fimmtudagur, 15. október 2015

Ég er búin að vera að fylgjast með þinni vinnu

Merkilegur fundur

Ég er búin að vera að fylgjast með þinni vinnu en ég kem langt að en nú var talin kominn timi til að láta þig vita nánar um tengingar þínar en ég kem frá Mesópotamiu, en í þá daga var alveg magnað hvað hægt var að vinna á þeim tímum en síðan fréttum við af þinni vinnu og vinnuaðferðum og fylltumst áhuga þar sem þú í raun vinnur eins og gert var fyrr á öldum. Alexis hét ég á þeim tima.


Þess vegna sendum við hóp sérfræðinga sem koma að eftir því hvaða sjúkdóma þú ert að vinna við að í því sambandi og til þess þurfti að opna fyrir nýjar tengingar á mun hærri tíðni sem við teljum að þú ráðir mjög vel við en tveir læknar eru alltaf viðstaddir bara til að yfirfara þín kerfi við störf.

Við sáum það fyrir okkur að vinnan í kirkjunni og sú orka sem kemur í gegn hjá þér hefur að geyma smá stein sem ætti að virka á hjörtu fólks um að efla vonina og bægja svartnættinu frá og hefur það tekist hjá mikilum fjölda og erum við afskaplega sátt við það.

Þar sem þú í fyrra lífi áttir þátt í að bæta líf fólks í Mesópótamiu og nú hér í þessu jarðlifi hafa verið settar á þig tengingar sem enginn miðill í hinum vestræna heimi hafa þær en eru þér nauðsynlegar til þeirra starfa sem þú munt vinna í framtíðinni.

Eitt viljum við þó segja þér að á vissan hátt verður þú í klæðum Jesu og mund upplifa háðung og öfund frá öðrum sem fást við svipuð störf en við því getum við litið gert annað en þeir hinir sömu munu eiga erfiðara með að ná tengingum enda varla þess verðugir.

Öfund er ekki liðin hér hjá okkur en þó ekki óþekkt og er tekið hart á slíkum hlutum en hún grasserar um þessar mundir í jarðvistinni en þitt aðalstarf hefur verið að sinna sjúkum og þróa samfélagsþróun til að lifa saman í sátt og samlindi.að boði þess æðsta.

Næstu ár verða erfið mikið mun ganga á hjá öllum þjóðum heims svikamyllur poppa upp og mikið margn peninga horfið sem leitað verður að..

hafa velt vöngum yfir þessum sérkennilegum veðrum um allan heim en þetta er bara byrjunin og þú náðir boðum okkar um fimbulfrost í Evrópu og sýnishorn þess er að koma í ljós.en það verður kröftugara og meira mannfall þar sem fólk mun frjósa í hel.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Upphafið af endalokunum vegna hreinsunar.

Endurrit af fundi með aðstoðarkonu og ég hallaði mér aðeins niður líka og niðurstaðan varð sú að allt fylltist af fólki að mér fannst.

Fyrst var tekið fyrir bókarskrifin sem gengið hafa brösulega því ekki er hægt að halda sambandi á meðan og bent þeir á dictaphone sem prýðisgott tæki til þeirra verka og fá aðstoð við vélritunina.

Samt sem áður muni ég fá mun betra næði og frið frá þeim með þessari vinnslu en ákveðið hefur verið að setja bókaskrifin á frest vegna annarra aðkallandi verkefna. Ég fæ til min risavaxna ljósveru í hvítu og geislar af henni og var hann heldur hærri en Georg munkurinn minn sem alltar er með mér. Þessi vera er komin til að hjálpa mér að komast af stað með heyrnina og skynjunina en allt er opið en þjálfunina vantar og eins og ég sagði að ég hefði stangað straura í langan tíma án árangurs.

Nú koma miklar og innilegar þakklætiskveðjur frá þeim öllum fyrir fórnfýsina þrjóskuna og að gefast aldrei upp.Málið snýst að koma hugsuninni á einn stað kallað ego og ég skuli ekki hafa áhyggjur af því þótt mér finnist orkan sé að detta niður en því fer víðs fjarri heldur er verið að loka fyrir neðri sviðin og færa mig ofar í kristsorkunni til að vinna með aðilum þaðan bæði læknum og fræðurum.

Fyrir þennan fund í tilefni að fimm ára samvinnu okkar og fá að vita deili á þeim helstu en ég telji að kona sé minn æðti stjórnandi. Þessu var vel tekið´og rétt til getið með stjórnandann sem hafi unnið við þetta í þúsundir ára og allt í kring um hna eru glitrandi hvítir hringir og mikil viska streymi frá henni og kærleikur.og liki henni vistin með mér vel.Nafn hennar byrjar á s eða Z og verður leitað uppi Það kom mér verulega á óvart að hún er ekki bara æðsti stjórnandi minn heldur vinni hún með nokkrum útvöldum friðarpostulum um allan heim en þeir séu fáir.

Næsti stjórnandi undir henni stýrir heiluninni og það hafa verið gerðar breytingar á teyminu 2 skipt út á fyrir aðra 2 á hærri tíðni sem ég sé komin á núna. Hún stillir orkuna þar sem engla orkunni og er verið að keyra hana meira upp þar sem mjög sérhæfðir sérfræðilæknar en þeir séu á mun hærri tíðni en ég var á en þetta sé alls ekki gert fyrir mig prívat heldur er þetta þjálfunarprógram að handan þar sem menn eru sendir í jarðvistina og aðir koma til baka með nýja visku til deilingar meðal þeirra til samanburðar.

Þá er að koma vera sem er sér innstillt á andlega vandamál en nú kemur nafnið á stóra manninum að hann kallast Sebastian. Þú ert að fá fleiri og fleiri pakka og þeir hafa áhuga á cycik sergery eins og ég sem nytist á fjarlægum slóðum og engir læknar eru til staðar fyrir fólkið sem þr býr.

Nú kemur hann Georg nær mér og samstarsmiðillin spyr hvort að ég kalli hann Georg og mitt svar er já.Hann leggur báðar hendur á axlir mínar og segir að öll góðverk gleymist aldrei og ég sé vel studdur.

