miðvikudagur, 14. október 2015

Margir sakna þess að geta ekki séð yfir í hinn heiminn.

Fundur 16 apríl 2011

Formáli að þessum fundi.


Margir sakna þess að geta ekki séð yfir í hinn heiminn en svörin eru alveg skýr að ef slíkt væri í gangi myndum við aldrei vera viss hvort viðkomandi væri hér á jörðinni eða frá okkar heimi og fjöldinn hérna meginn slíkur að venjuleg manneskja myndi ekki þola slíkt heldur sturlast. Allar tengingar við ykkur þurfa að gerast með mikilli nákvæmni með heilsu ykkar og reynslu í huga.

Annar stjórnandi Lise kemur fyrst.

Velkomin. Takk fyrir það enda hef ég ekki átt þess kost að koma áður en aðgengið að þessum farvegi var auðvelt og er ég þakklát fyrir það.

Það er alltaf pressa frá jarðlingum að fá opnanir og miða þá oft við fyrri líf og tíma en vera ykkar hér timabundið helgast ekki af því enda gríðarlega erfitt að stilla og fylgjast með að þær séu réttar en við getum ekki alfarið opnað fyrir tengingar ein heldur þarf að koma til stuðningur sálarinnar í viðkomandi einstaklingi og þær tengingar og reynsla sem kom með.

Ef við tökum þínar sem dæmi þá er það hreint ekki auðvelt þótt þú viljir það sjálfur enda ákveðnar varnir eins og ég sagði áðan varðandi sálu viðkomandi en þú ert kominn eins og þú veist sjálfur rúm 50% að leiðarenda í tengingum.

Það er lykilatriði að hafa svona hreina Ljósbera eins og eru hér á landi og þú hefur verið að hvetja áfram og erum við þakklát fyrir það en hafa skal í huga að engir tveir eru eins með sýnir.

Hvað má ég kalla þig? Lis en það nafn er mér mjög kært úr fortíðinni. Ég kem hingað í fyrsta sinn til þess að ræða við þig um hlutverk Ljósberanna en á þeim tengingum ber ég ábyrgð ásamt fleirum um allan heim en í því felst að velja þá sem komast að á fundum og hverjir ekki.

Hefur þú komið á kirkjukvöldin í Bústaðakirkju? Já ég kem með her ljósbera með mér og ekki bara þau heldur þúsundir annarra sem sjá ægistórt ljós kvikna á þessari norðlægri eyju og koma. Þetta er mikil upplifun fyrir mjög marga að fá að koma svona nálagt ættingjum sínum og í mörgum tilfellum voru hlutir ósagðir eða ófrágengnir og þessi kvöld hjálpa þeim yfir hindranir rétt eins og þið glímið við hérna megin.

Við reynum alltaf að sinna ljósberum um leið og vakning verður hjá þeim og ljósið kviknar og það er þetta starf sem þú hefur verið að vinna með okkur. Þetta er eitt að því yndislegasta sem ég geri að vera í þröngum hópi ljósbera með mismunandi skoðanir og lífsreynslu.

Hvar fóru þessir fundir þínir fram? Þetta var í klaustri í Slóveniu sem hét það ekki þá en í fjallendi og þar byggðum við upp kærleik og ljós sem nýttist okkur og öðrum sem þyrftu á hjálp að handa en þetta var á 11 öld en ekkert er eftir af þessu klaustri kanski einhverjir steinar.

Ljósberar þurfa að aðgæta að halda sig við núið og framtíðina ekki það sem liðið er en kryfja það ekki til mergjar heldur komum við með skýringar til ykkar þannig að þið náið þessu á réttan hátt.

Afgangur fundarins er einkasamtal við föður minn Gunnlaug.

Þó get ég sagt að þar komu svör sem aðeins við tveir vissu og þar á meðal andleg mál og þeir hæfileikar sem hann hafði en faldi. Ákvað að setja hann inn líka.

