miðvikudagur, 20. janúar 2016

Hún glitraði í kvöldskyninu ?

Góðir hálsar, Guð veri með ykkur öllum, ég er búinn að finna stjórnanda minn Santissma Triande.

Sofnaði vært í gærkveldi en var vakinn Kl.01.30 til að fara í stólinn og nú einn, þar sem nægt hjálparlið var á vettvangi við þessa hátíðlegu, athöfn sem ég vissi ekkert um.

Georg var óvenju nálægt mér, og hélt um báðar axlir á meðan annar vafði silfurstöngum um báða ökla mina og festi kyrfilega, hann fór með mig í göngutúr að litilli á sem ég þekkti strax og sá brúna fallegu.

Hún glitraði í kvöldskyninu, mér var ýtt inn á brúna og þá heyrði ég rödd sem sagði, þú er öruggur kondu yfir til okkar, á móti mér kom hávaxin kona í hvíta kjólnum sem sindraði af og mættumst við á miðri brúnni.

Hún sagðist ætla að umvefja mig með sjölum sínum og orkunni sem þeim fylgdi, og væri hæðsta tíðni sem mannleg vera gæti komist á en ég þyldi, þetta var samkvæmt rannsóknum þeirra, en ég væri viðkvæmari í sálinni og kæmist við af frekar litlu tilefni.

Hún sagðist vera búin að skipuleggja annan fund, þar sem ég myndi nú verða tekin í postulatölu með Dalai Lama Budda heilagri Jóhönnu og Sebastian sem væri ekki hans rétta nafn en sætti sig við það sem St Garmain.

Farið var í afvikin klettaskúta í Fjöllum Tibet til að klára hringtenginguna, og hér eftir myndum við vinna sem einn og finna fyrir tilveru og hugsun hvors annars.

Þessir fyrirlestrar sem farvegurinn hefur verið að sækja að undanförnu eru ágætir sem slíkir sem segja ekki söguna á bak við, og Holy Grail en hann ætti ég að þekkja þar sem hann og ég voru eitt á sínum tíma Fransis of Assisi.

Honum var afhent sakramentið til varðveislu og þýðingar ásamt 7 munkum úr Musterisreglunni, en Heilagi Fransins var æðstur þeim öllum.

Honum varð strax ljóst að við gætum aldrei lifað samkæmt þessum sáttmála, og skrifuð voru boðorðin 12 og fækkuð í 10.

Allt varð þetta að gerast með mikilli leynd, og eitt og eitt blað dreyfðist um alla norður Ítaliu þar sem klausturmunkar gættu þeirra.

Bikarinn fallegi var smíðaður af reglubróður þeim besta sem fannst, og merki riddaranna skreyta brúnir hans, á bortn bikarsins er áletrun sem ég get ekki lesið, en fær tilfinningu eins og blóð krists bikar lífsins að eilífu skaltu verða boðberi friðar og kærleika.

Hann er á borði í sama hellisskúta og líkami krists sem er ekki í Jerusalem heldur í klettabelti og verður sýnilegur postulunum þegar timinn er réttur og fer að nálgast.

Þar inni er borð með leirkrukku og litill stóll, likami hanns er í fullri stærð, óskemmdur hárið ljóst og sítt en ekkert skegg, hver og eitt mannsbarn getur fundið hann í hjartastöð sinni, og séð hann eins og það telur að hann líti út.

Að hafa gengið yfir brúna með sjölin hennar áföst við mig er mjög tilfinningaríkt og vera kominn í þeirra ríki þegar yfir brúna er komið.

Hún segir við mig, ekki vera hræddur og kvíðin fyrir framtíðinni og vandamál munu leysast.

Hryðjuverk halda áfram, og grátlegt til þess að vita að heimamenn í hverju ríki hundruðum saman flytjast yfir til Afriku og ganga í raðir hryðjuverka manna.

Ég mun nú fara með þig til baka svo að þú fáir smá nætursvefn áður en þú ferð með ástina þina í vinnuna eins og þú gerir alltaf.

Hafðu okkar þakkir og blessun fyrir þín störf, og við höfum kynnt víða hvernig þú vaknaðir á sjúkrabeði eftir svæfingu og langa aðgerð og náðir hjálparbeiðnum af barnadeildinni, og fórst strax í málið.

Sycik Sergery er mjög sérhæft verk, en þá munu fingur þínir mjókka og lengjast og þú munt sjá meinin til að fjallægja þau án blóð missirs, nema nokkrir dropar og roði á húð þar sem þú fórst inn með hendina með okkar stýringu.



Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


mánudagur, 18. janúar 2016

Þú ert fljótlega að leggja af stað í ferðalag.

Endurrit af fundi með aðstoðarkonu, og ég hallaði mér aðeins niður líka og niðurstaðan varð sú að allt fylltist af fólki að mér fannst.

Fyrst var tekið fyrir bókarskrifin sem gengið hafa brösulega því ekki er hægt að halda sambandi á meðan, og bent þeir á dictaphone sem prýðis gott tæki til þeirra verka og fá aðstoð við vélritunina.

Samt sem áður muni ég fá mun betra næði og frið frá þeim með þessari vinnslu, en ákveðið hefur verið að setja bókaskrifin á frest vegna annarra aðkallandi verkefna.

Ég fæ til min risavaxna ljósveru í hvítu, og geislar af henni og var hann heldur hærri en Georg munkurinn minn sem alltaf er með mér.

Þessi vera er komin til að hjálpa mér að komast af stað með heyrnina og skynjunina, en allt er opið en þjálfunina vantar og eins og ég sagði að ég hefði stangað staura í langan tíma án árangurs.

Nú koma miklar og innilegar þakklætis kveðjur frá þeim öllum fyrir fórnfýsina og þrjóskuna að gefast aldrei upp.

Málið snýst um að koma hugsuninni á einn stað kallað ego, og að ég skuli ekki hafa áhyggjur af því þótt mér finnist að orkan sé að detta niður, en því fer víðs fjarri, heldur er verið að loka fyrir neðri sviðin og færa mig ofar í kristsorkunni til að vinna með aðilum þaðan bæði læknum og fræðurum.

Fyrir þennan fund, og í tilefni að fimm ára samvinnu okkar að fá að vita deili á þeim helstu, en ég telji að kona sé minn æðsti stjórnandi.

Þessu var vel tekið og rétt til getið með stjórnandann sem hafi unnið við þetta í þúsundir ára, og allt í kring um hana eru glitrandi hvítir hringir og að mikil viska streymi frá henni og kærleikur, og líki henni vistin með mér vel.

Nafn hennar byrjar á S eða Z og verður leitað uppi.

Það kom mér verulega á óvart að hún er ekki bara æðsti stjórnandi minn, heldur vinni hún með nokkrum útvöldum friðarpostulum um allan heim en þeir séu fáir.

Næsti stjórnandi undir henni stýrir heiluninni, og það hafa verið gerðar breytingar á teyminu tveim skipt út, fyrir aðra tvo á hærri tíðni sem ég er komin á núna.

Hún stillir engla orkuna, og er verið að keyra hana meira upp þar sem mjög sérhæfðir sérfræðilæknar en þeir séu á mun hærri tíðni en ég var á en þetta sé alls ekki gert fyrir mig prívat heldur er þetta þjálfunarprógram að handan þar sem menn eru sendir í jarðvistina og aðir koma til baka með nýja visku til deilingar meðal þeirra til samanburðar.

Varðandi englaorku tenginguna að þá er hún komin á og tók verulega á mig og konuna sem var mér til aðstoðar, en það þarf einhver að vera hjá mér á meðan, vegna þess ef eitthvað kæmi upp á líkamlega.

Englaorkuna þá sterkustu tengingu sem hægt er að sækja og fáir hérna megin þola, þurfti að setja á vegna ákveðinna verkefna sem nýir læknar koma með til vinnslu með sjúkum, bæði á andlega og líkamlega sviðinu.


Þá er að koma vera sem er sér instillt á andleg vandamál, en nú kemur nafnið á stóra manninum að hann kallast Sebastian.

Þú ert að fá fleiri og fleiri pakka, og þeir hafa áhuga á Cycik Sergery eins og ég, sem nýtist á fjarlægum slóðum og engir læknar eru til staðar fyrir fólkið sem þar býr.

Nú kemur hann Georg nær mér og samstarfs miðillin spyr hvort að ég kalli hann Georg og mitt svar er já. Hann leggur báðar hendur á axlir mínar og segir að öll góðverk gleymist aldrei og ég sé vel studdur.

Verið er að byggja stóra hvíta brú með gylltum handriðum, og spyr ég hvort að mín sýn að það muni maður frá þeim koma labbandi um leið og annar maður héðan úr jarðríki komi á móti honum, og er svarið já það mun verða svo.

Þá berst fundurinn að veðráttu um allan heim og tel ég mig sjá harðan vetur Vestan og Norðanlands, og svarið kemur að sýnin sé rétt og það muni verða íslensku þjóðinni til happs að vera vön köldum vetrum en mannfall verði víða á Spáni, Ítalíu og löndunum í kring vegna þessa fimbulkulda og víða í löndunum í kring en hýbíli okkar eru þannig gerð að þau þola harða vetur, en kuldatölur eru okkur ókunnar.

