mánudagur, 14. mars 2016

9. Kafli. Samfélagsleg ábyrgð miðils við sín störf.

Hann þarf að aðgæta vel heilsu sína, hvílast vel fara í gönguferðir sem hann á ekki tosa okkur með sér í slíkar ferðir, og er alger óþarfi er að eyða stórfé í þessar æfingahallir sem þið hafið.

Nýtið hinar himnesku laugar og vatnið sem gefur ykkur 100 falt meira í árangri og rómönsk gufuböð á eftir en röskir reglulegir göngutúrar toppa allt.

Þá eruð þið jarðtengd og ef kostur er á smá sandströnd, farið þar um berfætt og látið sjóinn ná upp að hné og finnið orkuna sem þaðan kemur og svo má ekki gleyma hrauninu og holunni góðu sem okkar farvegur fann við Þrídranga á Snæfellsnesi og steinsofnaði á meðan við fórum í viðgerðir hleðslu og fleira en frúin gekk að dröngunum á meðan og okkar maður var eins og nýr maður á eftir.

Þeir sem ætla sér umbreytingaleiðina þurfa sérstaklega á þessu að halda, og hreinleika líkamans enda tekur þetta form miðlunar verulega á hann og er ekki nýtt nema til sýningarhalds þótt við séum á móti slíku, álagið á nýrun og brisið er það mikið.

Jákvæði og neikvæði miðillinn hver er munurinn. Sá jákvæði veit hvað hann vill leyfa okkur að ganga langt og smá hluti heilans er virkur hans megin til að vakta að ekki sé farið yfir strikið hvorki í orðum eða verki.

Strikið merkið dónaskap orðbragð fullyrðingar sem ekki standast og svo framvegis.

Við slettum ekki fram dólgsyrðum til fólks það kemur frá miðlinum sjálfum.

Við getum sagt að þetta sé nokkurs konar kappleikur milli okkar og hugsunar heilans að ná settu jákvæðu marki og vellíðan streymi um hann sjálfan og þá sem eru viðstaddir hjá honum.

Þá gefur þetta okkur færi á að hleypa á æðstu verum með gifurlega þekkingu gegn um aldirnar og veita ykkur fróðleik einskonar fyrirlestur sem enginn hefur heyrt áður hvernig menn hugsuðu fyrr á öldum hvað breyttist í tímans rás og eins og spámaðurinn sagði þetta er akademiskur fundur ekkert minna.

Veikburða miðillinn sem hefur öll réttu tólin og tækin til að vinna að fullum heilindum en vantreystir sjálfum sér svo mikið að hann getur ekki gefið okkur eftir stjórnina nema að litlu leyti og vill alltaf vera að gægjast eða hlusta á það sem kemur þótt við værum búin að útbúa fyrir hann vistarverur til dvalar meðan á fundi stendur eins og hinn en dugar samt ekki.

Spéhræðsla kemur þarna upp um eitthvað sem komi frá honum verði svo asnalegt eða hlæilegt sem er alger firra.

Þegar farvegurinn okkar sest að eins og núna loksins við skriftir að þá koma saman í bókastofu mestu spekingar sem uppi voru Socrates og fleiri sem ráða ráðum sínum sem einn hvað sé best að láta fara að þessu sinni.

Það eru því miður hættur sem fylgja transmiðlun eins og okkar farvegur stundar og þess vegna þarf líkaminn og hugurinn að vera í fullkomnu lagi og engin hræðsla en hafa þetta samt í undirmeðvitundinni að andlegt álag á líkamann meðan á fundi stendur er mikill.

Þó að við stöðvum alveg meltingarfærin þá þurfa hin enn meira afl svo sem litli heilinn brisið lungun og nýrun og þess vegna hefur hann alltaf sömu líflæknana hjá sér þegar hann er við störf hann veit hverjir þeir eru og treystir þeim 100% annars væri þetta ekki hægt með svo háar tengisúlur sem hann er að taka við og gæti orðið honum að fjörtjóni ef ekki er gætt fyllstu varúðar.

Við erum að ýta við honum að fara nú út í þjálfun hvort heldur til Bretlands eða Paul Jakobs sem hefur álika sterkar tengingar og hann en hann fann það í Bretlandi að sumir kennararnir voru hálf smeykir við hann sérstaklega eftir langar þjálfanir.


Libby var alveg róleg yfir þessu og var með tíma í transi og hvert við færum mældur var blóðþrýstingur fyrir og um miðju timabils á niðurleið og púls og svo aftur þegar upp var komið.

Ég fann ekkert fyrir þessu þótt miðjuþrýstingur ryki upp í 290 en í lokin komin í 120 en þarna á milli er gríðar bil og þetta gerðum við daglega 10 saman í 6 daga en enginn fór eins langt og ég og Libby sjálf gat ekki fylgt mér eftir þoldi ekki svona mikinn þrýsting frekar en hinir og sjálfur hafði ég engar skýringar á þessu.

Tekið var á móti mér á niðurleið og leiddur um hin ýmsu völundarhús sem hvert hafði að geyma inngang í tiltekna öld en aðeins var farið framhjá en mér leist ekkert á steinöldina og það sem fyrir augu bar þar og spurði skýringa og svörin voru að til þess að fá fyllingu í tíma og rúmi þyrfti ég að skoða þetta timabil lika.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.