mánudagur, 18. janúar 2016

Þú ert fljótlega að leggja af stað í ferðalag.

Endurrit af fundi með aðstoðarkonu, og ég hallaði mér aðeins niður líka og niðurstaðan varð sú að allt fylltist af fólki að mér fannst.

Fyrst var tekið fyrir bókarskrifin sem gengið hafa brösulega því ekki er hægt að halda sambandi á meðan, og bent þeir á dictaphone sem prýðis gott tæki til þeirra verka og fá aðstoð við vélritunina.

Samt sem áður muni ég fá mun betra næði og frið frá þeim með þessari vinnslu, en ákveðið hefur verið að setja bókaskrifin á frest vegna annarra aðkallandi verkefna.

Ég fæ til min risavaxna ljósveru í hvítu, og geislar af henni og var hann heldur hærri en Georg munkurinn minn sem alltaf er með mér.

Þessi vera er komin til að hjálpa mér að komast af stað með heyrnina og skynjunina, en allt er opið en þjálfunina vantar og eins og ég sagði að ég hefði stangað staura í langan tíma án árangurs.

Nú koma miklar og innilegar þakklætis kveðjur frá þeim öllum fyrir fórnfýsina og þrjóskuna að gefast aldrei upp.

Málið snýst um að koma hugsuninni á einn stað kallað ego, og að ég skuli ekki hafa áhyggjur af því þótt mér finnist að orkan sé að detta niður, en því fer víðs fjarri, heldur er verið að loka fyrir neðri sviðin og færa mig ofar í kristsorkunni til að vinna með aðilum þaðan bæði læknum og fræðurum.

Fyrir þennan fund, og í tilefni að fimm ára samvinnu okkar að fá að vita deili á þeim helstu, en ég telji að kona sé minn æðsti stjórnandi.

Þessu var vel tekið og rétt til getið með stjórnandann sem hafi unnið við þetta í þúsundir ára, og allt í kring um hana eru glitrandi hvítir hringir og að mikil viska streymi frá henni og kærleikur, og líki henni vistin með mér vel.

Nafn hennar byrjar á S eða Z og verður leitað uppi.

Það kom mér verulega á óvart að hún er ekki bara æðsti stjórnandi minn, heldur vinni hún með nokkrum útvöldum friðarpostulum um allan heim en þeir séu fáir.

Næsti stjórnandi undir henni stýrir heiluninni, og það hafa verið gerðar breytingar á teyminu tveim skipt út, fyrir aðra tvo á hærri tíðni sem ég er komin á núna.

Hún stillir engla orkuna, og er verið að keyra hana meira upp þar sem mjög sérhæfðir sérfræðilæknar en þeir séu á mun hærri tíðni en ég var á en þetta sé alls ekki gert fyrir mig prívat heldur er þetta þjálfunarprógram að handan þar sem menn eru sendir í jarðvistina og aðir koma til baka með nýja visku til deilingar meðal þeirra til samanburðar.

Varðandi englaorku tenginguna að þá er hún komin á og tók verulega á mig og konuna sem var mér til aðstoðar, en það þarf einhver að vera hjá mér á meðan, vegna þess ef eitthvað kæmi upp á líkamlega.

Englaorkuna þá sterkustu tengingu sem hægt er að sækja og fáir hérna megin þola, þurfti að setja á vegna ákveðinna verkefna sem nýir læknar koma með til vinnslu með sjúkum, bæði á andlega og líkamlega sviðinu.


Þá er að koma vera sem er sér instillt á andleg vandamál, en nú kemur nafnið á stóra manninum að hann kallast Sebastian.

Þú ert að fá fleiri og fleiri pakka, og þeir hafa áhuga á Cycik Sergery eins og ég, sem nýtist á fjarlægum slóðum og engir læknar eru til staðar fyrir fólkið sem þar býr.

Nú kemur hann Georg nær mér og samstarfs miðillin spyr hvort að ég kalli hann Georg og mitt svar er já. Hann leggur báðar hendur á axlir mínar og segir að öll góðverk gleymist aldrei og ég sé vel studdur.

Verið er að byggja stóra hvíta brú með gylltum handriðum, og spyr ég hvort að mín sýn að það muni maður frá þeim koma labbandi um leið og annar maður héðan úr jarðríki komi á móti honum, og er svarið já það mun verða svo.

Þá berst fundurinn að veðráttu um allan heim og tel ég mig sjá harðan vetur Vestan og Norðanlands, og svarið kemur að sýnin sé rétt og það muni verða íslensku þjóðinni til happs að vera vön köldum vetrum en mannfall verði víða á Spáni, Ítalíu og löndunum í kring vegna þessa fimbulkulda og víða í löndunum í kring en hýbíli okkar eru þannig gerð að þau þola harða vetur, en kuldatölur eru okkur ókunnar.

Og síðan um sumartíman verði næstu þrjú árin mun meiri hitar en hafa verið bæði í Evrópu og Afríkulöndum, þar sem fé og fólk hríðfalli vegna hitastings, vannæringar og vatnsskorts.

Konan í hvítu klæðunum kemur nær okkur með skilaboð, að hún sé ekki alltaf hér bara stöku sinnum að sækja mig og fara með mig um heiminn, en fyrst ætli hún að kynna mig fyrir Dalai Lama, Gandi og fleiri friðarpostulum sem eru sem slíkir í sálinni algerlega flekklausir.

Þú ert fljótlega að leggja af stað í ferðalag einn eftir brautum jarðar þar sem þú munt yfirgefa fyrri tíðnir og fara inn á nýjar en það taki smá tíma vegna styrkleika sem þarf til að vinna með orkuna sem hún gefur.

Þú munt hitta á leiðinni engil sem hefur aldrei verið í jarðvistinni og hann setur sína tengingu á þig og sendir inn í sálina gleði léttleika og gáska sem smá þakklæti fyrir allt þetta sem ég hafi nú þegar lagt á mig fyrir þá meira að segja nánast beint af skurðarborðinu og þú opnaðir augun.


Fjölskyldur hafa verið að fara frá Evrópu til ýmissa Múslima ríkja svo sem fjölskylduparadísin og vatnakemmtigarður sem nýleega var opnaður, þá er mikill misskilningur að það hindri heilaskaðaða IsIs menn um að fara inn á þetta griðland fjölskyldna sem getur breyst í blóðbað á skömmum tíma.

Við óskum eftir því sérstaklega, að þú farir ekki af landi brott fyrr en við teljum það óhætt þar sem svo mörg óhæfuverk eiga eftir að skella á friðelskandi þjóðum bara vegna trúarbragða Kristinna.

Að lokum sendum við kærar kveðjur til allra þjóða og þjóðarbrota sem vilja lifa saman og taka þátt í gleði og sorg hvers annars, en vopn verða ekki leyfð, en við munum sjá til þess að nægt rými á ýmsum stöðum í heiminum hvort það er Indlandi, Ítalíu, Somalíu eða Arabaríkjunum sem eru í rúst, og misþyrming á börnum verður ekki liðin.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.