Og síðan um sumartíman verði næstu þrjú árin mun meiri hitar en hafa verið bæði í Evrópu og Afríkulöndum, þar sem fé og fólk hríðfalli vegna hitastings, vannæringar og vatnsskorts.

Konan í hvítu klæðunum kemur nær okkur með skilaboð, að hún sé ekki alltaf hér bara stöku sinnum að sækja mig og fara með mig um heiminn, en fyrst ætli hún að kynna mig fyrir Dalai Lama, Gandi og fleiri friðarpostulum sem eru sem slíkir í sálinni algerlega flekklausir.

Þú ert fljótlega að leggja af stað í ferðalag einn eftir brautum jarðar þar sem þú munt yfirgefa fyrri tíðnir og fara inn á nýjar en það taki smá tíma vegna styrkleika sem þarf til að vinna með orkuna sem hún gefur.

Þú munt hitta á leiðinni engil sem hefur aldrei verið í jarðvistinni og hann setur sína tengingu á þig og sendir inn í sálina gleði léttleika og gáska sem smá þakklæti fyrir allt þetta sem ég hafi nú þegar lagt á mig fyrir þá meira að segja nánast beint af skurðarborðinu og þú opnaðir augun.


Fjölskyldur hafa verið að fara frá Evrópu til ýmissa Múslima ríkja svo sem fjölskylduparadísin og vatnakemmtigarður sem nýleega var opnaður, þá er mikill misskilningur að það hindri heilaskaðaða IsIs menn um að fara inn á þetta griðland fjölskyldna sem getur breyst í blóðbað á skömmum tíma.

Við óskum eftir því sérstaklega, að þú farir ekki af landi brott fyrr en við teljum það óhætt þar sem svo mörg óhæfuverk eiga eftir að skella á friðelskandi þjóðum bara vegna trúarbragða Kristinna.

Að lokum sendum við kærar kveðjur til allra þjóða og þjóðarbrota sem vilja lifa saman og taka þátt í gleði og sorg hvers annars, en vopn verða ekki leyfð, en við munum sjá til þess að nægt rými á ýmsum stöðum í heiminum hvort það er Indlandi, Ítalíu, Somalíu eða Arabaríkjunum sem eru í rúst, og misþyrming á börnum verður ekki liðin.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 17. janúar 2016

Blessun sé með yður öllum.

Við ákváðum að fá farveginn okkar í örari skrif og æfa hann fyrir skriftir að seinni sáttmálsörkinni Bók sannleikans.

Þið hafið fengið viðvörun frá okkur um þann mikla fjölda einstaklinga sem þið hafið búið húsaskjól eftir hrakninga yfirhafið en allt eru þetta ungir menn og tilgangur og tilvera margra þeirra er ekki að launa ykkur lífgjöfina heldur koma á Íslömsku ríki með Scharialögum fyrir hinn vestræna heim og hann lúti vilja Alla.

Það má ekki ske og við munum eftir mætti reyna að koma í veg fyrir að svo verði en við ráðum öllum frá Vesturlöndum að halda sig við heimahagana og stiga ekki fæti á músmliska jörð sem er óhrein og Yatollan þeirra hefur bannfært alla kristna menn sem heiðingja og réttdræpa þar sem til þeirra næst.

Berlin er í hættu núna vegna yfirvofandi voðaverks og Bretland lika hjá Tower og London og þar þurfa allir að vera varir um sig.

Gleymið því ekki að konur í Burka eru burðarberar sprengjuefna i mörgum tilfellum þótt grátlegt sé, og að bera fé í ungmenni jafnvel frá heimalandi sínu til að fremja þar voðaverk eru svik við almættið.

Þeir heimsku menn sem halda að trúarbrögð heimsins séu ekki frá sama geisla hvernig sem þau lita út er að glepja mönnum sýn á raunveruleikann.

Það er bara einn geisli sem dreifist inn á marga en því miður er markt af því mistúlkað á kostnað kvenna og barna.

Við höfum skoðað þrældóm á börnum í mörgum löndum og það á ekkert skylt við fjölskyldulíf sem á að vera heilagt hverri fjölskyldu á jafningjagrunni ekki þrældómi kúgun eða ógn á annan hátt.

Þið lærið kanski ekki fyrr en holskeflur hafsins skella á ykkur og kaffærist, eða sandstormur sem grefur heimili ykkar á kaf og virðist svo sem að það sé eina leiðin til að fá ykkur til að hugsa.

Enginn gaf ykkur leyfi til að tortima jörðinni með því að rífa hana upp byggja steinkumbalda án þess að virða fornar menjar eins og gert er hér á þessari litlu eyju og hér geta menn lærgt margt en aðgæslu er þörf vegna anddvaraleysi ykkar og trausti á nágrannakærleika byggt á rústum gamalla hefða allt aftur í aldir.

Hér voru bændur víða um land um 710 sem voru fyrstu landnámsmennirnir, og þess vegna var hinn heilagi kaleikur falinn hér á landi í helli einum.

Myja þjóðflokkurinn sem dæmi var hluti af okkur og þeir voru svo móttækilegir fyrir orkunni að við gátum unnið og kennt þeim sjálfsbjargarviðleitni og frið en hugleiðsla í hópnum var siðvenja hvert kvöld.

Tilbeiðslur hjálpa mikið og hugleiðsluhópar, en hið slæma er að þar inn á meðal er fóllk sem ekki er heilt í sínu starfi og dregur til sin orku annarra sem ekki ætti að vera og hringjastjórar þurfa að að gæta þess svo og að loka hópnum vel eftir hvern fund.

Við sendum alltaf sendiboð á þessa fundi og tökum við beiðnum og komum til skila á réttan stað, en hjá okkur starfa stórir hópar saman að hinu sama marki og senda til baka á rétta aðila oftast í fylgd lækna um farvegi sína.

Farvegurinn fékk spurningu um daginn sem stóð aðeins í honum eðlilega, hún var svona, hve margir eru okkar megin og svarið er, þeir skipta billjónum á ykkar tölum og reiknilíkönum og hér er aldrei þögn slíkt þekkjum við ekki.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


laugardagur, 16. janúar 2016

Spá um daginn og veginn og hvað ég sé í kortunum fyrir Island 2016 / 2017

Veðurfar verður rysjótt hér sunnanmegin, en kalt fyrir norðan og sýnist mér að haust og vetur frjósi saman aftur, en búast má við byljóttu veðri og grasspretta veruður með lakara móti.

Ástarmál norðlendinga eru sum hver köflótt talsvert um makaskipti hjá þekktum aðilum, en gasið virðist grænna sunnanmegin við hólinn og þangað leita hungraðir úlfar og finna fermon lyktina af konunum.

Reykvígingar eru lítið betri sýnist mér í ástarmálum, og þeim fjölgar hjónaböndum sem eru rekin eins og litið fyrirtæki engin neisti og engin atlot og slíkt varir ekki lengi.

Það er eins og fólk kunni ekki að tjá sig á réttan hátt án þess að allt fari í háaloft.

Við fáum okkar skammt af jarðskjálftum, og eldgos er inn í kortunum en sá fjöldi ferðamanna sem menn sáu í kortunum munu ekki koma fyrr en í ágúst - sept til kælingar vegna ofsa hita sem munu geisa víða um álfuna, og gengi okkar mun haldast hátt þrátt fyrir fjöldauppsagnir í fyrirtækjum sem munu draga saman seglin eftir 1 februar, vegna minkandi verkefna og aukins launakostnaðar, sem enginn virðist hafa tekið með í reikninginn.

Atvinnuleysi allt upp í 30% mun geisa á Evrusvæðinu, og Bretar eru í vandræðum með pundið sitt sem er allt of hátt fyrir útflutningsvörur.

Janet Yellen, seðlabankastjóri mun hækka stýrivexti í USA og hleypa úlfum af stað og fjöldagjaldþrotum og Draki seðlabankastjóri ESB verður knúinn til að hækka stýrivexti upp í 0.9% í fyrstu umferð.

Mér sýnist að seðlabankinn hér hækki aftur vexti bara til að hafa varann á þótt enginn nauðsyn sé á slíku fyrr en í ársbyrjun 2017.

Heilt yfir ríkir bjartsýni yfir þjóðinni sýnist mér þótt einn og einn mánuður verði ekki eins bjartur og austfirðingar munu liggja illa í að hafa Framsókn við stýrið og ekki útilokað að vantrausttilaga komi fram á ríkisstjórnina í byrjun þings.

Samkrull okkar við Asiubankann mun veita mikla eftirtekt þótt við höfum litið þangað að gera nema vegna viðskipta og svo gæti farið að útflutningur þangað í stað Rússlands muni aukast og ekki útilokað að sendiherra okkar verið kallaður heim til skrafs láti Pútin ekki af refsiaðgerðum gegn okkar þjóð og leggi í rúst 50 ára vinskap.

Þetta er dagatal Myjanna Indijánana, klikkið á myndina ti að stækka



Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Þekkir þú börn með ADHD, streytu, kvíða og vanlíðan ?

Hversvegna ekki að reyna Heilun hjá Þór Gunnlaugssyni.

Heilari þarf að skynja ástand sjúklings sem til hans kemur enda erum við oftar en ekki síðustu útverðir hans, þegar allt annað hefur verið reynt.

