fimmtudagur, 30. maí 2019

Hvítu hringirnir utan um augasteinana.

Kona sem var hjá mér í gær var að dáðst að hvitu hringjunum utan um augasteina á báðum augum enn þessu er maður orðin svo vanur að maður kipper sér ekkert upp við þetta lengur.

Fyrir þá sem ekki muna tildrög hringjanna að þá vaknaði ég með þá í Agra í Indlandi eftir viðburðaríka nótt en frúin tók fyrst eftir þessari breytingu augnanna.

Setist í hvíl næsta kvöld og náði ágætis sambandi við minn tengilið í efra og hann tjáði mér að þetta hafi lengi staðið til og alltaf spurning hvort að ég þyldi þá ofan á hækkun spennu í miðtaugakerfinu en þetta hafi gengið mjög vel.

Ég spurði þá um tilgang hringjanna og fékk þau svör að þeir væru til þess að auðvelda mér sýn inn í 2 til 3 víddir í einu og flakka á milli þeirra.

Gleðilegt sumar og síðan fer ég nú í sumarleyfi, nema að einhverjar hamfarir dynji yfir.

Guð blessi ykkur öll og haldið vel hvort um annað.

____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 5. maí 2019

Einhver kvíslaði í eyrun min í gærkveldi ?

Einhver kvíslaði í eyrun min í gærkveldi rétt fyrir svefninn orðin hýbýli vindanna, og með það sama var ég sóttur af hempuklæddum riddurum orðunnar en að þessu sinni eigi að fara fram lokaumferð kennslunar í fullopnun á öllum skynjunum minum og var ég þá staddur í hvíta herbergi reeglunnar sem ég þekkti strax og æðsti meistari sat þar í stúkusæti en pabbi var þarna til hliðar með ritara sinn Gunnlaug Briem.

Ég vr klæddur í hvíta skykkju með loðbryddingum og í fjarska að mér fannst voru karlakórar að syngja þjóðsönginn okkar og var mikið um dýrðir.

Ég hlustaði á orð æðsta meistara stúkunnar en þau eru til min og fara ekki inn a síðuna. Þegar formlegri vixlu var lokið mátti ég ávarpa æðsta ráðið en ég var svo andáttugur yfir öllu þesu tilstandi að ég kom varla upp nokkrum orðum.

Hann kvaðst geta lesið hugsanir minar og þær hafi alltaf verið í anda þess æðsta enda væri ég sendiboði og talsmaður hans hér í jarðvistinni og einhvern timann kæmi að því að ég fengi lærisvein sem mér yrði sendur til að kenna og kom strax í huga mér eitt nafn og fékk ég bros frá þeim öllum.

Sú hugsun kom upp í kollinn á mér á leiðinni út að lokinni vixlunni að fá að hitta fyrrum vinnufélaga sem væru farnir yfir og stunduðu fundi þar.

Þegar ég gekk framhjá 3 stúku var fundi nýlokið þar og fékk þar inngöngu enda búinn að taka vixlu í öllum gráðum Frimúraranna.

Miklir fagnaðarfundir urðu en þeir voru 10 sem voru þarna og kom mér á óvart að þeir væru svona margir.

Af þessu tilefni var mér falið að hjálpa 4 þeirra sem ættu mjög erfitt í efra og var það sjálfsagt mál að gera það.

Bestu kveðjur til stúkubræðra bæði hér á landi og öðrum stöðum sem ég ætti eftir að heimsækja.

____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


fimmtudagur, 2. maí 2019

Maður getur ekki annað en dáðst að æðruleysi mömmunnar.

Eflaust hefur einhverjum vöknað um augun varðandi viðtalið við hjónin með 3 ung börn og móðir þeirra sem er að fara á næstu vikum í það efra úr brjósstakrabba sem er að eyðileggja líkama hennar, og hefur að undanförnu reynt að undirbúa börnin eins vel og þau geta þegar stundin rennur upp.

Í dag er það biðin eftir stundinni, en ekkert er hægt að gera henni til lækninga.

Maður getur ekki annað en dáðst að æðruleysi mömmunnar að undirbúa korn ung börn sín fyrir það sem koma skal og minnka höggið.

Megi almættið styðja hana og styrkja og þessa kjörkuðu fjölsskyldu.

Þór Gunnlaugsson

Betri umgjörð þarf fyrir börn veikra foreldra


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.