Jæja strákur þá er ég loksins kominn alveg til fundar við þig enda réttur tími núna. Þið ræðið mikið um störf Ljósberanna og er því til að svara að þau störf eru göfug og mjög nauðsynleg fyrir mannkyn.

Þú ert að vinna ákaflega mikilvægt starf í þágu mannkyns en ég bið þig að fara varlega og leyfa hlutunum að koma til þín fullþroskuðum en það var lykilástæðan fyrir því að ég vildi ekki að þú færir að vasast í þessum málum á sínum tíma en erfitt var fyrir mig að bera þessa leynd með mér einum.

Ég vil líka bæta við að Musterisriddararnir hér í jarðvistinni var ekki rétta umhverfið fyrir þig heldur það grasrótarvinna sem þú vinnur í dag og veitir mér stolt og aldrei getur maður verið viss um að hlutirnir falli alveg á rétta staði á æviskeiði en hjá þér tókst það og veitir mér sárabót fyrir leyndina.

Patrik Pio og Fransis eru mér hugleiknir hvers vegna er það? Já það má segja að það hafi verið samgangur á milli ykkar í hugmyndavinnu fyrir mannkyn en umgjörð ykkar á þeim tíma var hættuleg vegna ytri aðstæðna og þið fóruð afar varlega.

Þetta er allt annað í dag á þessari tækniöld ykkar en þú varst tengdur við Musterisriddarana en tókst ekki þátt í pólitík sem vill loða við reglur opnar eða leynilegar heldur var það orðið og notkun þess sem þér var ofar öðru og því urðu kenningarsmíðar þér hugleiknar.

Pabbi þú sóttir sjálfur ekki fundi í yfir 10 ár? Jú rétt er það en svarið er hér að ofan menn fara þarna inn með mismunandi hugsanir svo sem að fá djúpar fréttir mannlífs aðallega að nýta sér tengingar manna í millum en verður ekki að ósk sinni en í mínu tilfelli var það kærleikinn sem ég fann ekki þarna utan örfárra.

Ferðin til Indlands og tilgangur hennar? Já hún þurfti að fara fram við réttar aðstæður til að skúbba þér upp á rétta tíðni til þess að þú næðir sambandi við þá þekkingu sem þú hafðir fyrir og gætir nýtt til fullnustu en það var metið svo að þú þyldir vel andlega og líkamlega að hoppa yfir tug ára í einu.

Þetta var mér og öðrum hjartans mál að vinna við þína opnun til fulls myndi takast á réttan hátt og flóðgáttir kærleikans næðu að flæða öðrum til góða enda ekki vanþörf á og ég er afar stoltur af þér þótt ég sjálfur hafi ekki getað nema að litlu leiti nýtt mér mína hæfileika vegna tíðarandans þá.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Persónulegum kveðjum sleppt.

1. mai. 2011.

Kvenvera kemur fyrst.


Góðan daginn og velkomin. Við erum farin á mínu sviði ásamt öðrum að þessum fundum hérna hjá þér og auðveldur aðgangur að farveginum.

Ég vildi láta þig vita að við munum koma enn nær í kirkjunni annað kvöld þar sem svo margir einstaklingar eru lokaðir með sínar sorgir og við viljum létta á þeim en þau þurfa að opna sig í hljóði við okkur.

Því má búast við því fyrir suma að miklar tilfinningar fái að flæða og bati taki við sem er eðlileg leið.

Þörfin hér í landi fyrir hjálp er gríðarleg en við sjáum birta til hjá ykkur eftir ekki svo langs tíma en þetta er búið að gerjast hér í mörg ár vegna hulinnar stéttarskiptingar ríkra og fátækra. Það er ekki einfalt mál að bæta mönnum hjartaskaða.

Hvað má ég kalla þig? Margareta en það er svo langt síðan einhver hefur spurt mig þess en við ljósberarnir berum ekki nöfn þó að ég sé í forsvari fyrir hópunum.

Fólk er mikið upptekið af veraldlegum gæðum að annað gleymist svo sem kærleikurinn og við þessar samkomur þínar hvar sem þær eru þá eigum við auðveldara sem hópur að koma að einstaklingum með meiri krafti og ná betri árangri.