Verið er að byggja stóra hvíta brú með gylltum handriðum og spyr ég hvort að min sýn að það muni maður frá þeim koma labbandi um leið og annar maður héðan úr jarðríki komi á móti honum,og er svarið já það mun verða svo??.

Þá best fundurinn að veðráttu um allan heim og telji ég mig sá harðan vetur Vestan og Norðanlands og svarið kemur að sýnin sé rétt og það muni verða íslensku þjóðinni til happs að vera vön köldum vetrum en mannfall verði víða á Spáni Ítalíu og löndunum í kring vegna þessa fimbulkulda og víða í löndum í kring, en híbýli okkar eru þannig gerð að þau þola harða vetur, en kuldatölur eru okkur ókunnar.

Og síðan um sumartíman verði næstu þrjú ár mun meiri hitar en hafa verið bæði í Evrópu og Afríkulöndum þar sem fé og fólk hríðfellur vegna hitastings vannæringar og vatnsskorts.

Konan í hvítu klæðunum kemur nær okkur með skilaboð að hún sé ekki alltaf hér bara stöku sinnum að sækja mig og fara með um heiminn en fyrst ætli hún að kynna mig fyrir Dalai Lama Gandi og fleiri friðarpostular seem eru sem slíkir í sálinni algerlega flekklausir.

Þú ert fljótlega að leggja af stað í ferðalag einn eftir brautum jarðar þar sem þú munt yfirgefa fyrri tíðnir og fara inn á nýjar en það taki smá tíma vegna styrkleika sem þarf til að vinna með orkuna sem hún gefur.

Þú munt hitta á leiðinni engil sem hefur aldrei verið í jarðvistinni og hann setur sína tengingu á þig og sendir inn í sálina gleði léttleika og gáska sem smá þakklæti fyrir allt þetta sem ég hafi nú þegar lagt á mig fyrir þá meira að segja nánast beint af skurðarborðinu og þú opnaðir augun.

Fjölskyldur hafa verið að fara frá Evrópu til ýmissa Múslima ríkja svo sem fjölskylduparadísin og vatnakemmtigarður sem nýleega vr opnaður að þá er mikill misskilningur að það hindri heilaskaðaða isis menn um að fara inn á þetta griðland fjölskyldna geur breyst í blóðbað á skömmum tíma.

Við óskum eftir því sérstaklega að þú farir ekki af landi brott fyrr en við teljum þð óhætt þar sem svo mörg óhæfuverk eiga eftir að skella á friðelskandi þjóðum bara vegna trúarbragða Kristinna.

Að lokum sendum við kærar kveðjur til allra þjóða og þjóðarbraota sem vilja lifa saman og taka þátt í gleði og sorg hvers annars en vopn verða ekki leyfð en við munum sjá til þess að nægt rými á ýmsum stöðum í heiminum hvort það er Indland Ítalía Somalía eða arabaríkin sem eru í rúst og misþyrming á börnum verður ekki liðin,

Endurrit af fundi frá í fyrradag

Við munum um leið og færi gefst stilla af heimsorkuna og draga úr starfsemi falsspámanna en fyrir þá er ekkert pláss í friðsemdum sem í vændum er.


Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Fortíð nútíð framtíð ?

Endurrit upptök af fræðslufundi heima.

Upptökur og skriftir eru bæði af upptökum og vinnslu við tölvur eru frá nemum í miðlun svo að því sé haldið til haga.

Jæja þá er ég kominn og að þessu sinni með fræðslufund sem þú hefur beðið okkur um og spurning hvar eigum við að byrja?


Fortíð nútíð framtíð?

Þú vilt vita um afleiðingar nýju orkunnar á heiminn sem við settum á en hún nær í gegn um lofthjúp andrúmsloft sjó og vötn og hefur gerst áður þótt það sé ekki skrifað en við getum byrjað á árum Krists og horft yfir Galileuvatn og fiskadauða þar.

Þetta eru stór skref sem við erum að taka og þurfum að gera en því miður vitið þið aðeins um hluta þessara afleiðinga sem eins og ég sagði hafa gerst áður þótt í ykkar sögu sé ekki viska um það en þau bókfell eru týnd.

Ástæðan fyrir þessu er að æðri meistarar eru að færa sig nær mannfólkinu til undirbúnings þess sem koma skal og ekki útilokað að einhverjir af meistunum verði sýnilegir þeim ljósberum sem til þess hafa verið valdir af þeim víða um heim en aðeins örfáir hafa þau lykklavöld að ljósinu eins og þú í ákveðnum tilgangi sem læknir og kennari enda varst þú það áður.

Þið megið búast við fleiri óvæntum hlutum tengdum þessum orkubreytingum en ekki er það vilji okkar að deyða neinn en þetta var óumflýjanlegt til að flýta komu þeirra nær mannfólkinu og munu þeir stýra því sjálfir tengdir ljósberunum og því sem koma skal en mannkærleikur er stærsti þáttur þessarra breytinga.

Þér hefur verið sýndar ýmsar myndir úr fortíðinni þar á meðal mannveran í hellinum á bekknum í Jerusalem en það var gert til að kveikja upp gamlar minningar sem greyptar eru í sálina.

Þinn tilgangur er einnig að sinna sálum í jarðvistinni sem urðu eftir og vísa þeim leiðina í ljósið eftir að við höfum samþykkt slíkt og lykklana hefur þú og þess vegna á fundum hjá þér sækja þessar sálir að þér til að leita hjálpar.

Margar þeirra hafa beðið lengi eftir slíkri aðstoð sem nú hefur ræst.

Þú munt síðan halda þessu starfi áfram þegar jarðvistinni lýkur og ná háum aldri enda mikið starf framundan sem þér er ætlað að sinna.

Þessi tól og tæki fékkst þú í Agra þar sem þú sinntir okkar fundarboði og við þurftum hreinar sálir til samvinnu við okkur en þessu fylgir mikil ábyrgð og við treystum þér til þessa verks og færð til þess ljós og styrk okkar.

Þeir aðilar sem við höfum valið sem ljósbera annarra í þeirri uppvakningu sem munu verða á næstunni munu allir fá skilaboð og tengingar þegar tíminn er réttur en þeir verða leiðtogar hinna í uppvakningunni.

