miðvikudagur, 20. mars 2019

Það eiga eftir að vera mikil átök á hafsbotnum víða um heim eldfjöll munu spúa eldi

For those who want to read the articles on this page, you can change their language by clicking the button on the right of the page ( G Välj språg )


Þið munið sjá nýtt tákn á himni fljótlega en það verður öllum sýnilegt þegar nær dregur

Endurrit af fræðslufundi fyrir ljósberana 10 janúar.


Beðið var sérstaklega um fræðslu um tilgang okkar hér í jarðvistinni tengdri lífinu þeirra hinu meginn.

Sálirnar hafa allar heimild til þess að fara aftur í jarðvistina telji þær að einhverju hafi verið ábótavant í þeirra lífi sem þurfi að klára en það verður þó aldrei á meðan einhverjir ættingjar eru í jarðvistinni en ekki er ólíklegt að þið hittuð einhvern sem þið teljið ykkur kannst við en getið ekki staðsett það nánar.

þú spyrð um nýlegan fund fornleifafræðinga í Jerusalem á beinagrind sem talin er svo gömul að hugsanlega þurfi að skrifa sögu mannkyns upp á nýtt hvað sem öðru líður þá höfum við sögulegar staðreyndir réttar og fræðingarnir sínar sem rýna í steina og telja allt rétt.

Var að lesa forsíðuna að blogginu minu þegar neðangreint kom til min.

Þú beindir til okkar fyrirspurn um nýfundna grof í Sinai eyðimorkinni þar sem við fyrstu skoðun sé hún af manneskju sem var uppi 600 árum fyrir Krist. Þetta stenst ekki skoðun hjá okkur þar sem mjög háfættar vitsmunverur frá okkur voru þá að hluta árs að fylgjst með fæðingu jarðarinnar en miðað við lýsingu þína hefur engin af þeim grafið beinin sín hér í jarðvistinni

Ég er ekki með þær upplýsingar haldbærar en saga ykkar er nokkuð vel skrifuð með nokkrum vanköntum þó og hin biblíulega saga er mjög mislit og ekki er allt rétt sem þar er skrifað frá upphafi enda voru skrásetjarar að fletta upp í eigin minni við það okkar maður hér getur fyllt margar bækur af fróðleik þegar hann fer af stað en er þungur í taumi rét eins og rithöfundur sem veit fyrirfram að enginn hafi áhuga fyrir skriftum hans.

Þetta er þó allt tengt tilfinninga þroska sem sálin leitar eftir og metur hvenær réttar aðstæður eru til að koma aftur í jarðvistina og tengjast nýrri sál við fæðingu öðruvisi getur það ekki orðið.

Tilgangur þessa eilífa lífs sálar er að afla reynslu þroska á milli alda til varðveislu æðstaráðsins.

Það er ekki við okkur að sakast ef líf fer sviplega heldur aðstæðum hverju sinni en alltaf er tekið á móti öllum þeim sem hingað koma og þeir vakna ekki upp einir á grasbala umkringdir blómum heldur er tekið á móti þeim með kærleik og friði um leið og þau koma og er svo um alla og það sama á við fóstur þau alast upp hjá okkur studd nánustu ættingjum og vonandi eyðir þetta angist ættingja sem missa sina nánustu.

Okkar maður varð sár yfir bók sem kom út með þessum lýsingum og hlaut metsölu svo og önnur bók sama höfunds sem fékk met viðtökur ykkar þótt sannleikann vanti af stórum hluta og sýndist honum að hann skipti ykkur engu máli og varð enn hissa.

Þó þurfa þau sem aðrir að undirgangast það erfiða verk að horfast í augu við eins nakinn sannleika og hann er vegna misgjörða sinna í jarðvistinni þegar þau koma hingað til okkar svo að það eru hreinar skröksögur að viðkomandi líði svo vel eftir verknað sinn en svo er ekki. Endurhæfing tekur áratugi á ykkar mælikvarða áður en viðkomandi fær að hafa samskipti við okkur hér umfram sina umsjónarmenn og kennara.

Þá fyrst getur það haldið áfram ferðinni í ljósið og hljóta fræðslu og leiðbeiningar en síðar geta þau valið um að koma aftur.

Aðstæður geta breyst og slys gerast sem við getum ekki komið í veg fyrir.

Við neytum heldur ekki fastrar fæðu og grillum ekki mat þótt metsölubókin greini frá slíku og boðið upp á grænmetisborgara meðal annars.heldur nýtum orku sem hér er til staðar og okkur fullnægjandi og tekur sú hleðsla frá hvíta húinu um 1 klst á jarðartima

Við höfum mikla áhyggjur af umgengni ykkar við móður náttúru sem komið hefur fram áður en það verður að vernda hana vel annars fer illa.

Það verða áfram miklar hamfarir á hnettinum en þar er jörðin að minna á sig með jarðskjálftum en boranir ykkar víða um heim hafa komið af stað miklu ójafnvægi í náttúrunni og skilið eftir gríðarlega hella þar sem áður var olía en sem betur fer eruð þið að komast með tækni ykkar inn á nýjar brautir sjálfbærrar þróunnar en það er bara ekki nóg heldur verðið þið að virða náttúruna.