Þarf ég að fara dýpra fyrir ykkur? Nei alls ekki þetta er alveg eins og það á að vera á þróunarbrautinni þinni. Ég vil bara kveðja núna.

Karlmaður kemur inn: Góðan daginn

Já það er fremur lítið pláss í farveginum en ég kem afar sjaldan í heimsókn í jarðvistir. Minn tilgangur hér í dag er að staðfesta þessar þarfir þínar og hugsanir um Musterisriddarana og ég má segja að þú hafir verið starfandi með okkur á miðöldum nánar 1483 eins og farvegurinn í líkama karls.

Þú veltir því oft fyrir þér hvort að þær heimildir sem til eru um okkur séu réttar þar sem þér finnst þetta eitthvað stangast á sem er rétt þar sem sálin þín gefur slíkt til kynna.

Við stofnuðum regluna Musterisriddarana í þeim tilgangi að vísindi og guðrfæði gætu þrifist hlið við hlið enda sáu margir að slíkt var nauðsynlegt.

Mikil leynd hvíldi yfir þessari starfsemi þar sem konur sem höfðu nasaþef af einhverjum okkar í reglunni sögðu þær til okkar og voru líflátnir með það sama fyrir trúvillu.

Við þurftum því að hafa þetta bak við luktar dyr kirkjunnar en ég vil taka það fram að sú hugmynd að gull og gersemarværu í okkar umsjá er huglægt mat hvers og eins en mestu gersemarnir voru þær hugsanir sem settar voru á blað og leynd hvíldi yfir.

Einhver málverk voru í okkar umsjá og sitt af hvoru smádóti.

Eins og ég sagði í upphafi þá komum við ekki í jarðvistina í heimsóknir nema í sérstökum tilfellum eins og þínum en reglan í dag hefur þróast mikið um pólitík fremur en trúna en þó ekki algilt.

Má ég spyrja um deili á þér? Ég er æðsti maður reglunnar hérna megin og var á sínum tíma æðsti yfirmaður Evrópureglunnar en hér er ekkert nafn á stúkunum heldur tengjumst við innbyrðis eins og faðir þinn sem vinnur mikið starf í okkar nafni.

Þú skalt halda áfram á þeirri leið sem þú ert hún er sú rétta og með tímanum munt þú finna mikla orkulindir frá okkur streyma til þín svo að þú skalt alveg vera rólegur.

Spurning: Mér var sagt á sl.ári að ég þyrfti að fara til Bangalore í Indlandi að hitta Sai Baba? Þú fékkst þessa vitneskju sem er huglæg en þér voru gerð boð að hans tími yrði úti á þessu ári og síðar þar sem hann er farin munu leiðir ykkar í tengingum liggja saman í verkefnin stóru.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Ég kom aðallega til að æfa mig.

Fundur 14 mai 2011
Góðan dag

Það er orðið langt síðan að ég hefi notað farvegi hjá ykkur svona á Norðlægum slóðum en brautin var greiðfær og því notaði ég tækifærið.

Ég kom aðallega til að æfa mig til að komast að svona nálagt ykkur.


Má ég vita um nafn? Ég kem frá Mið-Austurlöndum og vann þar við vísindi á þeim tíma en flest er gleymt en þó er nokkur hlutur enn nýttur úr þessu lokaða samfélagi sem ég var með.

Már sýnist undur vera að gerast hér á landi að það skuli vera hægt að boða orðið með eins miklum kærleik og raun ber vitni en Arzerst var nafnið mitt en þetta er úr Tyrknesku,

Ég tilheyri tengingu sem sjaldgæf er hér hjá ykkur en vegna friðarins og kærleikans komumst við nær til að styrkja áframhaldið.AA

Margar deildir eru hér hjá okkur á hinum ýmsu sviðum bæði almenn vísindi og læknisfræði ásamt boðun orðsins.