Egoistar rúmast ekki innan þess kjarna heldur þeir sem eru hjartahreinir.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Endurrit af fræðslufundi fyrir ljósberana 14 janúar.

13 janúar

Þið munið sjá nýtt tákn á himni fljótlega en það verður öllum sýnilegt þegar nær dregur

Endurrit af fræðslufundi fyrir ljósberana 14 janúar.

Beðið var sérstaklega um fræðslu um tilgang okkar hér í jarðvistinni tengdri lífinu þeirra hinu meginn.


Sálirnar hafa allar heimild til þess að fara aftur í jarðvistina telji þær að einhverju hafi verið ábótavant í þeirra lífi sem þurfi að klára en það verður þó aldrei á meðan einhverjir ættingjar eru í jarðvistinni en ekki er ólíklegt að þið hittuð einhvern sem þið teljið ykkur kannst við en getið ekki staðsett það nánar.

þú spyrð um nýlegan fund fornleyfafræðinga í Jerusalem á beinagrind sem talin er svo gömul að hugsanlega þurfi að skrifa sögu mannkyns upp á nýtt.

Ég er ekki með þær upplýsingar haldbærar en saga ykkar er nokkuð vel skrifuð með nokkrum vanköntum þó og hin biblíulega saga er mjög mislit og ekki er allt rétt sem þar er skrifað frá upphafi enda voru skrásetjarar að fletta upp í eigin minni við það.

Þetta er þó allt tengt tilfinninga þroska sem sálin leitar eftir og metur hvenær réttar aðstæður eru til að koma.

Tilgangur þessa eilífa lífs sálar er að afla reynslu þroska á milli alda.


Það er ekki við okkur að sakast ef líf fer sviplega heldur aðstæðum hverju sinni en alltaf er tekið á móti öllum þeim sem hingað koma og þeir vakna ekki upp einir á grasbala umkringdir blómum heldur er tekið á móti þeim með kærleik og friði um leið og þau koma og er svo um alla og það sama á við fóstur þau alast upp hjá okkur studd nánustu ættingjum.

Þó þurfa þau sem aðrir að undirgangast það erfiða verk að horfast í augu við eins nakinn sannleika og hann er vegna misgjörða sinna í jarðvistinni.

Þá fyrst getur það haldið áfram ferðinni í ljósið og hljóta fræðslu og leiðbeiningar en síðar geta þau valið um að koma aftur.

Aðstæður geta breyst og slys gerast sem við getum ekki komið í veg fyrir.

Við neytum heldur ekki fastrar fæðu heldur nýtum orku sem hér er til staðar og okkur fullnægjandi.


Við höfum mikla áhyggjur af umgengni ykkar við móður náttúru sem komið hefur fram áður en það verður að vernda hana vel annars fer illa.

Það verða áfram miklar hamfarir á hnettinum en þar er jörðin að minna á sig með jarðskjálftum en boranir ykkar víða um heim hafa komið af stað miklu ójafnvægi í náttúrunni og skilið eftir gríðarlega hella þar sem áður var olía en sem betur fer eruð þið að komast með tækni ykkar inn á nýjar brautir sjálfbærrar þróunnar en það er bara ekki nóg heldur verðið þið að virða náttúruna.

Eiturefni eru víða sem þið hafið framleitt og skilið eftir en þau eyðast ekki af sjálfu sér.

Við höfum ekki bein afskipti af hinum Cosmiska heimi en ég hef áður sagt frá miklum breytingum náttúrunnar og orkunnar en fuglar eru afar viðkvæmir fyrir þessu en við fylgjumst með en þetta verður að ske eigið þið að komast af.

Við sjáum ekki að þetta muni valda skaða en við þessu mátti búast en þetta er ekki af okkar völdum.

Það eiga eftir að vera mikil átök á hafsbotnum víða um heim eldfjöll munu spúa eldi og hafið á eftir að ganga á land viða en sjávarstaða fer hækkandi sem aftur leiðir til enn stærri vandamála fyrir sum lönd.

Varðandi spurningu þína að þá er það ekki frekja að spyrja hvort hægt sé að setja fram óskir til okkar um ákveðna leiðbeinendur á sviði miðlunar þar sem þeir stýra samskiptum á fundum er til að svara að við tökum vel í slíkt en þá er margs að gæta.

Orkan þarf að passa sem farvegurinn hefur og því orkusviði sem stjórnandinn hefur og passi þetta saman og hann sé samþykkur þá er þetta ekki fyrirstaða.

Þú spyrð um veikindi barna. Því er til að svara að alvarleg veikindi barna eru ekki af okkar völdum heldur genagallar viðkvæms líkama í upphafi sem getur allt frá unga aldri og löngu fyrir ætluð lok í jarðvistinni komið yfir til okkar og við því er ekkert að gera.

Það er ekki skrifað í sálina að viðkomandi eigi að hafa stutta viðdvöl í jarðvistinni heldur lífshlaupið almennt en mannslíkaminn er ófullkominn að því leiti.

Ljósberarnir þurfa ekki að óttast að einhver komi að í slíkum miðlunar samböndunum sem ekki hefur heilindi til starfans frá okkur enda slíkt óhugsandi.

Þú spyrð um Mayja indiánana og Nostradamus sem þér var sýndar myndir af þá var þetta hluti af stærri heild sem er að koma til þín en iniánarnir voru sérstakir mjög hlédrægir vel gefnir en þeir voru allir á hærri tíðnisviði og vitund en mannfólkið í dag og gátu því tekið við þekkingu og boðum frá okkur án notkunnar tækja sem þeir þó smíðuðu með okkar tilsögn til þess að hafa eitthvað fyrir stafni og til að vinna þeirra skilaði frekari trúverðuleika að þeim gengnum.

Hvað þig varðar þá tekur þú með þér í þessa jarðvist sem áður hefur verið gert og heldur áfram á þeirri þróunarbraut með nýjum upplifunum til viðbótar því sem þú áður gerðir og á einhverjum staðartíma finnast þér hlutnirnir kunnuglegir en áttar þig ekki frekar á þeim strax.

