mánudagur, 4. júní 2018

Ég fékk all sérstaka fyrirspurn úr efra á fundi með þeim í gærkveldi.

Þeir sögðu: Við skiljum ekki þennan fjölda gerviheilara frá mörgum heimshornum bæði héðan og öðrum EES löndum, USA og Spáni, en enginn af þeim hafi tengingar til þeirra.

Þeim finnst það lágkúrulegt að upplýsa fólk um að þeir geti læknað þetta og hitt, en þó séu hendur þeirra straumlausar.

Græðgi var nokkuð sem þeim kom til hugar, þar sem ég væri með sama gjald frá 2007 sem þeir lögðu til, og því hefði ég ekki breytt en á móti kæmi að sumir greiddu aðeins meira þar sem þeir hefðu efni á því.

Svo gæti farið að allir sem ekki hefðu tengingar í efra yrðu straumlausir á næstu dögum og yrðu sjálfum sér til skammar.

Ég sagði þeim mina skoðun á málinu sem væri í þeirra anda, en enginn af þessum sjálfgefnu sérfræðingum settu stafkrók á bláð án þess að greitt væri fyrir slíkt.

Sumir hafa ritstíflu sem við köllum, en hún er af heiðarlegum grunni.

Góðar stundir í hans heilaga nafni.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 3. júní 2018

Lagabreitingar vegna fóstureyðinga.

Útbreiðsla á lagabreitingum vegna fóstureyðinga meðal kaþólskra fer hægt áfram, og sérstaklega á Norður Írlandi en þar skiptir engu máli aldur stúlkubarnsins aldur hennar né hvernig getnaður átti sér stað og sýnir í hnotskurn þann aga sem kirkja íranna er óvægin í dómum sínum.

Þá er rétt að upplýsa þessa fáfróðu menn um, að sæði frá karlmanni sem sýktur er af AIDS eða öðrum arfbera að þá mun það barn sem varð til við sæðisblöndu í heilbrigðri konu aldrei heilbrigt, það mun á lífsleiðinni þurfa að líða fyrir misgjörðir föðurins og á hvern hátt hann smitaðist af smitsjúkdómnum.

Það er ekki við okkur að sakast, eða þær kvalir sem 10-12 ára stúlkubarn þarf að líða við fæðingu fósturs sem hún gengur með, þar sem leghálsinn er of grannur fyrir fæðingu og rífur sköpin í sundur með óbærilegum kvölum þeim sömu og ungar mæður í eyðimörkinni sem gefnar eða seldar hafa verið gömlum mönnum eins og hvert annað leikfang, og sumar lifa blæðingarnar ekki af þar sem engir læknar eru til staðar eða deyfilyf.

Góðar stundir í hans heilaga nafni.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.