Þeir sem eru í jarðvistinni halda sumir að þeir séu nafli alheimsins og allt þar á milli. Hvað er langt á milli okkar og ykkar í ljósárum talið?

Því er erfitt að svara nákvæmlega því sálin og orkan fara um brautir sem þeim er ætluð eftir þróuns hvers og eins en ekkert tímaskyn er hér heldur er stundið augnablikið ðí þeirri víðu merkingu.

Starf mitt hefur náð um nokkrar aldir þótt ég tímasetji það ekki nákvæmlega

Hluti af okkar tilveru er að styðja og styrkja mannkyn en það gengur afar illa á sumum hnattsvæðum vegna heiftar og vöntunar á kærleik.

Ég er í raun að skoða í gegn um þennan farveg hvort að við getum nýtt okkur hann til að tvinna saman ykkar vinnu og sú vitund sem ég hef nú þegar náð vísa mér til þess að þetta sé hægt.

Við þurfum mjög sérstaka farvegi sem ekki liggja á lausu þar sem þeir þurfa sérstaka eiginleika fyrir okkur.

Það er verið að vinna í þínum stillingum og verður sterkara með hverjum mánuðinum en við sjáum þig sem fulltrúa okkar og ná saman hópi fólks til þess að við getum komið að til hjálpar.

Þar er um að ræða hjálp við slæmum hugsunum og setja þar inn fræ vonar í staðinn en fyrir okkur er þetta gríðarleg upplyfting í kirkjunni því við höfum ekki komist svo nálagt áður og mörg okkar eru bergnumin að upplifuninni að snerta jarðneskar sálir. Spurning: Þið hafið í tvígang sent mér í draumum skemmtiferðaskip en ég er bara svo sjóveikur að ég á aldrei eftir að fara um borð í slíkt svar.

Svar: Már er sagt að þetta sé sent til þess að vekja athygli þína á þeim hugsunum sem þú hefur um framtíð þjóðarinnar.

Þessir skipaflutningar eru til landsins eru nýtt fyrir ykkur í þeim mæli sem verður en þetta gæti orðið mjög sterkur vaxtarbroddur til framtíðar litið.

Hvað með jarðhrærirngar? Við sjáum það ekki en svo vill til að náttúran er að færa ykkur til baka aftur því sem þið hafið sáð svo undrun vekur hjá okkur.

Þessi upprisa þjóðarinnar sem verður til nýtingar á gjöfinni verður til góðs og gæfu úr þeim hremmingum sem þið eruð komin í.

Þið skuluð þó gæta vel að umgengdi þessara gesta við gersemana ykkar og byggja það upp hratt því þetta mun byrja í sumar.

Það verður alltaf lífsins gangur að einhverjir verða ofan hinum en það er gangur lífsins en ástandið er ´svo sérstakt hér að geislunin streymir í allar áttir og það finnur fólk og þess vegna mun ásóknin aukast til ykkar.

Hugsunarháttur ykkar hjálpar þar mikið til.

Elisa kemur nú inn(ljósbera veran)

Hvernig hefur þú það núna Elisa


Ég er búinn að ferðast víða en kirkjan þín dregur svo marga að frá okkur sem eru að læra svo að þetta er bæði kennsla og kærleikur. Þar fá þau að sjá með eigin augum hvernig hægt að að hjálpa til með kærleikann að þau fylgjast með þessum einstakli9ngum og verða vitni að breytingunum.

Þessi samvinna er það sem við höfum leitað að og það höfum við fundið hjá þér og farveginum í kirkjunni. Þú munt verða beðinn um að fara víða um landið og við vitum að þú munt bregðast jákvætt við slíkri beiðni.

Það sem okkur finnst mestum vert er að geta haft þetta í friði án vantrúar og umróti sem við erum að gera ykkur til hjálpar.

Við náum með svona námd að þá náum við að opna veggi í huga viðstaddra sem eru lokaðið vegna vanlíðunnar og sáð birtu þar inn en um leið og það skeður að þá lifnar viðkomandi við og heilsufar batnar til muna.