Hvað almanakið varðar þá táknar það ekkert sérstakt að það skuli enda í árslok 2012 og annað tekur við það sama átti við Nostradamus hann hafði alla eiginleika miðlunar og gat því með okkar hjálp og þjálfun skráð niður til seinni tíma skoðunnar.

Þetta endurspeglar ekki neitt sérstakt en þetta má segja að hafi ekki verið skrifað lengra þar sem þess gerðist ekki þörf.

Megintilgangur var að upplýsa þig um lifnaðarhætti og forsögu þessara aðila á þeim tíma til notkunar síðar á þínum ferli.

Sú tortryggni þjóða í milli hver sé öflugastur hefur ekkert með daglegt líf fólks að gera heldur eru þetta egoistar og sjálfsdýrkendur í öllu sínu veldi engum til góðs.

Mannfólkið verður að fara að taka höndum saman um að mynda frið og kærleik sín í milli eigi jörðin ekki að líða undir lok.

Persónulegar upplýsingar fékk ég um núverandi störf foreldra minna sem er fyrir mig einan.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Kona í bláum kjól með mikla birtu af bláu hvítu.

Fundur 20 januar í hóp.

Þessi fundur var allt öðruvísi en vanalega þar sem kona í bláum kjól með mikla birtu af bláu hvítu og bláu kom í gegn og ræddi við hópinn sem ljósberana og nú væri áríðandi að við legðum þeim lið.

Hún tengdi okkur öll saman með bláu orkunni hækkaði tíðnina þannig að hausinn á mér var í skrúfstykki,setti silfurþræði úr jörðinni og upp í gegn um hjartastöðina og þá vorum við til búin til brottfarar.

Flogið var hægt yfir Vesturland og numið staðar við Vestfirði og þar þurfti okkar aðstoð og mína að opna í ljósið sem undanfara nýrra tíma og það var afar sérstakt að sjá allan þann fjölda sem kom af báðum þessum landshlutum sem litlar bláar stjörnur sem þurftu að komast í ljósið og þegar það var búið spurði hvaðan allar þessar væru að koma bæði af sjó og landi.

Svarið var að þetta væri svo langur tími allt að upphafi byggðar á landinu og síðan var sett blá slæða yfir báða landshluta og inn í hvert hús.

Siglufjörður var næst og sagði hún mikla langvarandi sorg og vonleysi hvíla yfir bænum og ósættir manna í millum sem dregið hafi neikvæða orku inn í bæinn.

Gert var það sama þarna þokunni létt og blá birta sett í hvert hús og vörn yfir bæinn.

Farið var um Norðurland og það sama gert þar og eystri svæðin en síðan farið inn á miðhálendið en hún sagðist verða að fara austur fyrir orkustrókinn sem væri of sterk fyrir okkur en stöðvað á Jöklum og þar var dregin lína beint í Snæfellsjökul.

Ljósberar þyrftu að hjálpa jörðinni í bænum sínum og halda fund við jökulinn enda væri þar orkustöðvar og tengingar sem ljósberar þyrftu að hafa og helst um miðjan Mai og lofaði ég því að setja það mál í gang.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Einkafundur 22 janúar Island og Cosmiska kerfið.

Við skulum byrja fundinn um hlutverk ljósbera sem miðla á báðum sviðum að þá þurfa þeir að aðgæta vel að ganga ekki of nærri sjálfum sér hvílast og nægan svefn.

Við fengum fyrirspurnirnar og héldum um það fund hverju svara skyldi.


Island gegnir veigamiklu hlutverki í hinum cosmiska heimi þar sem þetta er eyja og smitun til annarra landa er ekki fyrir hendi og því höfum við getað haft hærri orkutíðni hér en á sambærilegum eyjum annarsstaðar.

Við höfum getað unnið með þróun þessarar sérstöku orku með tengingu við fjöllin og hafið og samnýtt hana fyrir ykkur enda hafið þið verið voðalega trúuð meira að segja á stokk og steina í gegn um tíðina. Öll hafið þið elementin sem til þarf.

Þegar þið farið á milli staða hér á landi finnið þig breytingu orkunnar en skiljið ekki af hverju og í öðrum tilfellum skynjið þið en viljið ekki trúa því sem þið sjáið.

Þessar orkur virka vel á ykkur sem þjóð og þið hafið sýnt óbilgirni á erfiðum stundum og hugsað um meðbræður ykkar og þess vegna þegar þið farið til útlanda þá finnið þið þessa orku ekki lengur og langar aftur heim til Íslands.

Þið skiljið mörg hver ekki af hverju þessi tilfinning er þar sem svo margir hafa lokað fyrir en við höfum átt mun auðveldara að nálgast mannheima með þá æðstu vegna orkunnar en við sjáum glufur í skýjum þegar við horfum niður en þið upp á sama hátt.

Þið hafið miklar orkulindir frá móður jörð á Snæfellsnesi Reykjanesi og NV af jöklum á Suðurlandi en þegar þið eruð á þessum stöðum fáið þið sum hver ákveðna upplifun hve yndislegur þessi staður sé og þar er orkan að verki sem smýgur í hverja frumu ykkar.

Þegar næmir einstaklingar eru á þessum svæðum eigum við enn auðveldara að koma til þeirra skilaboðum.

Ísland er ekki æðra öðru í sambandi ríkja á hnettinum en þið eruð náttúrubörn og með þá sérstöðu að skynja þessa orku og við erum að reyna að hækka tíðnina enn meira til að við getum komist nær ykkur með kærleikann en hámenntaðir einstaklingar svokallaðir vísindamenn hafa afneitað okkur en það mun breytast í fyllingu tímans.

Margir þeirra hafa snúið algjörlega frá upprunanum um kærleik og trú í víðustu túlkun þess orðs og útlagt skilning á okkur sem hjátrú en á ögurstundu erum við fyrsta hugsunin úr þeirra líkama.

Þú spyrð um bikarinn en við týnum aldrei neinu en felum sumt þar til tíminn er réttur og hugleiðið inn á svæðið Sunnan Vatnajökuls en hverjum verður vísuð leiðin að honum kemur síðar.