Fjarheilun er framkvæmd í gegn um bænina en aðeins er nauðsynlegt fyrir mig að hafa nafn sjúklings og heimilisfang, sé til mynd af sjúklingi þá er hægt að senda mér hana í tölvupósti, eða bréfapósti ásamt ósk um fyrirbæn en engar aðrar upplýsingar svo sem um sjúkdómin.

Sé send mynd af sjúklingi þá prenta ég myndina út, held á henni og tengi mig beint við sjúklinginn með þeim hætti.

E - mail: thorgunnl@gmail.com



Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


föstudagur, 15. janúar 2016

Trans er leiðin inn í hið innsta í lífinu.

Hann bæði gefur og tekur það óæskilega í líkama farvegsins allt eftir því hve náinn kynnin verða með hjálpendum sínum, þó ekki eins og að labba að næsta manni og spyrja hann Treystir þú mér.

Nú tala ég bara um mig sjálfan og hvernig við höfum tekið saman hönum um að vinna eins og þeir vilja að sé gert, og smátt og smátt gaf ég þeim eftir meiri stjórn á því sem við unnum við, aðallega lækningunum og í sumum tilfellum þarf ég að gefa þeim allt að 85% stjórn á heilastarfsemi og líkama þar sem melting er aftengd meðan á vinnu stendur, enda tekur það óþarfa orku í vinnslu.

Minir nánustu sjá um dyravörsluna á meðan þar sem í raun tvíhliða leið er opnuð eins og í miðlun, og í raun hvaða jógahugleiðslu sem er og þar þarf að gæta að óvelkomnum sálum sem hafa það eina hlutverk að skemma fyrir og eiga ekki að komast niður, en geta breytt sér í Napoleon Bonaparte Jesu eða hvern þann sem þeir telja að farvegurinn trúi að hann sé að vinna með.

Hætturnar eru miklar en náðargjöfin er ofar öllu þessu ef unnið er á réttan hátt.

Hvert ykkar hefur ekki fundið fyrir mikilli þreytu í mannþröng í verslanamiðstöðum og algerlega búin á því úti á bílastæði, allt er þetta vegna opnunar viðkomandi sem er kanski opin til hálfs nógu mikið til að öskupokarnir eins og við köllum þá hengja sig utan á þá farvegi í leit að hjálp, en oftast eru þetta saklausar sálir sem hafa kosið sjálfar að fá að dvelja hér í þessum heimi en komast ekki til baka.

Með aga og þjálfun er hægt að tengja sig svo júpt í transástandi að auðvelt er að vera meðal þeirra látnu þó ekki inni í þeirra heimkynnum nema að fá boð um það, en þrjú slík hef ég fengið til að skoða mig um og til að fá staðfestingu og dýpri skilning á því sem koma skal.

Tengingin sjálf kemst ekki ema með algerri afslöppun tæma hugann af allri hugsun og gefa sig þeim á vald af fúsum vilja og uppskera í staðinn dásemdir alheimsins og upptökin að stóra kvelli sem dæmi, og ekki er langt í að annar hvellur komi fyrir heiminn þegar Old Faitful í Yellostone þjóðgarðinum springur upp, allir 57 ferkílometrar af honum og það gæti orðið endir á jörðinni eins og við þekkjum hann og milljónir munu farast.

Hér á landi mun staðurinn Bárdarbunga einnig springa í loft upp vegna vatns sem gusast ofan í glóandi hraunleðju sem er að safnast í kvikuhólf sem er óðum að fyllast þótt engin dagsetning sé komin.

Í djúpu transástandi er hægt að fara úr hylkinu og fara um loftin blá með þeim hvert um heiminn sem er á örskotsstundu, þar sem þeir geta breytt tima og rúmi á auðveldan hátt þannig að aðeins taki nokkrar minútur að fara þvert yfir Atlandshafið í líknarferðir en þær eru margar sem þeir taka mig með í til að eflast og þroskast og um leið sjá heimsku mannfólks sem drepur mann og annann ásamt börnum algerlega af tilefnislausu.

Þegar þessar sálir koma yfir til okkar að gera grein fyrir sér í smáatriðum tekur það hundruði ára að ykkar timatali, en fyrr en að því loknu eiga þeir ekki von um að komast áfram á þróunarbrautinni.

Þið hafið af góðvilja hleypt til Evrópu tugþúsundum manna sem ekki eru með fjölskyldur og hafa þann tilgang í fyllingu timans og svara ákalli hefndar og mannfórna, en við því getum við ekkert gert þetta var ykkar að meta og skoða hvers vegna allt þetta fólk var að flýja heimahagana í fyrsta lagi og af hverju það valdi ekki lönd þar sem tunga þeirra er töluð.

Hundruðir þúsunda hafa farist við að komast til fyrirheitnu landanna sem þeim var lofað, en af hverjum ? Antikristi og áhangendum hans.

Þriðja heimstyrjöldin er þegar hafin, og mun breiðast út meðal Vesturlanda sem hafa talið það skyldu sína að leggja lönd annarra þjóða í rúst og hrekja íbúa á flótta án þess að koma þeim til hjálpar og einnig munu þessir menn þurfa að svara til saka hjá okkur.

Farvegi okkar brá þegar hann heyrði yfirlýsingu Alþjóðastofnunar um að þessi þrjú lönd sem hún geysaði í væru orðin hrein að nýju vitandi það að slík væri fyrra þar sem menn tóku ekki með þá staðreynd að villt nagdýr í jörðu lifa á líkömum þeirra sem jarðaðir voru vegna sóttarinnar og breiða hana þannig út.

Hún mun því gjósa upp aftur og til viðbótar Lömunarveikifaraldur þar sem hjálparliðar komast ekki til barna og ungmenna með mótefni við veikinni og í heimsku sinni dæmt þjóðir þær sem faraldrarnir munu geisa til tortimingar.

Svartidauði og Mislingafaraldur mun fara af stað meðal fólks sem sefur úti varnarlaust gegn skordýrum sem bera þessar plágur svo sem leðurblökur með blóðsogi sínu.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


miðvikudagur, 13. janúar 2016

Slysið í Frönsku Ölpunum.

Þegar ég vakmaði í morgun var ég hress að vanda en um Kl. 10.00 þurfti ég að setjast í stólinn minn með einskonar flensueinkenni, en það var bara ekki það sem að var, ég þurfti að fara til Frakklands eða álíka staðar þar sem eitthvað hafði komið fyrir, og sá ég fjölda barna grafna undir snjónun og virtist snjóflóð hafa fallið yfir þau.

Ég veit ekki hvert mitt hlutverk var þarna en hef verið að ná vopnunum aftur í hendurnar núna síðdegis, þó ég sé ekki enn með fullan krafti um kvöldmatar leitið, en nóttin mun leiða í ljóst hvernig það verður, en við skulum kveikja ljós fyrir börnin ekki bara þarna heldur einnig þau sem hafa soltið í hel í smá horni við borgina Sana og víða annarstaðar.

Ég mun koma með heildarspá fyrir árið 2017 upp úr hádegi á morgun, þegar ég er búinn að koma öllum limmiðunum samman með punktum, en það er ekki glæsilegt framundan.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 10. janúar 2016

Heimsókn í anddyri Guðsríkis

Ágætu lesendur

Ég set inn aftur lýsingu sem týndist af ferð minni inn í anddyri Guðsríkis sem ég varð aðnjótandi að í apríl sl.á þjálfunarnámskeiði í Englandi. Þessi tiltekni kennsludagur var í miðri viku en ákveðið hafði verið af Judith Seaman kennara að fara með okkur dýpra en venjulega og lofa okkur að finna muninn að siga niður eins og í lyftu hægt og rólega og upplifa fullkomna kyrrð og öryggi.

Þegar kom að mér leið mér bara yndislega vel algerlega afslappaður en hafði tilfinningu fyrir því að eitthvað væri í vændum sem ég ætti ekki von á.

Það sem í raun gerðist var svo yndislegt að erfitt er að koma því til skila í rituðu máli en ég ætla samt að reyna. Ég fór niður eins og venjulega alveg sallarólegur enda fullviss um að allt væri öruggt,hliðverðir á sínum stað og verndin í lagi.

Það sem skeði síðan var eins og mér væri kippt inn á hliðargötu og vissi ekki af mér fyrr en ég stóð inn í mjög stóru herbergi með yfirþyrmandi hvítri birtu og sá ég örlítið óskírt í fyrstu sem síðan lagaðist og horfði ég þá beint á látna foreldra mina brosa sínu blíðasta til min og horfði ég á þau alveg eins og þau voru þegar þau fóru yfir.

Mér brá í fyrstu enda vissi ég ekki hvað hafði skeð en þau komu bæði til min og snertu mig og gat ég faðmað þau bæði í huganum og fundið gífurlega tilfinningar streyma um mig enda bergnuminn. Ég gat ekki heyrt hvað þau sögðu en það var eins og ég skynjaði það með einhverjum hætti og komu fleiri þá inn í herbergið og þekkti ég þar meistara minn og aðstoðarmenn ásamt hliðvörðunum mínum sem eru langamma og amma

. Þarna var glatt á hjalla og var eins og hugsanir hvers og eins kæmu til min eins og rafboð í formi ástúðar umhyggju gleði kærleik og stolti allt í bland. Ég hef ekki timaskin á hversu heimsóknin var löng en ég rankaði síðan við mér í skólastofunni og tók þá eftir því að kinnar minar voru tárvotar og einnig á nokkrum samnemendum enda höfðu þeir orðið fyrir miklum orkuáhrifum frá mér án þess að vita með vissu hvað í raun gerðist en ég minntist ekki á það þar sem ég þurfti tima til að melta þetta með mér

. Judith brosti bara blítt og vissi ég að hún hafði skynjað hvað gerðist en hún þagði um það. Síðar um daginn átti ég einkafund með henni þar sem hún er í djúptransi og fer alveg í burtu og veit ekkert um þau samtöl sem fara í gegn um hana til stjórnanda hennar.