Það má segja á léttum nótum að þú sért trompetinn sem kallar til fólksins um að koma og þyggja hjálp án fordóma.

Þetta er samfellan sem þarf til að ná sem bestu nýtingu á orkunni.

Ég má til að segja að komast svona nálagt kitlaði sum okkar en við erum að báðum kynjum og vöktu upp gamlar tilfinningar okkar úr fyrri lífum en yndisleg tilfinning.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Aukafundur 9 Júlí 2011 vegna hamfara

Góðan dag og velkomin
Takk fyrir.


Það er nokkuð um liðið síðan við spjölluðum saman síðast en hvað um það en við potum stundum í stelpuna til að minna á okkur en margir vilja nýta sér þessa tengingu í okkar heimi.

Spurning: Vísindamenn hafa haft augastað á Heklu og nánast sett hana af stað en ég hef alltaf verið fastur með hugann á Kötlu og því svæði.

Svar: Já það er svolítið rautt þarna í sv hlið Kötlu og svæðið austuraf til fjalla en mér finnst þetta ekki verða miklar hamfarir allavega ekki í bili.

þegar ég skoða tímalínuna hjá okkur þá er norðursvæðið frekar blátt sem sýnir kulda en meiri roði á Suðurlandi ásamt talsverðum jarðskjálftum á Reykjanesi um gamla sprungu á flekasvæðum.

Kaldasta svæðið NV og NA lands sé ég mikla skipaumferð að og frá landinu í formi þjónustu en get ekki sagt til hvaða flutningar þetta séu en mannlíf mun dafna þar.

Það má ekki gleymast að Ísland er virkt eldfjalla land og þar er náttúran sjálf að verki og þið verðið sjálf að skoða hvar þið stingið niður húsum og verksmiðjum miðað við sögu landsins en þar komum við ekki nærri.

Mér sýnist að fleiri vilji komast að hér á fundinum svo að ég ætla að færa mig í bili.

Vertu sæll

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Nýr miðill með sterkar tengingar

2. október. 2011.

Nýr miðill með sterkar tengingar meðal annars ósjálfráða skrift og er fyrsta tilraun hér að neðan en hún hefur bundið fyrir augun á meðan.


Það sem við þurfum að gera er ósköp einfalt, það þarf bara að koma fólki í skilning um að þau hafa sjálf orku til að ná hærra og ofar en þau geta ímyndað sér.

Við höfum verið að reyna að ná til fólks og stöðugt fleiri eru að opna sig og meðtaka skilaboðin. Ef þér finnst þú vera öðruvísi ef þú getur opnað þig í draumi eða á einhverjum tíma þá geturðu það alltaf. Þú ferð í gegnum dyrnar og þá er ekki aftur snúið. Þú vilt upplifa meira, þyrstir í stærri og betri heim.
Meiri orku og meiri kærleika. Það eru allir að gleyma sér í sjónvarpi og öðrum hlutum sem gleypa tímann og vita ekki að tíminn er ekki endalaus. En sem betur fer hefur kallið náð til margra og orkubrautirnar eru að opnast og þær eru orðnar fleiri og stærri en var. Sífellt fleiri flykkjast í píramída hugans til að finna ljósið sem þar býr.

Allir hafa tækifæri til að kynnast þessu en ekki allir hlusta eða sjá og eru móttækilegir á þeim tímapunkti sem er núna. Ég segi ykkur að fara vel með tímann ykkar og notið hann til að hjálpa sjálfum ykkur og öðrum. Hafirðu fundið hita í höndum þínum, finnist þér þú skilja hvernig öðrum líður og hefur á tilfinningunni með marga hluti og hefur rétt fyrir þér þá ættirðu að halda áfram að virkja þessa braut.
Biddu um hjálp og hjálpin mun berast ef þú sannarlega trúir í eignlægni á það sem þú ert að biðja um. Smátt og smátt opnast fyrir skilningarvit sem þér eru ekki sjáanleg en eru þó sannarlega hér.