Það er mikill kuldi sem við skynjum á Vestfjörðum en það er eins og hörmungar margra ára hafi sett mark sitt á landslagið og íbúum þess og nauðsynlegt er að tengja sig jarðarorkunni hugleitt en það er lykillinn að hægt sé að tengja sig í hinu efra.

Það er afar mikilvægt fyrir okkur til að getað hækkað tíðni þeirra sem eiga síðan að hjálpa öðrum úr heildrænni sorg og kvíða sem liggur eins og mara yfir öllu.

Við munum alltaf koma á þínar samkomur með rétta fólkið frá okkur til þess að geta veitt þeim sem koma þá aðstoð sem þörf er fyrir hverju sinni og stundum mun ég sjálfur koma með fleirum gefist færi á því.

Ég ætla aðeins að stilla stöðvarnar þínar fyrir hærra tíðnisvið og auka næmnina.

Spurningu varðandi Alheimsstjórnina er okkur ljúft að veita enda skaðar það okkur ekki en það er efni í einn fund.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Á bekkinn í hreinsun.

Einkafundur 29 janúar 2011

Áður en fundurinn hefst er kallinn settur á bekkinn í hreinsun og endurstillingu orkustöðva auk annars smávegis viðhalds og hefst nú fundur.


Já það er nauðsynlegt að við yfirförum kerfin á þér því þótt þú sért vel varinn og náir að hreinsa það mesta af smitun sem verður til aðallega þegar þú ert ekki að vinna verður alltaf pínulítið eftir og við tökum það í burtu enda er slík hreinsun nauðsynleg framkvæmd af okkar verum á þér vegna þinna verka og við höfum nú smurt þig allan grænu orkunni.

Já það átti að taka fyrir núna á þessum fundi starfsemi Helgistjórnarinnar. en farvegurinn hefur lagt fram svo margar spurningar um tengingar og fleira og tökum það fyrir nú enda fer hitt ekkert.

Tíðnirnar: Hvernig tengjast tíðnirnar í samskiptum okkar við ykkur og ætlum að gera okkar besta til að svara því.

Spyrill: Varðandi þínar tíðnir voru þær ákveðnar af sálinni í samráði við okkur og þar á meðal var einlæg beiðni hennar um að tilsýn yfir til okkar utan skynjunar yrði látin vera svo og við fylgjum alltaf vilja einstaklings sem að þessu sinni er samgróinn þér. Þetta hefur með fyrri líf að gera ekkert annað.

Við munum endurskoða þetta atriði í samráði við þig þótt sálin hafi lagt fram aðrar óskir.

Þess ber þó að geta að þetta atriði þarf að skoðast frá öllum hliðum hjá hverjum farvegi og hvað þinn varðar þá ertu aðeins komin hálfa leið í styrk en ég má ekki upplýsa hvar þetta endar í ykkar jarðarárum sé ég ekki.

Ferðir þínar ytra eru nauðsynlegar fyrir þig til að hitta aðra og deila reynslu og taka aðra um borð með okkar kennurum sem alltaf fylgja þér þótt kennararnir á staðnum segi ekkert um það enda um samvinnu að ræða.

Hvað vinnu þína varðar þá er það nú svo með manns skepnuna að hún reynir að ná í hvert haldreipi sem gefst þegar fótunum er kippt undan tilveru þeirra og hjálparbeiðnir berast okkur sem alla jafna myndi ekki gerast hjá sumum einstaklingum.

Það er mikill kærleikur sem felst í því að taka á móti slíku fólki og veita því hjálp en það verður sjálft að rísa á fætur en fær aðstoð við það.

Þitt starf felst í því að miðla kærleik og heilun til þessa fólks með orku frá okkur til þess að reisa það við og við veitum þér sterka vernd en þú sjálfur verður að bera ábyrgð á eigin heilsu.

Á þeim sviðum sem þú vinnur á eru ekki margir og þess vegna tekur þetta á bæði á líkama þinn og sál en við reynum að passa upp á heilsu þína en við og við þurfum við að taka þig í klössun eins og áðan.

Með tímanum munu fleiri stíga fram og leita sér aðstoðar þar sem hana er að finna en stærðin er ekki aukinn heldur stigur fólk nú fram

Stór hluti heilunar felst í því að fólk setur hugsanir sínar og vanlíðan fram munnlega eða skriflega við þig frá hjartastöðinni og léttirinn sem fylgir er svo mikill enda ákaflega mikilvægt að komast undir skelina á hjartastöðinni.

Margir eru að kikna undir álagi á henni með því að tala meira saman en hún getur brotnað og þá er óvíst að hægt sé að ná manneskjunni óbrotinni til baka.

Farvegurinn: Já þar er margt í kolli aðallega tegundir og sundurliðun á orkunni sem mannfólkið hefur og taka á móti slíkri orku frá okkur.

Spyrill: Ef við tökum þig fyrst þá er orkan þín í dag svo sterk og hefur sefandi áhrif á þá sem til þín leita og við eigum svo auðvelt með að koma með mjög sterka hvíta orku sem ekki allir þola en þú gerir vel.

Kærleikurinn er þar í fyrirrúmi og hjálpar mörgum en það er ekki öllum gefið að standast það álag en við erum þér afskaplega þakklát fyrir að fá að nota þinn líkama til hjálpar öðrum.

Farvegurinn: Spádómsgáfan er sér tíðni með sinn stjórnanda þar sem farvegurinn getur sótt upplýsingar fyrir þann sem biður um það og einnig leiðbeint viðkomandi á rétta braut eða að koma áfram skilaboðum um að ganga frá tilteknum málum séu alvarleg veikindi hjá viðkomandi.

Miðlun er á annarri tíðni með hjálparlið sem tengir þá við farveginn á ýmsan máta sækir látna aðila og þeim gefst færi á að ræða við ættingja sína

Heilunin er líka á annarri tíðni með annað hjálparlið þótt að við í sumum tilfellum getum samnýtt starfsemina hér en það má segja að þessar tíðnir séu litrófið okkar rétt eins og þið veljið ykkur vinnu við hæfi.

Farvegurinn hefur allar þessar tíðnir og mun nýta þær vel í þágu mannkyns.