Íbúar Ástraliu þjást um þessar mundir og villt dýr þar sem öll vatnsból þurrkast upp í 45c hita að jafnaði dögum saman og æti orði framhald á þessu svo og að öll Sahara eyðimörkinn verði þakinn 1 metra snjólagi.

Eiturefni eru víða sem þið hafið framleitt og skilið eftir en þau eyðast ekki af sjálfu sér og þau takið þið upp í líkama upp mmeð ýmsu móti.

Við höfum ekki bein afskipti af hinum Cosmiska heimi en ég hef áður sagt frá miklum breytingum náttúrunnar og orkunnar en fuglar eru afar viðkvæmir fyrir þessu en við fylgjumst með en þetta verður að ske eigið þið að komast af.

Þið megið búast við miklum breytingum í veðurfari á næstunni en það um allan hnöttinn og erum við að skoða hvað við getum gert ykkur til aðstoðar en raddir hér segja þau fara ekki eftir því.

Það eiga eftir að vera mikil átök á hafsbotnum víða um heim eldfjöll munu spúa eldi og hafið á eftir að ganga á land viða en sjávarstaða fer hækkandi sem aftur leiðir til enn stærri vandamála fyrir sum lönd.

Varðandi spurningu þína að þá er það ekki frekja að spyrja hvort hægt sé að setja fram óskir til okkar um ákveðna leiðbeinendur á sviði miðlunar þar sem þeir stýra samskiptum á fundum er til að svara að við tökum vel í slíkt en þá er margs að gæta.

Orkan þarf að passa sem farvegurinn hefur og því orkusviði sem stjórnandinn hefur og passi þetta saman og hann sé samþykkur þá er þetta ekki fyrirstaða.

Þú spyrð um veikindi barna. Því er til að svara að alvarleg veikindi barna eru ekki af okkar völdum heldur genagallar viðkvæms líkama í upphafi sem getur allt frá unga aldri og löngu fyrir ætluð lok í jarðvistinni komið yfir til okkar og við því er ekkert að gera.

Þau hafa orðið fyrir miklum áföllum vegna þessa galla sem verður á kynæxlun en við geturm ekki hjálpa til í þeim efnum þetta er farvegur viðkomandi sálar og manneskju þar til yfir líkur.

Það er ekki skrifað í sálina að viðkomandi eigi að hafa stutta viðdvöl í jarðvistinni heldur lífshlaupið almennt en mannslíkaminn er ófullkominn að því leiti.

Ljósberarnir þurfa ekki að óttast að einhver komi að í slíkum miðlunar samböndunum sem ekki hefur heilindi til starfans frá okkur enda slíkt óhugsandi.

Þú spyrð um Mayja indiánana og Nostradamus sem þér var sýndar myndir af þá var þetta hluti af stærri heild sem er að koma til þín en iniánarnir voru sérstakir mjög hlédrægir vel gefnir en þeir voru allir á hærri tíðnisviði og vitund en mannfólkið í dag og gátu því tekið við þekkingu og boðum frá okkur án notkunnar tækja sem þeir þó smíðuðu með okkar tilsögn til þess að hafa eitthvað fyrir stafni og til að vinna þeirra skilaði frekari trúverðuleika að þeim gengnum þeir voru skapaðir sem mannólk ekki geimverur eins og menn hafa skrifað í söguna.

Hvað þig varðar þá tekur þú með þér í þessa jarðvist sem áður hefur verið gert og heldur áfram á þeirri þróunarbraut með nýjum upplifunum til viðbótar því sem þú áður gerðir og á einhverjum staðartíma finnast þér hlutnirnir kunnuglegir en áttar þig ekki frekar á þeim strax.

Hvað almanakið varðar þá táknar það ekkert sérstakt að það skuli enda í árslok 2012 og annað tekur við það sama átti við Nostradamus hann hafði alla eiginleika miðlunar og gat því með okkar hjálp og þjálfun skráð niður til seinni tíma skoðunnar.

Þetta endurspeglar ekki neitt sérstakt en þetta má segja að hafi ekki verið skrifað lengra þar sem þess gerðist ekki þörf.

Megintilgangur var að upplýsa þig um lifnaðarhætti og forsögu þessara aðila á þeim tíma til notkunar síðar á þínum ferli.

Sú tortryggni þjóða í milli hver sé öflugastur hefur ekkert með daglegt líf fólks að gera heldur eru þetta egoistar og sjálfsdýrkendur í öllu sínu veldi engum til góðs og hinn nýji forseti Bandarikjanna slær öll met að okkar mati í sjálfsdýrkun.

Þú varst búinn að segja fyrir um þetta í spá þínum árið 2010 að fram á sjónarsviðið kæmi persóna sem ylli því að skrifa þyrfti veraldarsöguna upp á nýtt og er ekki fjarri sanni og hættulegt eigi að síður að útvista allt að 600.000 þúsund manns eftir 20 ára dvöl að þá fari það bara út fyrir landamærin og sæki aftur um landvist með fullum réttindum ekki námsmaður eða neitt slíkt því að þeir munu eins og Canadamenn herða inngöngu skilyrði að viðkomandi hafi eitthvað til þjóðfélagsins fram að færa.

Mannfólkið verður að fara að taka höndum saman um að mynda frið og kærleik sín í milli eigi jörðin ekki að líða undir lok.

Persónulegar upplýsingar fékk ég um núverandi störf foreldra minna sem er fyrir mig einan.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.