Margir vita þetta. Draumar eru óútskýrðir finnst mörgum en við höfum svörin við þeim og mörgu öðru sem. Tíðni fólks er að hækka og það auðveldar samskipti við okkur ég birtist síðast hér nítján hundruð og fjörtíu í gegnum mann sem skilaði boðum frá mér á ákveðinn hátt í gegnum drauma sína.
Nú hef ég komið aftur því tíminn er kominn til að halda áfram að segja ykkur frá. Ég veit að það er svo mikill hraði í þjóðfélögum ykkar í dag að það er erfitt að skynja í gegnum hraðann og sjá en þið þurfið að hægja á ykkur og staldra við og skilja hvað er að gerast. Jörðin grætur og það þarf að hjálpa henni og einungis með mikilli heilun og orkuflutningi er hægt að hjálpa plánetunni ykkar að jafna sig á sárunum sem maðurinn hefur veitt henni í gegnum tímanna rás.

Dýrin skilja það en það er ekki nóg. Hugarfarsbreytinga er þörf. Það er gott að hugleiða inn á græna litinn þegar þú ert að hjálpa móður náttúru og biddu móður náttúru um að heila þig og hjálpa þér og farðu út í náttúruna og hugleiddu inn á móður náttúru með dökkgrænum lit. Hún getur heilað mikið og hjálpað ykkur með margt en þið verðið að vilja hjálpa henni líka því hún þarf á því að halda.

Uppi á himnum munið þið sjá tákn sem birtist ljós á himni í dagsbirtu. Þegar þetta tákn birtist verður stutt í að þið sameinist og þörf sé á að opna fyrir orkuflæði slíkt sem þið hafið ekki séð hér fyrr á jörðunni.

Það mun sjást í austri sunnan megin við miðbaug. Ég hef mikla tengingu við Afríku og tel að þar séu margar sálir sem séu tilbúnar að fara þessa leið og hjálpa til hér á jörðu en spillingin er svo mikil og óttinn að þær ná ekki alltaf að vinna með þetta því óttinn truflar svo mikið.
Þið hefðuð þurft að dreifa boðskapnum með hugsanaflutningi en það verður hægt í framtíðinni þegar þið hafið komist lengra á því manneskjan hefur hæfileika til þess en stífnin er svo mikil og trúleysið að það er lokað fyrir svo margt sem ykkur er sannarlega fært að gera.

Haldist í hendur og leyfið orkunni að flæða á milli, finnið hvers megnug þið eruð og hvað ykkur er fært að gera. Notið dýrin og plönturnar meira því þær geta hjálpað ykkur og þið þeim. Þið búið öll hér og það er ástæða fyrir því. Steinarnir eru góðir sem æfingatæki og steinar náttúrunnar eru góðir til að ná tengingu og heilun en þegar lengra er komið er ekki nauðsynlegt að nota steina. Athugið að tengirnar eru misjafnar og enginn hefur sömu eða eins tengingu og annar en samt tengjast allir inn á hið sama. Þetta kann að hljóma ruglingslegt en er það ekki. Enginn upplifir eins.

Þú bíður eftir viðkurenningu frá einhverjum en það þarf ekki, viðurkenndu þig sjálf og það er nóg. Haltu áfram á sömu braut og finndu þér verkefni til að stækka svið þitt meira. Æfðu þig og þú munt komast þangað sem þú ætlar þér að fara. Sestu niður og finndu gula ljósið og leyfðu því að flæða yfir þig og inn í þig því þú þarft á því að halda núna og sendu streitutilfinningar út í burtu, losaðu þær úr þér og biddu um styrk því þú færð hann. Þú þarft ekki að upplifa neikvæðar tilfinningar því þær eru óþarfar en eiga samt svo auðvelt með að koma til þín.
Það mun breytast því þessar jákvæðu munu ná yfirhöndinni alla daga og þú munt ekki þekkja ótta og aðrar tilfinningar sem trufla þig í andlegri vegsemd. Þegar þú borðar mat sem hentar þá áttu auðveldara með að tengjast okkur og við getum auðveldara flætt til þín og í gegnum þig því maturinn getur haft áhrif á þig og líkamann þinn.