Spyrill: Mér er ofarlega í huga lífsleiði sem ég hef skrá að ykkar fyrirsögn.

Já það er rétt frá sagt að oft í löngum kærleiksríkum hjónaböndum að við andlát þá hefur hinn makinn farið sömu leið vegna lífsleiða stuttu síðar og gerum við ekki athugasemdir við þann kærleik þegar bæði eru komin aftur saman sem nýgift.

Spyrill: Mér finnst mjög þungt yfir Afríku ríkjum upplausn þegnanna og margir særðir og látnir.

Já mér sýnist að blóðið muni renna yfir borgir frá suðri til norðurs og mörg ríki koma að þar sem þegnarnir hafa mátt þola kúgun harðstjóra grimmd og hefur þetta fólk nú gert uppreisn til þess eins að fá að lifa í friði en valda græðgi og heimska er orsökin ekki trúin sem slík.

Ekki er ólíklegt að Vestrænar þjóðir þurfi að koma hér til og stilla til friðar þegar fram í sækir því þetta mun breiðast hratt út.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Spyrill: hvað munum við taka fyrir í dag.

Einkafundi 5 Febrúar 2011

Farvegurinn bar fram óskir í morgun varðandi geislana tilveru þeirra og tilgang fram yfir Helgistjórnina sem þó vissulega tengist.


Verkefni hvers sviðs en 1-3 geisli eru Faðir Sonur og Heilagur andi, 5-6-7 geisli tengjast 1-3 geisla en þeir fara á athafnageisla sem tengist 1 geisla en hann tengist orku 5 geisla en erfitt er að skilgreina þetta nákvæmlega fyrir ykkur en braut reynslunemans er löng og stöng en nemarnir finna tíðni sveiflu meistarans eftir því sem nær dregur og jöfnun og þol nemans hafa átt sér stað.

Geislarnir eru aðeins 7 þótt öðru sé haldið fram en það stafar að misjafnri túlkun hvers og eins þar sem hann telur sig vera á og upplifir.

Við reynum að vernda og styrkja farvegi okkar en þeir þurfa að sitja fyrir okkur í kyrrð tæma hugann þannig að við komumst að til að vinna með þróun hans á langri leið.

Fyrstu 3 geislarnir eru eins og ég sagði eigindlegir í heilagri þrenningu en aðrir geislar falla undir þessa fyrstu sem krafturinn til heilagra verkefna.

Heimsstjórnin er öll á 7 geisla en þar undir er Kristur er á 2 geisla Jesú á 3 geisla og Lávarður heimsins á 4 geisla en þeir stýra aðallega geislastjórnun þótt fleiri komi þar að til aðstoðar en allt er þetta þekking sem er jarðarbúum ekki nauðsynlegt þar sem sálirnar þekkja þessi svæði og þegar tíminn er réttur þá færist hún nær.

Þroskinn tapast aldrei úr sálinni en hún veit nákvæmlega hver og hvar Helgistjórnin er enda tengist það leiðinni heim þegar kemur að þeim tíma.

Við teljum ekki nauðsynlegt að allir viti allt frá upphafi til enda lífshlaupsins enda ekki tilgangur jarðvistarinnar.

Spyrill: Þær sýnir sem þið sýndu mér úr hvíta herberginu þar sem ég hitti látna foreldra mína og aðra ættingja gat faðmað þau og aðra hjálparaðila þar með talinn kennari minn og meistari en allt fór þetta fram með hugsanaflutningi og svo miklum kærleik að hjartað var að bresta.

Svar: Tilgangurinn með slíkum sýnum er að á námsbrautinni þegar hún er komin vel af stað að þá metum við hvort að óhætt sé að birta slíkt í kærleik til að sýna nemunum á hvaða braut þeir séu og taka í burtu alla hræðslu og taka í burtu efann úr hjartanu.

Seinni ferð þín inn í okkar heim og í hvíta orkuhúsið þar sem Helgistjórnin hefur fundi að þá var það viðurkenning á velþóknun okkar á þínum kærleik í þágu annarra og eins til að prófa hvað þú þyldir mikið álag á miðtaugakerfið.

Einnig til að auðvelda meiri skilning þó einnig til að koma í veg fyrir mistúlkun. Þá er boðberar ljóssins fái víðari sýn en þó ekki það mikið að þeim hlakki til að koma yfir til okkar vegna þeirrar sælu jafnvel þótt hver og einn þurfi að fara í gegn um lífsferil sinn með okkur áður en lengra er haldið.

Spyrill: Sjúkdómar manna

Svar: Það er lítið sem við getum gert til fullnustu þeirra en þetta er oft á tíðum eitthvað sem fólk hefur tekið á sig með líferni og neikvæðri orku ásamt því að oft hefur fóstrið ekki náð að þroskast nógu vel í móðurkviði.

Kraftur hugans er gríðarlega öflugur og skyldi ekki vanmetinn og með jákvæðum hugsunum og einbeitni má oft snúa þessu til betri vegar en er ekki auðvelt hafi manneskjan alla tíð verið neikvæð.

Ekki ber að líta á þetta sem einhverja refsingu því við komum hvergi þarna nærri en spyrjið ykkur um lifnaðarhætti fyrr á öldum og nú? Þekkið þið ekki enn eiturefni og krabbameinsvaldandi sem er í ykkar daglegu fæðu? Ef þið aðgætið þetta frá fyrstu tíð barnsins má byggja vel þroskaðan og sterkan einstakling.

Stór hluti mannkyns vinnur að því að finna hjálparefni til að vinna á ykkar sjúkdómum en besta leiðin er að þekkja sinn líkama fara vel með hann gefa honum hollt og heilbrigt fæði en sjúkdómum verður aldrei útrýmt frá ykkur.

Skoðið vel að hlaupa ekki eftir einkennum heldur einbeitið huganum á sýktan stað og fáið hugann til að snúast til betri vegar að hann sé heill.

Frjáls vilji mannsins verður aldrei barin niður með kúgun eða settur í pott og lokinu skellt á.

Hann er drifkraftur lífsins og sé hann ekki notaður hetur farið illa og meiri ógnir í stað gæfu.

Spyrill: Þessi stóru svörtu svæði með hvítum skellum sem þið sýnduð mér?