Hann kom strax inn á heimsókn mina og upplýsti mig um til þess að fullvissa mig um að þetta hafi í raun skeð að ákveðið hafi verið efra að bjóða mér í heimsókn í anddyri að Guðsríki að þessu sinni sem einskonar viðurkenningu fyrir mig fyrir alla þá vinnu sem ég hafi lagt á mig eins og þeir legðu þau fyrir mig án þess að fara eigin leiðir.

Hann sagði einnig að nokkrir miðlar hafi einnig fengið leyfi til slíkra heimsókna í gegn um tíðina en ekki væri hægt af okkur að biðja um þetta heldur væri þetta alfarið ákvörðun þess æðsta og ég skyldi í framtíðinni undirbúa mig fyrir heimsókn innfyrir í ríki þeirra.

Ég hafði nóg efni til að hugsa um þegar ég lagðist á koddann um kvöldið vitandi það að mig hafði ekki verið að dreyma og á ég þessa upptöku á diski sem ég set í spilarann annað slagið svona til upprifjunar.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


miðvikudagur, 6. janúar 2016

Næturheimsókn og líkamshreinsun í Agra Indlandi.

Góðir lesendur

Ég átti ekki von á öðru en að sofa vel síðastliðna nótt eftir viðburðaríkan dag, en í fyrsta skipti svo að ég muni eftir fór ég í ferðalag í ríki hans þar sem ég var staddur í einskonar glerskápum sem voru þaktir áletrunum á öllum hliðum svipað og sandblásnir stafir í gleri sem ég kannast við en náði ekki að þýða.

Ég virtist fara úr einum glerskápnum inn í annann, og fann mikinn hita koma á móti mér og var eins og húðin væri að slípast og verða ljósari á litinn en á endanum var ég komin í hvít klæði og rankaði við mér í rúminu um miðja nótt hér í Indlandi hríðskjálfandi úr kulda.

Ég þurfti að bregða mér í baðslopp undir sæng til að ná upp hita í skrokknum, en ekki hafði ég tilfinningu fyrir því að ég væri að veikjast á nokkurn hátt og sofnaði ég ekki aftur fyrr en undir morgun þá örstutta stund.

Þegar ég vaknaði aftur var allt í lagi eins og ekkert hefði skeð um nóttina, og kann ég ekki frekari skýringar á þessu, en orðinu ”Hreinsun” sem mér finnst ég hafa heyrt á einhverjum timapunkti.

Samt sá ég nálægt mér, á ferð um glerskápana en skynjaði samt nærveru einhverra sem sendu hlýju og ástúð.

Frúinn rak í rogastans að sjá útganginn á mér, í náttslopp með baðhandklæði vafið um mig en hún hefði ekki orðið vör við neitt.

Hún spurði mig hvort að ég hefði litið í spegil, en neitaði ég því og skrapp inn á bað og sá þá strax að augu mín höfðu breyst þannig að nú voru komnir hvítir stjörnuhringir um báða augasteinanna sem var ekki deginum áður.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


mánudagur, 4. janúar 2016

Blessun Guðs. ( Indland )

Ágætu lesendur

Dagurinn var tekinn snemma hér um kl.07.30 en þá mættu bílstjórinn og leiðsögumaðurinn Pradeep Sharma galvaskir í anddyri hótelsins.

Síðasta spölinn að hofinu þurftum við að notast við rafknúinn vagn en þetta er gert til að vernda hofið fyrir mengun eins og hægt er en granítið er viðkvæmt þótt óslítanlegt sé.

Farið var um garða umhverfis hofið og þess notið í hvívetna en þegar við komum nær hvelfingunni sjálfri þar sem fundurinn átti að hefjast kl.09.00 fór orkusvið mitt að hækka verulega þótt enn væru 30 mínútur í fundinn og fann Pradeep Sharma þetta greinilega þar sem hann stóð ca.1 metra frá mér og lét mig strax vita um þetta enda bergnuminn.

Við komum okkur fyrir þarna inni 10 mínútum fyrir fund og fann ég þá strax að mikil tilhlökkun var í loftinu hjá þeim sem með mér vinna og einnig kom óteljandi fjöldi sála sem ekki höfðu komist í ljósið og biðu hjálpar minnar.

5 mínútum í fund kom ég mér fyrir fast upp við girðinguna umhverfis grafirnar 2 með Pradeep Sharma vinstra megin og frúna til hægri og tengdi ég mig síðan.

Formáli:

Það er afar erfitt að lýsa svona rosalegum tilfinningum á prenti, en ég gerði mitt besta og bý að því enn og þess vegna er þetta aftur sett inn þar sem Google þýðandinn var ekki kominn til skjalana þá.

___________

Það sem gerðist síðan þegar fundur hófst var svo ægifagurt að vart er hægt að lýsa með orðum en mér var kippt í burtu og var staddur á hvítu undirlagi eins og dúnlagi og varð ég var við engla á sveimi og í fjarska sá ég 2 verur sem færðust nær mér og fylgdi þeim undurfögur hörpuhljómlist svo róandi og svo fögur

Sá eldri brosti til mín en hann var með hvítt alskegg klæddur hvítum kufli en sá yngri var með sítt hár og einnig í hvítum kufli og brosandi. Á þessari stundu varð ég alveg agndofa og gat bara ekkert sagt og horfði bara á þá þar sem mér varð ljóst hverjar þessar verur væru almættið og sonurinn

Almættið rétti fram hendi sína og tók í mína vinstri og mælti þú hefur verðskuldað að ganga með hring minn á hendi þinni og heldur nú þróun þin áfram í mínu nafni.

Þú ert fulltrúi minn boðberi ljóss og friðar líknar sjúkum og breiðir út orðið.Þú munt kenna min fræði víða um heim og njóta aðstoðar okkar við það verk

Hann snerti síðan höfuð mitt og mælti hafðu blessun mina að leiðarljósi og þér mun farnast vel.

Að svo mæltu var ég aftur kominn á upphafsstað í moskunni og sá ég ekki betur en tár væru í augum leiðsögumannsins sem kvaðst hafa upplifað slíkt ljós að þetta væri hans besti dagur í lífinu og ekkert gæti tekið það frá honum.

Opnað var fyrir ljósið þannig að sálirnar gætu farið í það og var það yndislegt að finna þakklæti þeirra um leið og þær fóru um mig til ljóssins en þetta tók nokkra stund þar sem fjöldi þeirra var slíkur.



Þegar við komum aftur út úr hofinu var eins og togað í mig að fara í mosku múslima sunnan við hofið á sömu lóð og fór ég bara beint af augum með leiðsögumanninn og frúna á eftir mér.

Lítill turn er áfastur moskunni og þegar ég spurði Pradeep Sharma um hann sagði hann að þetta væri helgur staður múslima sem hefði að geyma dýrgripi þeirra og lokaður öllum og því ekki annað hægt en að horfa á hann.

Þetta var mér ekki nóg og fór ég upp á tröppurnar og snerti hurðina að helgidómnum og með það sama var ég kominn þangað inn og stóð fyrir framan öldung með stóra þykka bók „Bók viskunnar“heyrði ég nefnt.

Hann mælti að ég hefði lykil að henni á vinstri hendi og sneri henni við þannig að ég gat séð letrið sem ritað er á Aramaí tungumáli fyrir Krist.

Það sem þar var ritað og mér gert kunnugt geymi ég fyrir mig enda mér einum ætlað en tilfinningin var slík að ólýsanlegt er á prenti.

Pradeep Sharma stóð nokkuð frá mér með frúnni á meðan ég stóð við hurðina og þegar ég kom til hans var hann eins og steinrunninn og fullyrti að hann hefði orðið fyrir gríðarlegri orku inn í brjóstið en þetta hefði aldrei skeð áður á þessum þremur árum sem hann hafi sinnt gestum í Agra í skoðunarferðum og féllu tár á kinnar hans.

Næst var haldið í gestahöll hofsins norðan við það og spurði Pradeep Sharma mig hvað ég fyndi þar og sagði ég honum það,grafir hlið við hlið ´beggja megin frá suðri til norðurs en stór hvelfing aðskildi herbergin.

Pradeep Sharma skrapp frá og kom aftur með mann sem hann kynnti sem bróður sinn og að hann hefði starfað við hofið í mörg ár.

Honum var sagt hvað ég hefði skynjað og sagði hann það rétt en grafirnar sem slíkar hefðu verið ætlaðar Hindúum sem byggðu hofið en þau brennd fyrst í hvelfingunni,en lítið væri vitað nákvæmlega um hvelfingarnar þar sem ákveðið hafi verið 1931 að loka þeim alveg af ókunnum orsökum.

