jarðir sínar til kirkjunnar.

Það verður öllum til blessunnar að Fjárlaganefnd stigi á þessa sjálfrennireið svartstakka sem halda því fram að 18 manna starfslið á Biskupsstofu þurfi til að halda þessu gangandi.

Þvílík fyrra, enda flestir prestmenntaðir með yfir 1.000.000 á mánuði og fyrir hvað? Að vera ritari Biskups sem er orðinn valdalaus gagnvart kirkjuráði hafi slík ofurlaun, er alger fyrra og þess utan er þetta ekki gæsluheimili fyrir uppreisnarseggi innan kirkjunnar eins og er í dag, þau 2 nýjstu úr Mosfellssókn en Selfoss hafði sinn mann þarna inni og fleiri.

Ef Biskup þorir ekki að leggja niður þessi embætti vegna skipulagsbreytinga, þá þarf hann aðstoð við það.

Þegar ég og fleiri mér æðri þjóðfélags þegnar gengum í barnaskóla þá var kennd Kristnifræði, og ég veit ekki til þess að nokkur hafi beðið skaða af því fyrr en nú, að einhverjir galgopar í Borgarráði banna með öllu að farið sé með börn í kirkju til að fræða þau vegna þess að við byrggjum í fjölmenningarsamfélagi?? Síðan hvernær gerðist það?

Þeir sem hingað veljast til að setjast að skulu taka upp okkar siði og venjur, eða vera bara áfram á sínum fyrri stað hafi þeim liðið betur þar.

Látið börnin velja sinn veg í lífinu.
Við eigum ekki börnin þótt við köstum eign okkar á þau eftir fæðingu þá er okkur trúað fyrir uppeldi þeirra og trúmennsku við sálu þeirra og góðar siðvenjur og samfélag við aðra þangað til þau og við uppalendurnir förum aftur til baka úr jarðvistinni.

Það má sameina sóknir og selja kirkjur til hæstbjóðenda í opinberu útborði rétt eins og Danir sem hafa selt um 100 kirkjur, og Bretar yfir 70 á bestu stöðum landsins.

Eigendur þeirra munu breita þeim í heimili fyrir sig og sína en kvaðir eru við söluna að þar verði aldrei opnaðar ölstofur eða skemmtistaðir.

Mér er sagt að ein hafi nú þegar verið seld hjónum á Seyðisfirði sem búa þar og líður vel og svo má vera um fleiri.

Auka þarf bálfarir þar sem jarðnæði í Reykjavík er þrotið, bara til að hylkið fái að rotna í kassa á 3 metra dýpi en þar er ekkert þar sem innra hylkið ásamt sálinni fór með við andlátið.

Kanski er bara rétt að allt þetta jarðnæði sem talað er um í þessum samningi ríkis og kirkju gangi nú aftur til þjóðarinnar og afkomendur þeirra sem misstu í hendur svartstakkanna.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Heilari.

29. desember. 2014. Eldra Efni.
Heilari þarf að skynja ástand sjúklings sem til hans kemur enda erum við oftar en ekki síðustu útverðir hans þegar allt annað hefur verið reynt.

Sjúklingar sem fá sterka beina heilun frá þeim sem við vinnum með, verða þess áskynja í öllum tilvikum hvað sé að gerast í líkama þeirra, þegar þeir finna að unnið sé í fótum þeirra þó enginn sé sjáanlegur, einhver að létta á verkjum og pressu á hryggjaliðum og allt án óþæginda fyrir sjúklinginn.

Ég hef sagt það í öðrum pistli og segi það enn, að þetta verður að vinnast í gegn um bænina til þess að tenging með nægjanlegum styrk komist á.

Fjarheilun er framkvæmd á sama hátt í gegn um bænina en aðeins er nauðsynlegt fyrir mig að hafa nafn sjúklings og heimilisfang en engar aðrar upplýsingar svo sem sjúkdóm.