Svar: Svörtu litnirnir liggja þar sem vandamálin ligga en hvítu blettirnir eru lausnir en þar sem þetta svarta liggur yfir er kúgun og illvirki undir. Ekki sé ég í kortunum nein kjarnorkuvá en karlpeningi stendur vá fyrir dyrum ef kalla má þá svo því að Vesturlönd munu dragast að samninga borðinu áður en það verður of seint og í kjölfar þess rísa mæður upp.

Allir munu átta sig á því að setja þarf jöfnuð milli þjóða því með þeirri leið fylgir hagsæld.

Það munu hendur fara á loft í mörgum ríkjum heimsins til að styrkja Afríkulöndin en kúgun harðstjóra í nafni ýmindaðs skurðgos mun aldrei halda til lengdar en það tekur tíma.

Kvenorkan og kveneðlið mun rísa og það er eina sem viðheldur lífinu en kven orkan er sterkari en karl orkan og því fara menn að huga meira að kjarki þeirra og reyna síður að móta orku þeirra í karl orku með harðstjórn.

Hún umvefur allt með ást sinni einlægni og verndarhugsun afkvæma sinna.

Spyrill: Nú eru mörg dæmi um allan heim að fólki finnst að það sé í röngum líkama og fer í aðgerðir til að breyta hlutverki sínu án barneigna.

Svar: Sálin er fullkomin þegar hún kemur í einstakling og það tekur okkur sárt að sjá þegar hún fer af leið en ekki af okkar völdum heldur stjórnun hugsunar í viðkomandi líkama.

Spyrill: Staðgöngumæður.

Svar: Já það er ekkert nýtt að slíkt sé stundað og við getum horft alla leið til frummannsins og þess kvenkærleiks sem ríkti meðal þeirra og fornmanna þar sem þetta þótti ástríki og kærleikur að taka slíkt hlutverk að sér og það yrði eigns hins eftir fæðingu.

Þetta sýnir kærleik kvenna að taka slíkt að sér fyrir aðra konu án þess að vera til þess neydd.

Vegna ykkar litla samfélags hér á landi þarf að horfa 50-100 ár fram í tímann yrði þetta algengt form og erfiðleika sem gætu fylgt í kjölfarið þar sem hugsun á tækniöld er allt önnur en hjá frumbyggjum.

Hvernig þið matreiði hlutina í dag verði þið sjálf að bera ábyrgð á í ykkar daglega lífi.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Fundur 26. Febrúar. 2011.

Sæll vertu.

Það verður auðveldara með hverjum fundinum fyrir mig að komast að á fundina og minna álag á miðilinn.

Þú spyrð um þær upplýsingar sem þú fékkst ytra og Nostradamus og hans spár.

Því er til að svara að Nostradamus fékk oft sterka orku til sín en það sem sett var á blað er ekki allt eins og sýnist mislesið og túlkað það sem fram kemur á ýmsum stöðum og sumt er alls ekki að fara að gerast.

Sumir sem hafa ritað spár í aldanna rás hafa verið misnotaðir og þeim tileinkaðar sumar spár þótt svo sé ekki.

Þú spyrð einnig um þitt hlutverk hér á landi og er það rétt að vissu leiti rétt að við erum að skoða nokkra aðila sem hugsanlega gætu tekið við þeirri orkuvídd sem þarf og erum við þá að ræða um þol miðlanna því að ef ekki er farið varlega og þessu stýrt á réttan hátt gæti það valdið sturlun miðilsins sem er alls ekki það sem við viljum.

Þið fáið innsýn þegar tíminn er réttur hvort að stefnan sé rétt sem þið eruð að fara sem ljósberar.

Við vitum að þol þitt er mikið fyrir orkunni og við fylgjumst vel með þér og framþróun þinni og þú getur litið á þetta sem ísklump í hendi sem inniheldur allar tengingar þínar sem og annarra sem eru næmir og þýðum ísinn á misjöfnun hraða.

Það sem við erum í raun að gera er að opna fyrir hjá ljósberum um allan heim sem bera ljósið milli manna og láta gott af sér leiða.

Allt gerist þetta innanfrá því að hver um sig kemur í fóstrið með sálinni og tengingar frosnar að hluta.

Umbylting mannkyns til frelsins einstaklingsins er hafin og verður ekki stöðvuð en hún er nauðsynleg til þess að þið farið að horfa í kring um ykkur á náttúruna og tengið ykkur þar.

Það þarf líka að blása í brjóst einstaklinga þannig að þeir finni ljósið og sinn tilgang hvers og eins í hverju samfélagi fyrir sig.

Þú hefur fundið á samkomum þínum í kirkjunni og á fundum þínum allar þær sálir sem leita hjálpar hjá þér að komast í ljósið og fái endanlega frið og fyrir það erum við mjög þakklát.

Við reynum að lyfta okinu af viðstöddum og létta þannig undir að þeim líði betur og læknar hérna megin koma líka og skoða viðstadda.

Ekki er hægt að klára allt á fundunum en við fylgjum einstaklingunum heim og höldum áfram okkar starfi rétt eins og þegar við förum í vitjanir að þinni beiðni.

Þú spyrð hvað er trú samkvæmt okkar orði? Trúin og heilagur andi er alltaf með ykkur hið innra og við getum ekki sett einhverja eina leið í þessum málum miðað við okkar reynslu sem eru æði gamlar.

Trúin og vonin er sannleikur nútímans og þið verðið sjálf að stiga skrefin en við styðjum ykkur öll og upplifa sannfæringuna en ekki græðgi eigingirni sjálfselsku og sjálfshól því það verður ykkur að falli enda ekki kærleikur.

Það mun alltaf verða svo í samfélagi að ef allt það besta er dregið fram í hverjum og einum kemur í kjölfarið öryggi og vellíðan.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Fundur 5.mars.2011

Góðan daginn.

Það er mikill fjöldi mættur hjá okkur í dag á þessum fundi.

Þú hefur rætt um að þínir stjórnendur mættu koma nær en nú er en þeir eru svona 2-3 skrefum fyrir aftan þig en þeir telja það nægjanlegt í dag vegna móttökuskilyrða þinna og því minna álag á líkama þinn vegna mikilla starfa þinna fyrir okkur en virkar jafn vel.

