For those who want to read the articles on this page, you can change their language by clicking the button on the right of the page ( G Välj språg )
Átti með minum mönnum smá fund í morgun þar sem ég fann að eitthvað alvarlegt sé í aðsigi.
Heimurinn mun taka á sig nýja mynd sýnist mér þegar að ég skoða aðeins inn í framtíðina.
Trump er að slíkt glappaskot að 2 ráðgjafar hans úr innsta hring yfirgáfu skútuna með þeim orðum svona gerum við ekki.
Hvað sem því líður hafa stærstu aðilar í viðskiptalífinu á heimsvísu tjáð sig um þetta mál og sent honum kaldar kveðjur.
Fyrir október verður borin fram vantrausttillaga á hann í þinginu og hann settur af með skömm.
Allt gott sem búið er að gera fyrir íbúa landsins er í hættu ýmist þegar útstrikað og annað í endurskoðun en hann ætlar að hafa þetta sem viðskiptamódel í anda Trumps og þið skuluð hlýða.
Þeim finnst sárt að þessi valdamikli maður skuli einn forseta í sögu þeirra hafa her manna á skrifstofunni þegar hann undirritar tilskipun gegn íbúum landsins.
Við vorum búnir að vara við á fundum og láta ykkur vita um yfirvofandi hættur og ber fyrst að nefna Múslima sem berjast á banaspjótum við sitt eigið fólk og hika ekki við að drepa tugi manna og örkumla fleiri hundruð með þessari sprengingu í fyrradag og þeir munu aftur láta til skara skríða gegn mankini.
Við höfum marg varað við því að stríðsrekstur gagnast ekki gegn trúarbragðadeilum og engu ríki hefur tekist að handsama forsprakka þeirra þá allra æðstu.
Israel mun fjarlægjast Trump sem er ekki hrifinn af ráðamönnum þar og ætlar ekki að gefa þeim loftvarnavopn og önnur hergögn og þotur án þess að greitt sé fyrir þau og samið um verð.
Skattpeningar launamanna í Bandaríkjunum eiga ekki að fara í að greiða fyrir hergögn til annarra þjóða.
Mikið kvalræði hrjáir íbúa í Grikklandi og lífið murkað miskunnarlaust úr því með svelti og afskiptaleysi.
Ráðamenn hafa ekki skoðað þýfi frá Sýrlandi vegna oliusölu sem er á nafni eins aðila í forðageymslum Seðlabanka Swiss.
Enginn þar á hefur spurt hvaðan þetta fé sé tilkomið og er svo einnig um Afganistan og Bagdad.
Höfundi Islam óraði ekki fyrir að á bókinni góðu yrðu gerðar veigamiklar breytingar frá hans texta í upphafi en þetta átti að sameina fólk í samlyndi og sátt en sé notað sem vopn og stríðstól sem hryggir hann mjög.
Auðvita eru slæmir en margir innan samtaka skæruliða sem sífellt stækka eru mjög hættulegir mankyni þar sem þeir deila sínum skoðunum um hálfan hnöttinn og Inland verður næst í röðinni að henda Hinduism og taka upp þeirra hver með góðu eða illu.
Við sjáum að hann ætlar ekki að láta N.Kóreu manninn stuttfætta stríða sér og kveikir bál á öllum Kóreuskaganum vegna eldflaugatilrauna.
Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.
Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu
____________________________________________________
Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.
Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig.
.
GESTABÓK.