Síðan var haldið í burtu frá hofinu og heim á hótel með viðkomu í minjagripaverslun en kl.18.00 erum við boðin á heimili foreldra Pradeep Sharma þar sem öll fjölskyldan verður en hann bað mig að skoða föður sinn sem er sykursjúkur meðal annars og var það auðsótt mál.

Einnig bíður systir hans spennt að hans sögn þar sem hún hefur vitað um eiginleika sinn í mörg ár en ekki getað nýtt sér hann en þá.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


laugardagur, 2. janúar 2016

Komist á áfangastað í Indlandi.

29. desember. 2014. Eldra Efni.
Góðir lesendur

Það tók okkur alls 36 klst að komast frá Íslandi til Agra í Indlandi með biðtima á Heathrow flugvelli í London.

Eftir 9 klst flug til Delhi var bílstjórinn mættur með Limosin ( Indversk útgáfa af Toyotu ) sem virðist í þarlendri framleiðslu, hafa minnkað stórlega að innanmáli.

Það má með sanni segja að bílstjórinn Sangri Singh hafi verið loftfimleikamaður með jeppaleikfang í höndunum því að oftar en ekki lokaði ég bara augunum þar sem öllu ægði saman, 4 manna fjölskyldu á skellinöðru, 6-8 manns á ( Riksjaw 3 hjóla vespum fyrir bílstjóra og 2 farþega ), Reiðhjólataxi ( reiðhjól með kerru fyrir 2 farþega ), vörubílum, heilögum kúm og gangandi fólki, allt í bland á nánast einbreiðum götum, og svo ótrúlegt að þetta sé framkvæmanlegt.

Væru göturnar tvíbreiðar þá var bara ekið í þrefaldri röð og bílflauttur þeyttar óspart alla 240 km sem við þurftum að aka frá Delhi til Agra ( tók 5 klst ).

Þetta fólk er afskaplega aðlaðandi í framkomu, en allt kostar pening og bara að horfa á þá kostar 10 rúpiur.

Skreppa til að losa, var mættur þjónn til að opna krana í handþvott og hefur við hendina bréf þurrkur og bros í kaupbæti 20 rúpiur takk.

Ég hef aldrei verið eins þreyttur svo ég muni eftir á æfinni, eins og ég var við komuna á luxushótelið í Agra, sem ég fékk í gegn um ferðaheildsala á spott prís. Svo mikil var þjónustan frá fyrirtækinu sem ég samdi við um að sækja okkur á flugvöllinn og fara með okkur það sem við þyrftum í Agra, og aftur út á völl að einn var mættur í gestamóttökuna til að fylla út innritunargögn þar sem betur fer því að kallinn var bara alveg búinn.

Skoðunarferð Fort Agra


Í morgun mætti bílstjórinn Singh á slaginu Kl. 09.00 en kom með ungan mann Pradeep Sharma með sem reyndist vera leiðsögumaðurinn okkar næstu 2 daga og var haldið til Indverskt Fort Agra.

Eitthvað var í fari þessa unga manns sem ég skynjaði og þegar ég skoðaði hann betur kom í ljós að hann er mjög næmur og trúr, og fékk ég á tilfinninguna að það hafi ekki verið tilviljun að hann mætti sem leiðsögumaður og átti eftir að koma í ljós. Hann kom inn á hótelið þar sem við gátum spjallað saman yfir kaffibolla á meðan Singh beið úti. Þá kom í ljós að pilturinn stundar íhugun og joga og með smá tengingu þá sá ég að hann sæi liti og fengi senda drauma sem alltaf rættust.

Þetta kom á hann enda hafði hann aldrei hitt neinn sem hafi getað séð þetta og eftir smátengingu við hann þar sem hann fann orkuna koma að sér þekkti hann strax hvað var í gangi og varð afar hugsi.

Ég upplýsti hann um systur hans sem væri mun næmari en hann en hlédræg vegna stöðu sinnar og reyndist þetta allt vera rétt.

Lagt var af stað í Fort Agra en þar voru afar sterk áhrif á mig og spurði hann mig oft hvort að ég skynjaði eitthvað á vissum stöðum í höllinni áður en hann útskýrði sjálfur og reyndist það einnig rétt.

Komið var við á heimleið í gullverslun í eigu sömu fjölskyldu, í nærri 6 aldir og keypt þar smávegis en eldri kona klædd rauðri skykkju með gull á hverjum fingri fylgdi mér um búðina en hún var að handan.

Sonurinn rekur þetta í dag en faðir hans háaldrað snyrtimenni var þarna einnig, og fór sú gamla oft í kring um hann. Ég spurði soninn hvort kona hafi verið við stjórn fyrirtækisins fyrir langa löngu og lýsti henni eins vel og ég gat en hann kannaðist ekki við að svo væri.

Ekki var gefist upp og sá gamli spurður og kom bros á andlitið og sagði að langalangaamma hans hafi unnið bak við tjöldin heima við að skoða óunnið silfur gull og aðra eðalmálma, þar sem hún hafi haft þetta í sér að meta rétt gersemi frá rusli en konur hafi ekki mátt vera útivið að degi til.

Hann kannaðist strax við lýsinguna á konunni og klæðnaði og þeim skartgripum sem hún bar enda all sérstæðir teiknaðir af henni og smíðaðir af fjölskyldumeðlimum. Þessi heimsókn til hans var afar sérstæð fyrir hann og ekki síst leiðsögumanninn okkar Praadep að hann varð eins og einhver hafi fært honum gull í hendurnar. Kaffi, vatn á flöskum var bara hluti pakkans fyrir utan smá handsaumað listaverk af heilaga hofinu í réttum hlutföllum 2×2 metrar saumað úr gulli og silkiþráðum á 10.000 dollara en það tók 3 ár að gera það.

Þessu litlu viðskipti sem við gerðum þarna fóru fram að gömlum sið sem sú gamla setti upp í byrjun og viðhaldið síðan.

Eftir þetta var farið heim á hótel í hvíld enda um 40°C og raki eins og í gær. Pradeep var svo hrifinn af eiginleikum minum og því sem ég sá i honum og systur hans er rétt, að hann bauð okkur hjónunum í persónulega heimsókn heim til fjölskyldu sinnar á morgun og var það þegið .

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


miðvikudagur, 30. desember 2015

Ljós í myrkri 2016.

Ég tel mig sjá að Ólafur muni hafna fjárlögum 2016 og hugsanlega rjúfa þing í framhaldinu, og þá bíða Píratar tilbúnir að taka við með jafnrétti að leiðarljósi.

Ég fer á fund þann 7. jan. hjá þeim til að hlusta hvað þeir telja nauðsynlegt að gera til að auka framleiðni og vinnuhraða, sem mun skila arði alveg eins og hjá þjóðverjum og öðrum ESB ríkjum.

Ég vil skoða EES samninginn upp á nýtt, og aðskilja tilskipanir frá ESB þar sem við höfum ekki samþykkt inngöngu þar enn, enn samt erum við búin að vera pínd til að taka upp yfir 70% af þeirra reglum, eða að öðrum kosti verða dregin fyrir Evrópudómstólinn.

Hvernig gerðist þetta, og á hverra vakt ?

Það er þjóðinni lífsnauðsyn að fara af lista viljugra þjóða, þar sem við ætluðum aldrei að styðja hernað inn í annað ríki, eins og komið hefur á daginn.

Þá vil ég rétta Pútin sáttarhönd, og veita Rússum þá aðstoð sem við getum og taka afleiðingum þess, og verða meiri menn fyrir.

Það er enginn nema Obama sem glottir yfir því að keyra milljóna þjóð í gjaldþrot, og Gunnar Bragi ætlar að gera það sama, hér heima leggja þeir niður landvinnslu á 2/3 hluta landsins og tug milljarða tap fyrir hvað ?

Hvern er hann að friða ? Þeir tveir sem gáfu sægreifunum þjóðarauðinn, og þar af annar samflokksmaður hans hafa aldrei skammast sín fyrir tilvikið og því verður að skipta honum út um áramót fyrir annan mýkri.

Bjarni Ben verður að fara líka, annað er ekki hægt báðir flokkar rúnir trausti fyrir ósannindi við gamla fólkið og þar munum við Píratar koma inn og nota stunguskóflu til verksins.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


föstudagur, 18. desember 2015

Leynifundur með þeim.

Haldin var fremur stuttur fundur nú í morgunsárið um Kl.05.00 og þá ákveðið að fara með mig úr ytri líkama og leyfa mér að nota eigin augu til að sjá það sem fyrir ber, og hvað sé að fara að ské í heiminum.

Fyrst af öllu verður algert hrun á öllum pappirsmörkuðum, þar sem innistæður eru ekki fyrir hendi eða verðmæti til að styðja við bakið á skulda og hlutabréfum.

Refskák Yelen seðlabankastjóra USA mun koma harðast niður á heimilum þar sem öll greiðslukort eru full nýtt, en greitt inn á pr. mánuð ásamt vöxtum, en höfuðstóll skuldar nánast óhreyfður sem eru í dag svo háir að þetta sligar heimilin.

Brasilía er á barmi borgarastyrjaldar vegna þjóðarskulda og er gjaldþrota um leið og Ísrael hefur tekið öryggisloka af öllum kjarnorkuflaugum sínum og bein að Írak, sem er óþarfi þar sem ein nægir til að jafna allt við jörðu, og blanda saman eitrinu sem þar finnst neðanjarðar við sprenginguna og gerir það að verkum, verði hleypt af mun geislavirkni mælast um allan heim.