Hér eru nokkrir hópar fólks sem komið hafa að ljósinu þínu ýmist til að fá styrk í ljósinu og eins að bjóða fram aðstoð sína. Þau eru einnig að gera boð á undan sér að þau vilji mæta í kirkjuna á mánudagskvöld til fundar við ættingja sína en þeir munu ekki koma fast að þeim vegna þess að tilfinningar séu jafn miklar fyrir þá og ættingjana í jarðlífi og vilji bara skilja eftir hlýju og kærleika.

Við biðjum þig að stiga varlega til jarðar með þá svartklæddu þar sem þar eru tvær fylkingar með og á móti þessari vinnu öfund og illmælgi geti skotist upp en láttu það ekki á þig frá því fólkið sjálft eru þiggjendur og þau munu sigra þessa erfiðleika.

Við erum að vinna mun sterkara á þessum fundum þínum bæði ofanfrá á hliðum og jarðarorku þannig að fólkinu líði vel eftir fundina með frið í hjarta.

Við viljum lyfta þessari vonleysis þoku af landinu en til þess þarf mikla orku og vilja ykkar sjálfra þar sem við getum ekki gripið fram fyrir frjálsan vilja einstaklinga enda bundið lögmálinu.

Ég spyr um föður minn. Ég sé mann með þvermóðskulegan svip í bakgrunni sem bendir á hring á hendi sér og er með purrpura hempu á öxlum sér en svarar ekki alveg strax og er samt með rétt við mörkin þín. Hann er í mikilli vinnu hinum megin en stalst eiginlega innfyrir bláa hringinn bara til að sinna beiðni minni.

Meistarar á græna litnum eru mjög nálagt og svo eru 3 hávaxnar verur af annari reglu á blárri tíðni sem eru með þig í skoðun hvenær skuli færa tíðnina ofar án skaða fyrir þig eftir því sem þú venst þrýstingi sem þessu fylgir.

Græna orkan er að þéttast með fleiri sérhæfðum sérfræðingum sem koma að þegar á þarf að halda og eiga í dag auðvelt með að komast að þér án fyrirhafnar en þeir gæta einnig að þinni heilsu.

Að venju fylgja góðar óskir um að ég gæti að heilsu minni minnki þyngdina(perustefnið) og hugi að almenni heilsuvernd með útivist og hreyfingu

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Þetta gekk mjög vel að komast að farveginum núna

Fundur 19 mars 2011

Góðan daginn

Þetta gekk mjög vel að komast að farveginum núna en okkur hefur tekist að sameinast betur og um leið getum við stillt saman tengingar.


Spurning: Hvernig fannst ykkur áðan að nýta mig ( þór en ég var beðinn að fara í stólinn ) sem tengil fyrir farveginn vegna spurninga sem hún hafði?

Svar: Takk fyrir það gekk mjög vel og þú náðir öllu rétt sem við vorum að senda til þín og þessi tenging mun styrkjast enn meira síðar þótt heilunin sé í forgangi hjá okkur.

Þú gerir miklar kröfur á okkur og við gerum ekki athugasemdir við það en aðalatriðið er að þú vinnur mjög vel með okkur og tiltölulega auðvelt að hækka orkuna hraðar en við gerðum ráð fyrir í fyrstu aðallega vegna lífsreynslu þinnar og hæfileika miðtaugakerfis þíns til að aðlagast fljótt tíðnisveiflum og þrýstijöfnun milli sviðanna en sumir í jarðvistinni þola það einfaldlega ekki.

Spurning: Hvernig stendur á því að svo margir sem koma til fólks sem statt er hjá mér koma bara við kasta kveðju en gefa ekki upp nöfn.

Svar: Þetta er afskaplega einstaklingsbundið en hver og ein sál hér ræður því sjálf hvort að hún gefi upp nafn sumir hafa gleymt því en við vitum að kröfum þínum og reynum eftir bestu getu að framfylgja þeim en viljum ekki útiloka neinn frá því að geta komið áfram kveðjum sínum og vonum að þú misvirðir það ekki við okkur

Spurning: Hvernig starfar Helgistjórn jarðarinnar?

Svar: Það er alltaf mikils umleikis á hverri stundu hjá Helgistjórninni en ein deild í Helgistjórninni hefur yfirumsjón með jarðvistinni og færa okkur nær ykkur en tíðnin er mjög gróf enþá

Við reynum að hafa áhrif á þá einstaklinga sem geta náð til okkar og vísa þeim leiðina upp til okkar í þeim tilgangi að breiða út frið en illskan öfundin og hatrið milli manna hindrar okkur í þessari vegferð.

Einhvertímann í mikilli framtíð sjáum við fyrir okkur að skilin á milli okkar verði á endanum þannig að lítill munur sé á milli þilja og auðvelt að fara á milli.

Við erum aðeins lítið sekundu brot í tíðni alheimsins en líf er á okkar vegum á öðrum stöðum enda birtingaformið misjafnt.

Við komum sem dæmi í þeirri birtingamynd sem þið skynjið og þekkið en á öðrum stöðum alheimsins birtumst við í því formi sem aðrir þekkja þar.

Spurning: Hvernig varð líf til á jörðinni?

Svar: Sálin og vitundin hefur verið til í milljónir ára en hluta var blásið á ykkar plánetu sem þótti lífvænleg og þannig varð líf til eingetið.( Einhverskonar genablanda? )

Kærleikur sem kveikir líf í hjarta var það sem lagt var upp með í byrjun alveg eins og líf þrífst annarsstaðar í alheiminum án þess að þið sjáið það.

Þróun og þroski sálarinnar tekur á sig myndbirtingu eftir því sem tilefni sé til og vitundin spilar þar inn í og ef horft til baka um aldir alda og þúsundir ára hefur sálin tekið inn á sig hin ýmsu form og ferðast síðan á milli og öðlast mikla þekkingu.

Efnisformið breytir þessu ferli en þá er hún kyrr í birtingarmyndinni á þessum stað og tíma uns yfir líkur og kemur þá aftur í sálnaherbergið.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.