( Ég heiti ???? ) og ég ætla að koma hingað til að segja ykkur að það er gott að halda áfram og gott að fara beinan veg inn að orkuljósi þegar maður er týndur og veit ekki hvað maður vill þá skaltu labba eftir silfurbrautinni að stóru orkukúlunni sem lítur út eins og hún sé pláneta með ljósi og þú getur farið þar inn og þar muntu sjá hvaða leiðir eru ákjósanlegar að fara þegar þú ert villtur farðu þá á beinu brautina og haltu áfram að ganga þar til þú sérð orkuna og farðu þar inn. Þér mun verða leiðbeint og vertu dugleg að fara eftir leiðsögn og hlusta á skilaboðin sem við færum þér og vertu dugleg að punkta þau hjá þér því þú átt það svo til að gleyma.
Taktu líka eftir þegar við bendum þér á hluti sem þú vekur meiri eftirtekt en aðra hluti því þannig getum við átt samskipti við þig helst þegar þú ert ekki aðhlusta á hvað við höfum að segja í amstri dagsins.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Ný ósjálfráð skrif frá miðli 4 október 2011

Þú stígur upp á þitt hærra svið og ferð eins og þú sért að labba upp tröppur sem ekki sjást. Þú skynjar hærri tíðni og gætir fundið hana líkamlega þegar hún skellur á þér eins og mjúk bylgja. Haltu áfram á sömu braut.

Friður á jörðu mun ekki nást fyrr en hugarfarsbreyting hefur átt sér stað yfir heiminn þar sem of mikil spilling er í hugum mannsins því þeir hafa ekki trú á að jarðarbúar hafi allt til alls og finnst alltaf vera skortur á einhverju meira og betra og því fara þeir í keppni um að ná til sín meira og meira og vilja hafa aukið vald með. Ótti stjórnar þessu og óttinn er það fyrsta sem við þurfum að losna við. Það er ekkert að óttast það hafa allir nóg og ættu allir að hafa nóg. Ef þeir bara trúa og vilja sjá og skynja þá myndu þeir sjá að hlutirnir eru sem þeir eru út af óttanum um að eiga ekki nóg.

Það gæti komið annað stríð bráðum út af sömu ástæðum. Nú er svo mikill ótti og reiði í fólki og þessar neikvæðu bylgjur og tilfinningar hafa áhrif á svo marga sem finnst þeir þurfa útrás fyrir þær og reyna að losa um þær á rangan hátt.

Móðir jörð er búin að fá nóg, það er svo mikil reiði sem fer í hana líka og hún þarf að losa við spennu og hreinsa til sjálf og það gerir hún i formi jarðskjálfta og annarra náttúruhamfara. Hjálpið jörðinni ykkar með því að hjálpa sjálfum ykkur því þið eruð eitt.

Við megum ekki grípa fram fyrir hendurnar á ykkur sem lifið hér, þið verðið að vilja fara þessa leið og vera opin fyrir því að vera móttækileg fyrir því sem kemur til ykkar. Öll fáið þið tákn og leiðbeiningu en svo margir heyra ekki og sjá ekki hvað er verið að sýna þeim og halda áfram á þeim vegi sem þeir hafa valið sér og vita ekki betur að það er hægt að breyta um farveg og hægt að beygja og snúa við á hvaða tímapunkti sem er.

Fyrirgefningin er svo kröftug þið þurfið að vera duglegri að fyrirgefa sjálfum ykkur og fyrirgefa öðrum inni í hjartanu ykkar svo þið hafið ekki reiði inni í brjóstinu sem truflar orkuflæðið ykkar og hindrar að þið náið árangri í lífinu. Stundum er nóg að stroka út fyrir suma, að eins og þeir stroki út tilfinningarnar og það sem þeim veldur en aðrir þurfa að kryfja betur og fara yfir skref fyrir skref og nota svo mátt hugans og fá hjálp við að ná fyrirgefningu í hjartanu til að verða hreinir þá verður allt gott.

