sunnudagur, 27. október 2019

Við skulum gæta varhug á að lýsa honum sem skælandi barni.

Fékk hugsun að handan um stóran sporðdreka sem hefur sterkar varnir með klóm sínum en ef hann sé borin ofuliði stingur hann sjálfan sig með eiturbroddi og lætur lífið.

Þetta kom eftir að ég hlustaði á fordæmalausar yfirlýsingar forseta Bandarikjanna sem fullyrti að þekktur málaliði og óvinur mannkyns að þeirra mati hafi grátið eins og barn og haft 3 börn sín hjá sér umkringdur í greni sínu og beitti sömu aðferð og sporðdrekinn og sprengt sig og börnin í loft upp frekar en að sæta handtöku.

Við skulum gæta varhug á að lýsa honum sem skælandi barni eins og maðrinn í bláu jakkafötunum gerði slíkt er mikið hættuspil sem þjóðir heims eiga eftir að upplifa á næstunni.

Gangið hægt um gleðinnar dyr.

Þór Gunnlaugsson

____________________________________________________

GESTABÓK - Guestbook.

mánudagur, 21. október 2019

Norður Írland á eftir að loga í óeirðum vegna nýrra laga ?

Fékk orkuskot frá mínu fólki að þeir óskuðu viðtals við mig sem ég að sjálfsögðu veitti nú í kvöld og er hann hér að neðan.

Friður sé með yður.

Við fórum fram á fund við þig og þú veittir okkur áheyrn strax.

Við höfum orðið varir við að sálin þín sé farin að kalla á meiri opnun á okkar svið, en með hvítu hringjunum um augasteina þína sem settir voru á í Agra gerði þér kleyft að sjá allt að þrjár víddir í einu á siðum 1 til 7, en sonurinn er á 3 vídd en himnafaðirinn er sem stendur á þeirri 7.

Mannfólkinu hefur aðeins verið gefin upp 7 stig í víddum en sálin þín veit betur en sviðin eru 10

Það hefur verið ákveðið að opna fyrir þig einan sýn inn á þessar 3 víddir til viðbótar þar sem við vitum að þú munt fara vel með þetta.

8 víddin er inn á trúmennsku og sú 9 er inn á mannvirðingu og sú 10 er alsýn sjáanda og samtenging æðsta borðsins við þig beint, og þann boðskap sem þú sendir heiminum frá okkur um veraldarvefinn og hefur þú sýnt og sannað trúmennsku og staðfestu við okkr störf hérna megin.

Við sáum að þú settir inn aftur skilaboð okkar frá 2009 um heimsfaraldur innfluensu og þótt hún hafi ekki gengið eftir þá að nú sé enn meiri hætta á svinapestinni sem gengur yfir Asiu i augnblikinu og hefur Kína sem dæmi eytt milljónum þeirra og brennt til að koma i veg fyrir að fátæklingar leggist ekki á hræin til átu enda lifshættulegt.

Þetta afbrigði af svínapestinni á eftir að umbreytast og hefst þá smitunin í mannfólkið í febrúar á næsta ári og mun breiðast hratt út og gæti orðið Svarti Dauði nútímns.

Svo viljum við vekja athygli alheimsins frá uppreisn mannfólksins i mörgum löndum bæði í Evrópu og SA Asiu þetta mun smita út frá sér og leiða til mannskaða í átökum við valdstjórnir hvers rikis en fólk hefur fengið nóg af ýmsum ástæðum og gerir uppreisn.

Norður Írland á eftir að loga í óeirðum vegna nýrra laga sem taka gildi nú á miðnætti, um dráp á fósturvísum allt að 28 viku þroska en sálin er löngu komin til fóstursins og gæti lifað í nútíma læknavísindum og þá erum við að tala um 28 viku og lengra komið.

Svona órói í mannfólki leiðir alltaf til mannfalls og engin er ábyrgur.

Þá er mikil hætta á slysi í kjrnorkuframleiðslu Íraks en við sjáum ekki nákvæmlega hvernig þetta muni þróast en látum þig vita i tíma.

Gangið hægt um gleðinnar dyr.

Þór Gunnlaugsson

____________________________________________________

GESTABÓK - Guestbook.

þriðjudagur, 8. október 2019

Hann talar mikið um trúarlega lækningu ?

Bruno Gröning. Heimildarmynd um þennan merka heilara þar sem blindir fengu sýn og aðrir sjúkdómar hurfu, 30 til 50000 manns sóttu hópsamkomur hans og fyrirlestra.

Hann talar mikið um trúarlega lækningu því sjálfur sé hann millistykki og taki við orku sem hann kallar brainstorm en er krists orka frá hvíta húsinu i efra.

Hann er einlægur og sannur i útskýringum um þessa orkutegund sem er ekki allra til móttöku þarf viðkomandi að hafa þessa tengingu meðfædda því hún fæst ekki afhent af þvi að við viljum það.

Strax 2006 i skóla i UK vissi ég af þessari orku og kennarinn minn hún Judith sagði mér að það gæti tekið mig allt að 30 ár að fullkomna hana en þau urðu 5.

Það gekk talsvert á að koma fyrstu prufum á með líflæknum að handan, mér við hlið til að passa upp á heilsu mína en mælingar við mælir sýndu allt að 190/220 i blóðþrysting sem varð eðlilegur á tæpum 3 mín þegar komið var til baka.

Þessi þrýstingur aðlagaðist með komu sjúklinga til mín og fannst eðlilegast að fá þeirra leyfi til að vinna eingöngu í þessu orkusviði, en enginn hér á landi hefði ekki þolað hana og skaðast af henni eins og fólk sem sækist i Kundalini jóga til að opna orkuhúsið i spjaldhryggnum þótt mikil hætta fylgi henni.

Hugsanlega munu fleiri greinar fylgja ofangreindri.

Gangið hægt um gleðinnar dyr.

Þór Gunnlaugsson

____________________________________________________

GESTABÓK - Guestbook.