Ísrael dæmir sig sjálft úr leik vegna geislunnar, en þeir telja sig hafa 100% sannanir fyrir því að þrjár sprengjur séu tilbúnar í Íran, en ekki bóli á byggingu orkuvers til rafmagnsframleiðslu eins og samið var um.

Spilling hefur grasserað það mikið hjá hinum vestræna heimi, að Frímúrarar hafa varað sína menn við grimmilegum örlögum séu þeir þáttakendur í slíku athæfi og boð látin ganga um heim allan.

Ég bað um að fá aftur að heimsækja Nostradamus þegar hann var uppi, og komum við að litlum kastala í ókunnu ríki en þó með miklu af pálmatrjám að sjá, og situr meistarinn þar við borð án skotthúfu og virðist niðursokkinn í útreikninga, og sýnist mér á einu blaði talað um ártalið 1632 en annað sem hann skrifar get ég ekki lesið Franska, Ítalska eða annað tungumál sem ég kann ekki og hef ekki túlk með í þetta sinn.

Svipbrigði hans lýsa í senn hryggð og angist yfir innihaldi bréfanna sem boða varla nokkuð gott, en í öðru herbergi á jarðhæð kastalans er kunnugt rautt merki, kross áberandi stór og var farið þar inn.

Þá tek ég eftir því að hempa er komin um axlir mér purpurra rauð með stjörnumerkjum og litlum rauðum krossum upp eftir báðum ermum, og efst við silfur krækjur fyrir keypinn / skykkjuna með kross merkinu á í stað hnappa.

Þarna er ég leiddur inn að altari, og þegar ég horfi niður er eins og ég gangi í lofti alheimsins ekkert gólf að sjá en altari og skemill þar fyrir framan.

Þá heyrast kunnulegar kyrjanir á báðum hliðarvængjum sem hreyfa við áru minni þannig að hún tifar af gleði rétt eins og hún sé komin heim aftur að loknu þessu æviskeiði?

Kyrjararnir eru allir í brúnum munkakuflum með hettum sem hylja andlit og fjórir Kyrjarar sitja í skeifulaga altarinu, hver með sinn lit á hempum og merkin eru ekki eins.

Fuglsmerki Svölunnar eru á hempu eins þeirra sem ég kannast við sem meistari Maha Cohan en það var eins og komið væri að heimferð og ekki ætti að sýna mér meira að þessu sinni og því ekki muna nákvæmlega síðasta hlutann.

En síðan fer eitthvað að gerast þannig að ég eiginlega svíf áfram í móki og ranka við mér aftur heima í stofu þungt hugsi yfir því sem ég man og set hér á blað.

Hvað þýðir þetta allt? Erum við virkilega komin fram á bjargbrúnina með notkun gereyðingarvopna, og þá í hvaða tilgangi því allt svæðið verður óbyggilegt í 200 ár hið minnsta.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


miðvikudagur, 16. desember 2015

El Ninjo á eftir að valda miklu tjóni í USA.

El Ninjo á eftir að valda miklu tjóni í USA á næsta og þarnæsta ári, vegna hækkandi sjávarstöðu, hvirfilvinda og óstöðugs sjólags.

Bláa myndin er ströndin eins og hún er nú sett inn með punktalinum frá landi og út á sjó, og síðan tvílita línan eins og þetta kemur til með að líta út m.v.100 ára sögu þróun og bátahafnir og hús nærri strönd horfin og flugvöllurinn sem var inn í landi er að nálgast flæðarmálið.

Gráa myndin sýnir 2 gliðnunarsprungur sem alltaf eru á hreyfingu, en aðeins 200km eru að fyrsta kjarnorkuofni þeirra Californiubúa sem er talinn í hættu þar sem undirlag þessara 2 misgengja er álíka hyldýpi stærstu sprungunnar San Andreas og hefur einnig áhrif þar en fræðimenn reikna sig sveitta hvað muni gerast.

2009 setti ég inn á gömlu síðuna sýn sem ég fékk þegar stór hluti fjalls á Kanaríeyjum rennur í sjó fram og lyftir sjónum upp um 200 metra, og keyrir af stað uns fjallið nær hljóðhraða og stefnir á NY færir þá stórborg á kaf og Albany sem er að mig minnir 100km ofar í landinu þótt höfuðstaður NY sé.

Þaðan æðir aldan áfram til Californiu og setur þar allt á kaf en allir skýjakljúfar hundruðum saman falla eins og spilaborgir.

Þetta var döpur sjón og vona að þetta rætist aldrei, en hafsbotninn við eyjarnar er að síga og togar í fjallið sem er holt að innan eins og swissneskur ostur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


þriðjudagur, 8. desember 2015

Litið til framtíðar 2016-2018.

Mér sýnist í augnablikinu að ISIS liðar hafi nú þegar eða séu að ná undirtökum á svo kölluðum Cybet Hakers sem ég sé eins og virakrumlur inn fyrir eldveggi alls bankakerfis heimsins og hafa stolið gríðarlegu magni af bankaupplýsingum viðskiptavina stærstu bankanna JP Morgan og álíka en fer hljótt þar sem þeir voru búnir að fullvissa rannsóknarnefnd þings USA að þeir hefðu nægar varnir og þegar greitt háar sektir fyrir.

Mér sýnist að með einni tilskipun frá ISIS gætu þessir aðilar auðveldlega geta lamað öll fjármálakerfi heims þess vegna gefið út falskar kaup og sölutölur sýndist þeim það en það verður ljóst um áramótin.

Þá sýnist mér að Draki sé í alvarlegum földum vanda vegna undir ríkja innan ESB sem munu riða til falls seint á næsta ári vegna flótamannastraums frá Afriku sem er þeim ofraun.

Ekkert verður gefið upp um þetta opinberlega sýnist mér.

Andúð gegn Múslimum mun magnast á næstu tveim árum og Sádi Arabar munu einangrast og hugsanlega þurfa að notta alla sína varasjóði til að brauðfæða þær þjóðir sem þeir hafa lagt í rúst með ætlan sinni til trúarskipta, en það verður tekið fyrir 2016 á Alsherjarþingi SÞ.

Einhver Evrópuríki munu leggja til að fólkið fái að fara aftur á heimaslóðir og borgir endurreistar undir vernd SÞ á kostnað Sáda.

Þá verður settur á fót dómstóll vegna morða þeirra með loftárásum á borgina Sana sem var í blóma og yfir 50.000 óbreyttir borgarar látið lífið.

Uppsagnir byrja að berast frá fyrirtækjum frá 1 febrúar sýnist mér til að mæta tryggingagjaldi og þurfa að hætta við útrásir vegna kostnaðar þannig að vinstri vasinn þarf að borga það sem eðlilega hefði komið úr þeim hægri, verkföll skella á með mikilli hörku út af launakjörum og uppsögnum.

Alccoa lokar Straumsvík um áramótin 2016-17 enda bullandi tap á framleiðslunni um allan heim fallandi verð á stáli líka sýnist mér og í stuttu máli verða allir markaðir upp í loft og svo gæti farið að Draki neyddist til að rifa vexti upp fyrir 0 sem við höfum ekki aðgang að.

Aldraðir og öryrkjar munu gera uppreisn gegn sitjandi ríkissjórn og hugrakkur þingmaður mun leggja fram vantraust á ríkisstjórnina 2016 um vorið í von um að halda sæti sínu eftir kosningar en ekki likar mér liturinn í Alþingissalnum eftir þær sviptingar og Ólafur forseti mun halda áfram þar sem hann sér að þjóðin stefnir fram af bjargbrúninni.

Þá eru nokkrar spennandi óvæntar giftingar þekktra aðila í spilunum svo og skilnaðir og framhjáhald.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Villutrúarflokkur PIRATA.

Það veldur mér ugg að villutrúarflokkur PIRATA skuli á einn eða annan hátt reyna að reka fleyg meðal þjóðarinnar í trúmálum þar sem aðeins einn vegur er upp sem deilist á marga vegu trúarbrota og ættu að geta lifað í sátt og samlyndi.

Það er óheillavænlegt þegar flokkur á Alþingi tekur sig til að banna eigi alla trúfræðslu barna um kirkjur og helgisiði sem hafa lifað með þjóðinni upp úr Ásatrú og réttara væri að þessir vælupokar kynntu sér hana áður en skemmdarstarfsemin heldur áfram þar sem það er mér til efs að einhver vængur í ætt við ISIS sé treystandi fyrir því að reka íslenskt þjóðfélag án öfgva.

Eitt er að segja annað að dreyma og þriðja að framkvæma og eining innan þeirra raða til að framkvæma þetta þrennt sé ég ekki að sé til staðar.

Uppalendum sem treyst er fyrir uppeldri fóstra frá upphafi eiga að vera góðar fyrirmyndir og enginn getur með sanni sagt að hafa beðið skaða af því að sækja kirkjur en skaðinn gæti orðið meiri hjá þeim börnum sem verða fyrir barðinu á svona einelti sem þetta er og í reynd brot á þeirra réttindum sem einstaklinga.