Sé til mynd af sjúklingi þá er hægt að senda mér hana í tölvupósti ásamt ósk um fyrirbæn, á

E - mail: thorgunnl@gmail.com

en þá prenta ég myndina út, held á henni og tengi mig beint við sjúklinginn með þeim hætti.

100% trúnaður verður að vera milli meðferðaraðila og sjúklings og gildir einnig þótt hjón komi, en þau verða sjálf að ræða það sem skeði kjósi þau svo, en þetta eru skilyrði sem mér voru sett af þeim sem ég vinn með en ég hef bent á þetta í pistlinum Hvað er Transheilun ?

Er nauðsynlegt að bryðja verkjalyf alla vikuna vegna verkja frá vöðvabólgu og annarra stoðkerfisverkja þegar hægt er að losa þetta frá viðkomandi í 1-2 meðferðum og sleppa verkjalyfjunum.

Það sama hef ég unnið lengi með streytu, kvíða og vanlíðan en þá leita ég að orsök þessa eða verksins og sjúklingi fer strax að líða vel og öll spenna hverfur á augabragði, en þó er ég ekki læknir heldur millistykki við lækna í hinu efra.

Engin óþægindi fylgja meðferðinni heldur kemur vellíðan strax. Andleg vandamál höfum við unnið með góðum árangri svo sem óróa í börnum skilgreind með ADHD sem snarbreytast við meðferð og það sama á við um fullorðna.

Mér er tjáð að upphaf svo kallaðar skilgreiningar á ADHD er að eitthvað hafi fari úrskeiðis í fæðingu viðkomandi og sú meðhöndlun orsakað áfallastreytu sem likja má við beyglaða bílfelgu hana þarf að laga og er það gerð með sléttun á dæld árunnar sem verður við þessi fæðingarátök. Þær eru margar mæðurnar sem fengið hafa hjálp með börnin sín og martröðin losuð frá heimilinu.

Sjúklingar með þunglyndi hafa fengið aðstoð en þar hefur ekki alltaf reynst eins góður árangur strax nema að þetta sé á byrjunarstigi og stundum þarf 1-3 meðferðir.

Af hverju er órói í börnum á heimilum sínum og svefninn ruglast og þau eru óró og hún Guðrún Gunnars heilari á Ísafirði hefur ekki átt svo ófá símtölin við mig vegna mæðra sem eru í vandræðum og hefur í öllum tilfellum komist ró á.

Nýi leikskólinn þeirra fór ekki varhluta af þessu en með smá samningum við þá sem voru valdir að þessu komst ró á vinnustað barnanna og svo hefur verið um fleiri en ég fer ekki beint sjálfur heldur innra hylkið í mér sem skreppur og hreinsar til með aðstoðarfólki að handan.

Trúarskoðun


Það eru ekki nein skilyrði frá þeim sem ég vinn með né aðrir meðferðaraðilar að sjúklingur þurfi að vera trúaður til þess að fá hjálp því að það skref að biðja þá um aðstoð er fullkomnlega nægjanlegt.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Morgunfréttir dagsins.

Hjóðuðu upp á hvorki meira né minna að einhver yfirmaður leyniþjónustu hafi stigið fram og upplýst það sem ég var að ræða um og setti inn á síðuna: Viðvaranir ?.

Það sem mér var sýnt af minu fólki hverjir raunverulega fjármagna hryðjuverk á Vesturlöndum en það eru Kalifarnir í Arabíu og Saudi Arabar sem nota þriðja aðila við að koma fénu áfram og borga rekstur á yfir 600 moskum víðs vegar um Evrópu sem nú verður tekið fyrir.

Þetta eru einhverjar bestu fréttir sem ég hef fengið staðfestar á því sem sent er til min og svo litla stúlkan hún Vilhelmina en ég hélt áfram að hlusta á þessa 9 ára dívu sýgja og ráðlegg öllum að fara inn og hlusta því að hún bræðir allan klaka af frosnum hjörtum.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.