föstudagur, 18. desember 2020

Ferðin yfir til okkar hinummegin við tjaldið.

Þann þri., 31. des. 2019, 18:21 þór Gunnlaugsson skrifaði :

Sat i þungum þönkum í gær og hugsaði um mannvonsku í heiminum í dag, um leið og ég leitaði að fundi með þeim vegna margra fyrirspurna sem prestar vilja ekki svara, enda þekking á þeim sviðum lítil.

Í morgun á meðan ég drakk kaffi úr bollanum mínum góða komu glefsur að handan í miklum mæli og bauð ég þeim upp á að fara í stólinn minn og setja á fund.

Góðan dag kæri vinur og hugljúfar óskir okkar til þeirra sem eiga um sárt að binda.

Fundurinn sem þú ert búinn að leita að, honum var eytt af fyrri vörslumanni síðunnar áður en þú komst henni i öruggar hendur öðlings í Sviþjóð.

þess vegna viljum við senda efnið aftur sem þú leitaðir að með logandi ljósi um hvað muni ské eftir að fólk yfirgefur jarðvistina og er óttaslegið þess vegna.

Minnugir bókarinnar að austan um viðtöl við framliðna og svör þeirra þar sem þér var réttilega gróflega misboðið, enda tómt rugl og afbökun á sannleikanum, og símtal þitt við útgefandann styrkti okkur um að val á þér sem talsmanni almættisins var rétt.

Ferðin yfir til okkar.

Sjúklingar sem liggja banaleguna eru oftast í bland hrædd, en um leið ákveðinn léttir við að losna við kvalir i eyðilögðum líkama.

Sólahring að ykkar tímatali komum við á tengingu við viðkomandi og opnum fyrir rifu ofan höfðalags þar sem hann/hún sér ættingja sína vera að bíða eftir sér og hressist rétt eins og hann/hún sé að læknast, en þá gefst honum/henni kostur á að ræða við börn sín og maka og það sama á við börn sem hafa verið alvarlega veik en eru ekki i öndunarvél.

Nu förum við með þig aftur í tímann í breska skólann þar sem Judith hélt um öxl þína og sá æðsti bauð þér að koma í heimsókn til okkar, nokkuð sem að aðeins örfair jarðlingar hafa fengið en ekki er hægt að biðja um að fá að koma.

Við fórum með um litlu þorpin, og þú skoðaðir litlu igloo húsin með litlum rifum á en engri hurð.

Þér þótti þetta skrýtið, en í því liki sem þau eru eins og litlar bláar stjörnur en geta tekið á sig mannsmynd án meltingavegar né talfæra og boðskipti fara um hugsanafluttning okkar í millum og allir þekkja alla ef svo má að orði komast.

Kennari þinn til 37 ára hefur ekki fengið boð fyrr en nú að koma í heimsókn.

Þetta var þvi jafn áhrifamikið fyrir ykkur bæði.

Næst var hvita húsið þaðan sem við öll fáum næringu en enga fasta fæðu, enda engin líffæri til að melta slíkt.

Þetta þótti þér enn merkilegra og henti úr huga þínum bókinni að austan sem þú eyðilagðir eftir lestur 4 blaðsíðna.

Mannvonska i heiminum

Við vorum búnir að koma boðum til þín varðandi stríðsrekstur í heiminum sem leggst þunngt á þig sem við vitum vel af.

Hér áður voru það Afríkulönden Evrópulönd blandast hér inn.

Orsökin fyrir öllum þessum stríðsrekstri má fyrst skoða í innrás í Irak,Iran og Afganistan, en ekkert Vestrænt ríki hafði hagsmuna að gæta nema fyrir þrjá aðila og réttin að glugga í leyniskjöl USA til að finna samnefnara sem er Israel.

Það þurfti að sýna í verki að bakgarður þeirra væri tryggður á meðan þeir væru að koma Palestínumönnum í burtu sem nú er tryggt.

Menn þar á bæ hafa ekkert lært af grimmum ofsóknum í þeirra garð og mun ekki batna til framtiðar litið.

Setning höfuðborgar Israel í Jerusalem.

Bandaríkin hafa fórnað þúsundum hermanna í þessu brolti og ótalinn sá örkumlaði fjöldi sem ráfar um í heimalandi sínu týnt fjölskyldum sínum, enda sumir illa haldnir af PTSD sem þið greinið sem áfallastreytu röskun sem er ekki að okkar mati réttnefni sjúkdómsins.

Þór Gunnlaugsson

____________________________________________________

Þór Gunnlaugsson Heilunar og transmiðill

GESTABÓK - Guestbook.