Menn geta rifist um gæði presta og verka þeirra þar á meðal ég sjálfur sem sæki ekki kirkjur ótilneyddur en minar ástæður er sá eiginleiki sem ég bý yfir og sé horft til baka hafur það alltaf verið ástæðan fyrir vanlíðan minni í kirkjum ekki að vera meðal látinna sem ég hef ekki tölu á að hafa snert við flutning í líkhús eða einn á milli landshluta.

Sálirnar sem sækja að mér í leit að hjálp við að komast í ljósið sem ég bý yfir gerist alltaf á fundum en heimili mitt er friðheilagt og þangað komast þær ekki óboðnar.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


mánudagur, 7. desember 2015

Hver á hvaða kirkju og hvernig gerðist það.

Formaður kirkjuráðs reifar innihald samninga um eignir kirkjunnar sem er fólksins í landinu öllu, enda eignir hrifsaðar af bændum upp úr aldamótunum sýnist mér, en þá fóru svartstakkar milli bænda að telja þeim trú um að sálu þeirra yrði borgið með því að gefa jarðir sínar til kirkjunnar.

Það verður öllum til blessunnar að Fjárlaganefnd stigi á þessa sjálfrennireið svartstakka sem halda því fram að 18 manna starfslið á Biskupsstofu þurfi til að halda þessu gangandi.

Þvílík fyrra, enda flestir prestmenntaðir með yfir 1.000.000 á mánuði og fyrir hvað? Að vera ritari Biskups sem er orðinn valdalaus gagnvart kirkjuráði hafi slík ofurlaun, er alger fyrra og þess utan er þetta ekki gæsluheimili fyrir uppreisnarseggi innan kirkjunnar eins og er í dag, þau 2 nýjstu úr Mosfellssókn en Selfoss hafði sinn mann þarna inni og fleiri.

Ef Biskup þorir ekki að leggja niður þessi embætti vegna skipulagsbreytinga, þá þarf hann aðstoð við það.

Þegar ég og fleiri mér æðri þjóðfélags þegnar gengum í barnaskóla þá var kennd Kristnifræði, og ég veit ekki til þess að nokkur hafi beðið skaða af því fyrr en nú, að einhverjir galgopar í Borgarráði banna með öllu að farið sé með börn í kirkju til að fræða þau vegna þess að við byrggjum í fjölmenningarsamfélagi?? Síðan hvernær gerðist það?

Þeir sem hingað veljast til að setjast að skulu taka upp okkar siði og venjur, eða vera bara áfram á sínum fyrri stað hafi þeim liðið betur þar.

Látið börnin velja sinn veg í lífinu.
Við eigum ekki börnin þótt við köstum eign okkar á þau eftir fæðingu þá er okkur trúað fyrir uppeldi þeirra og trúmennsku við sálu þeirra og góðar siðvenjur og samfélag við aðra þangað til þau og við uppalendurnir förum aftur til baka úr jarðvistinni.

Það má sameina sóknir og selja kirkjur til hæstbjóðenda í opinberu útborði rétt eins og Danir sem hafa selt um 100 kirkjur, og Bretar yfir 70 á bestu stöðum landsins.

Eigendur þeirra munu breita þeim í heimili fyrir sig og sína en kvaðir eru við söluna að þar verði aldrei opnaðar ölstofur eða skemmtistaðir.

Mér er sagt að ein hafi nú þegar verið seld hjónum á Seyðisfirði sem búa þar og líður vel og svo má vera um fleiri.

Auka þarf bálfarir þar sem jarðnæði í Reykjavík er þrotið, bara til að hylkið fái að rotna í kassa á 3 metra dýpi en þar er ekkert þar sem innra hylkið ásamt sálinni fór með við andlátið.

Kanski er bara rétt að allt þetta jarðnæði sem talað er um í þessum samningi ríkis og kirkju gangi nú aftur til þjóðarinnar og afkomendur þeirra sem misstu í hendur svartstakkanna.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Heilari.

29. desember. 2014. Eldra Efni.
Heilari þarf að skynja ástand sjúklings sem til hans kemur enda erum við oftar en ekki síðustu útverðir hans þegar allt annað hefur verið reynt.

Sjúklingar sem fá sterka beina heilun frá þeim sem við vinnum með, verða þess áskynja í öllum tilvikum hvað sé að gerast í líkama þeirra, þegar þeir finna að unnið sé í fótum þeirra þó enginn sé sjáanlegur, einhver að létta á verkjum og pressu á hryggjaliðum og allt án óþæginda fyrir sjúklinginn.

Ég hef sagt það í öðrum pistli og segi það enn, að þetta verður að vinnast í gegn um bænina til þess að tenging með nægjanlegum styrk komist á.

Fjarheilun er framkvæmd á sama hátt í gegn um bænina en aðeins er nauðsynlegt fyrir mig að hafa nafn sjúklings og heimilisfang en engar aðrar upplýsingar svo sem sjúkdóm.

Sé til mynd af sjúklingi þá er hægt að senda mér hana í tölvupósti ásamt ósk um fyrirbæn, á

E - mail: thorgunnl@gmail.com

en þá prenta ég myndina út, held á henni og tengi mig beint við sjúklinginn með þeim hætti.

100% trúnaður verður að vera milli meðferðaraðila og sjúklings og gildir einnig þótt hjón komi, en þau verða sjálf að ræða það sem skeði kjósi þau svo, en þetta eru skilyrði sem mér voru sett af þeim sem ég vinn með en ég hef bent á þetta í pistlinum Hvað er Transheilun ?

Er nauðsynlegt að bryðja verkjalyf alla vikuna vegna verkja frá vöðvabólgu og annarra stoðkerfisverkja þegar hægt er að losa þetta frá viðkomandi í 1-2 meðferðum og sleppa verkjalyfjunum.

Það sama hef ég unnið lengi með streytu, kvíða og vanlíðan en þá leita ég að orsök þessa eða verksins og sjúklingi fer strax að líða vel og öll spenna hverfur á augabragði, en þó er ég ekki læknir heldur millistykki við lækna í hinu efra.

Engin óþægindi fylgja meðferðinni heldur kemur vellíðan strax. Andleg vandamál höfum við unnið með góðum árangri svo sem óróa í börnum skilgreind með ADHD sem snarbreytast við meðferð og það sama á við um fullorðna.

Mér er tjáð að upphaf svo kallaðar skilgreiningar á ADHD er að eitthvað hafi fari úrskeiðis í fæðingu viðkomandi og sú meðhöndlun orsakað áfallastreytu sem likja má við beyglaða bílfelgu hana þarf að laga og er það gerð með sléttun á dæld árunnar sem verður við þessi fæðingarátök. Þær eru margar mæðurnar sem fengið hafa hjálp með börnin sín og martröðin losuð frá heimilinu.

Sjúklingar með þunglyndi hafa fengið aðstoð en þar hefur ekki alltaf reynst eins góður árangur strax nema að þetta sé á byrjunarstigi og stundum þarf 1-3 meðferðir.

Af hverju er órói í börnum á heimilum sínum og svefninn ruglast og þau eru óró og hún Guðrún Gunnars heilari á Ísafirði hefur ekki átt svo ófá símtölin við mig vegna mæðra sem eru í vandræðum og hefur í öllum tilfellum komist ró á.

Nýi leikskólinn þeirra fór ekki varhluta af þessu en með smá samningum við þá sem voru valdir að þessu komst ró á vinnustað barnanna og svo hefur verið um fleiri en ég fer ekki beint sjálfur heldur innra hylkið í mér sem skreppur og hreinsar til með aðstoðarfólki að handan.

Trúarskoðun


Það eru ekki nein skilyrði frá þeim sem ég vinn með né aðrir meðferðaraðilar að sjúklingur þurfi að vera trúaður til þess að fá hjálp því að það skref að biðja þá um aðstoð er fullkomnlega nægjanlegt.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Morgunfréttir dagsins.

Hjóðuðu upp á hvorki meira né minna að einhver yfirmaður leyniþjónustu hafi stigið fram og upplýst það sem ég var að ræða um og setti inn á síðuna: Viðvaranir ?.

Það sem mér var sýnt af minu fólki hverjir raunverulega fjármagna hryðjuverk á Vesturlöndum en það eru Kalifarnir í Arabíu og Saudi Arabar sem nota þriðja aðila við að koma fénu áfram og borga rekstur á yfir 600 moskum víðs vegar um Evrópu sem nú verður tekið fyrir.

Þetta eru einhverjar bestu fréttir sem ég hef fengið staðfestar á því sem sent er til min og svo litla stúlkan hún Vilhelmina en ég hélt áfram að hlusta á þessa 9 ára dívu sýgja og ráðlegg öllum að fara inn og hlusta því að hún bræðir allan klaka af frosnum hjörtum.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


sunnudagur, 6. desember 2015

Barnsrödd breytist í rödd gamallar Dívu.

Amira Willighagen Búin að hlusta á 3 lög þessarar 9 ára stúlku og athyglisvert hvernig hægt sé að sýna fram á að það er alls ekki hún sem er að syngja, heldur notuð sem millistykki fyrir söngdívu sem var uppi á 17 öld að minu mati en í umsögnum hana ber öllum saman um að þetta sé svo ótrúlegt

Nafni Dívunnar þarf ég að halda leyndu.

Þetta er svo magnað að heyra barnsröddina breytast yfir í eldgamla sál syngja í þættinum Britis got Talent. Amira Willighagen



Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


laugardagur, 5. desember 2015

Hvert stefnir landið ? / Efnahagsmál.

Eldra Efni
Set hérna inn nýjan link tileinkaðan efnahagsmálum heimilanna og þjóðarinnar þar sem allir geta sagt sitt álit á mönnum og málefnum í blíðu og stíðu.

Bara svona á hliðarlínunni að þá er ég búinn að gera lúsa leit hjá stofnunum um þessar gríðarlegu þjóðarskuldir sem allir eru að tala um almenningur og pólitíkusar og meðal annars snjóhengjunni en niðurstaðan er enginn.

Hvergi er hægt að finna efni innan stofnanna sem vísa beint á þessar skuldir og hafa ber hugfast að engar skuldir eru viðurkenndar fyrr en þær eru inn í fjárlögum en það vill gleymast og meðal annars óreiðuskuldir LSR sem sagðar eru með ríkisábyrgð en eru það ekki þar sem þær eru ekki til í ríkisreikningi.

Látið nú gamminn geysa.

Álit:5
Þór Gunnlaugsson Sagði:
Það má vera ljóst eftir lestur MBL í dag að EFTA dómurinn um Icesafe heldur ekki vatni fyrir ráðamönnum þjóðarinnar sem ætla leynt og ljóst að koma þessum klafa á þjóðina? + Ég segi klárt nei við slíkum áformum og Alþingi ber að virða dóminn.
17.Ágúst 2013 09:48 (laugardagur)

Guðni Sagði: Sæll Þór, ég held að fólkið okkar ljósberarnir séu núna dreifðir um allt og séu ekki mikið við tölvu.

Ég skannaði hópinn svona huglægt og eru menn í hinum ýmsu verkum, en eru að koma til baka einn og einn, það verður fjör á þessum lið innan nokkurra vikna vittu til, því það er allt á leiðinni til andskotans á öllum vígstöðvum nema hér á litlu síðunni okkar. Á meðan setjum við inn uppskriftir því það virkar róandi og er feikilega gaman að lesa þær finnst mér.
Kveðja Guðni
15.Ágúst 2013 19:17 (fimmtudagur)

Þór Gunnlaugsson Sagði: Er það virkilega svo að enginn hafi neitt að segja um stöðu heimilana í landinu?
15.Ágúst 2013 13:16 (fimmtudagur)

Siggi Sagði: Gott framtak hjá þér Þór.
Kveðja Siggi.
13.Ágúst 2013 18:39 (þriðjudagur)

Guðni Sagði: Sæll Þor mér lýst vel á þennan lið því mikið er framundan og hér geta menn látið gamminn geysa.
Kveðja Guðni
13.Ágúst 2013 15:49 (þriðjudagur)

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


föstudagur, 4. desember 2015

Viðvaranir ?

Á fundi sem ég átti með þeim síðdegis í dag komu fram viðvaranir frá þeim um að Múslimar um víða veröld hafi fengið köllun fyrir málstaðinn og háar fjárfúlgur með og bandarikin ekki undanskilin.

Þetta unga Muslimska sambúðarfólk áttu saman 6 mánaða gamalt barn sem komið var til móður stúlkunnar í anari borg og þau höfðu þaul skipulagt verknaðinn og svo mun verða með fleiri fjölmenna vinnustaði þar sem Múslimar starfa.

Við höfum ekki skýringu á þessum voðaverkum að undanförnu, en þau tengjast á engan hátt fólksflóttanum frá Sýrlandi að undirlagi Sádi Araba með sina Schariatrú en enginn hefur þorað að hreyfa við þeim eða forseta Sýslands þótt aðrir hafi verið hundeltir, en á meðan hann rikir þar eru eiturefna vopnabirgðir sem grafnar eru í jörðu víðs vegar um landið og forsetinn gætir lykklana að búrunum.

Okkur sýnist að þriðja heimstyrjöldin sé farin af stað hægt og bítandi en mun bitna á saklausu fólki sem kemur saman í mannþröng skemtistöðum ykkar og víða.

Því miður getum við ekki með beinum hætti komið í veg fyrir verk sem unnin eru af frjálsum vilja mannfólks enda skrifað í bækur vorar að slíkt sé bannað hvort sem um er að ræða voðaverk eða annað álíka.

Tengillinn okkar hefur verið ónáðaður til verka um nætur í sl.3 mánuði og truflað svefntima hans en því verki er að ljúka en á þessari stundu getum við ekki annað sagt að það hafi verið í anda góðverka sem hann fær að vita síðar hverjar voru.

Hugur hans var bundinn við þá frétt að í Kuwait skuli rísa hæsta bygging heims 1km á hæð og olli honum undrun þar sem þetta er allt byggt á sandi.

Steypumannvirki í slíka byggingu í gunnin nægir engan veginn og kemur þá aðdráttaraflið við sögu þar sem nú þegar eru til stórbyggingar þar sem ekki munu þola væntanlegan hristing vegna flekaskila tengdu eldgosi í Etnu en þetta veður stórgos.

Vegna loftslagsbreytinga um allan heim hafa orðið miklar breytingar í náttúrunni gríðarlegir þurrkar og gríðar rigningar á öðrum stöðum en mesta hættan er í Asiuhlutanum þar sem flekar hafa verið á meiri hreyfingu en nokkru sinni fyrr sem mun skapa jarðskjálfta víða eldgos vegna rofs við ynnri möttul jarðar en þar hefur þrýstingur snaraukist og vísindamenn vita af öllu þessu en þegja þunnu hljóði.

Að lokum þetta verið á varðbergi hvar sem þið eruð í heiminum sérstaklega kristnir shitar og fólk af súnny ættbálknum þar sem búið er fyrir löngu síðan að koma fyrir vopnum sprengjum fyrir þessa sleepers af Múslimskum ættum sem svara ákalli og fara af stað til illverka.

Það undrar okkur mjög áhugi nútímans á fyrri hlutverkum sálar þeirra og þeirra átaka sem þar kynnu að hafa orðið en mjög gamlar sálir fara aftur til jarðar þegar tryggt er að enginn eftirlifandi ættingi sé til.

Þar er ekkert að sækja sem kemur ykkur að gagni í jarðvistinni og óteljandi dæmi nefnd því til sönnunnar og jafnvel að marsbúar lifi á tunglinu.

Við höfum á ferðum okkar ekki séð neitt líf á tunglinu utan örveira en mikið vatn er bundið þar í ís en ekkert mannlif.

Faratæki sem við notum í ferðum um sólkerfið er ósýnilegt mannfólkinu og kemur aldrei til jarðar í heimsókn enda þurfum við það ekki þar aðeins yst í sólkerfið þar sem engin mannvera hefur augum litið og mun aldrei gera því að það svæði er lokað af okkur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


fimmtudagur, 3. desember 2015

Hugulsemi Ljósberanna.

desember 6, 2014. Eldra Efni:
Við viljum koma á framfæri þakklæti til Ljósberanna hér á landi fyrir umburðarlyndi og mannelsku sem birtist í athugunum fjölda þeirra daglega á hvað sé að gerast í heiminum þá og þá stundina.

Við náum ekki svona sterkum böndum hjá öðrum þjóðum og erum að skoða hvað valdi því að samheldnin sé svona mikil hér á landi frekar en á Kanaríeyjum og öðrum eyjaklösum þar sem mikið gengur á.

Farvegurinn okkar var að skoða samsetningu og staðsetningu á sprungusvæðum í úthöfunum að okkar tilstilli og bera saman hvar stærstu skjálftar hingað til hafa orðið og hvers vegna.

Ef þið skoðið hnöttin sem sprungna eggjaskurn og sjáið hvar sprungurnar á hafsboti eru og hvernig þær tengjast mun opnast nýr heimur skilnings hjá ykkur hvað raunverulega sé þarna að baki.

Fugla og fiskidauði er engin tilviljun og ber að skoða segulsviðið daglega og sjá breytingar umfram þær sem þið finnið og skoðið % hlutfallið og öfgana þar.

Gangi ykkur vel í rannsóknum ykkar og haldið áfram á núverandi braut ljóss og kærleika.

Álit (4) Stefanía Sagði: Tek undir með Engilbertínu
26.Mars 2013 10:07 (þriðjudagur)

Engilbertina Sagði: Kærar þakkir Þór , þvílík blessun að finna þig og alla sem skrifa hér inn, fróðlegt og oft skemmtilegt. Gott að koma hér inn, kveðja Engilbertina
23.Mars 2013 14:23 (laugardagur)

Guðni Sagði: Sæll Þór gott að fá svona skilaboð og að einhver kann að meta þá vinnu sem felst í því að fylgjast með þróunn jarðskjálfta og eldgosa í heimunum. En eins og þeir segja er að koma inn ákveðinn skilningur og þekking hjá okkur sem mest pæla í þessum hlutum.

Það vekur athylgi mína þessi stjarna í Torfajökkli. Svona stakur skjálfti kom einmitt upp skömmu fyrir gosið í Vestmannaeyjum eða upp á 3 og svo byrjaði gosið þar.
Kveðja Guðni
11.Febrúar 2013 15:20 (mánudagur)

Dolores Sagði: Sæll Þór , já var það ekki, það gat ekkert annað verið en míkið er gaman hvað það eru mikil samkennd og sameining hérna á Íslandi á milli ljósberanna.
11.Febrúar 2013 10:22 (mánudagur)

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.