Látið kærleikann stjórna lífinu og stjórna huganum og þið munuð sjá að þá fara hjólin að snúast og ykkur líður betur.

Lifið í ljósinu en ekki í skugganum og séuð þið í skugganum færið ykkur í átt til ljóssins svo það geti harmonerað betur við sálina ykkar og hjálpað ykkur á réttar slóðir. Við getum bara beðið á meðan þið áttið ykkur en þó við bíðum, þá bíður tíminn ekki með okkur og hann líður áfram.

Sendið ákall til þeirra sem þið viljið fá með ykkur, sendið það huglægt og biðjið fólk að opna sig og vera móttækilegt. Til að það geti hlustað og hjálpað.

Þú þarft að vera duglegri að æfa þig og fara eftir leiðbeiningum það er ekki nóg að opna fyrir tenginguna eins og þú gerir nú því þú getur gert svo mikið meira en þetta en til að geta það verður þú að fara eftir því sem þér er leiðbeint með og vera dugleg, þú veist hvað ég er að tala um.)

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Leyfið huganum ykkar að bera ?

6.okt.2011

Ef þið notið tengingar ykkar til að ná að slaka á þá er það æðislegt og með því betra sem þið getið gert fyrir ykkur sjálf til að losa út streitu og þreytu.

Leyfið huganum ykkar að bera ykkur hvert á land eða hvert í heim sem er og finnið hvernig ímyndunaraflinu er gefninn laus taumur og þá munuð þið fara á ókannaðar slóðir og ná jafnvel að kalla fram tilfinningar sem þið hafið bælt og grafið niður. Ekki stjórna huganum heldur bara flakka og fara hvert sem ykkur girnist.

Við skulum vinna með bleikan lit í dag, lit kærleikans. Kærleikurinn er mér ofarlega í huga því að hann er eitt af því sem mestu máli skiptir að halda á lofti í lífinu og sérstaklega núna á þessum tímum sem þið gangið í gegnum.

Það er ekki nóg að fá brauð og mat ef enginn kærleikur, náungakærleikur og kærleikur til ykkar sjálfra er í brjóstum ykkar. Virkið hann, leitið hann uppi.

Hugsið um það sem er ykkur kærast og finnið hvernig hjartastöðin ykkar dafnar við það, finnið tilfinninguna líkamlega og andlega og staldrið við, finnið hana og stoppið í henni þannig að hún fái að dafna og lifa með ykkur en ekki gleymast í hraðanum sem einkennir ykkar líf.

Þá er nauðsynlegt að hugsa aðeins um hvort þið hafið gert gott í dag? Gott gagnvart ykkur sjálfum, hafið þið hugleitt orðin sem þið hafið látið út úr ykkur, hugsanirnar sem þið hafið sent út í heiminn. Eru þær fallegar og góðar eða hafa neikvæðar slæðst með. Þurrkið út neikvæðar hugsanir, snúið þeim yfir í andhverfu sína og temjið ykkur jákvæða hugsun.

Það tekur stundum svolítinn tíma en allt er hægt og það kemur fljótlega ef fólk er meðvitað um hvernig máttur hugans er og hvað þið getið í raun haft mikil áhrif á ykkar huga ef vilji er fyrir því.

Hafið þið gert gott gagnvart öðrum? Hafið þið hugsað fallega um aðra eða til annarra, beðið fyrir einhverjum í dag, hjálpað einhverjum í dag.

Faðmað einhvern af mikilli hlýju og gefið af ykkur. Klappað dýrunum eða strokið þeim blíðlega og sett ást í hreyfinguna. Það er gott að gefa af sér og það er gott fyrir ykkur að virkja tilfinningarnar, góðu tilfinningarnar með því að setja þær í verkin, setja þær í hugsanir ykkar og leyfa þeim að verða stór partur af ykkar lífi.

Smá skref í upphafi geta orðið að langhlaupi þegar upp er staðið. Haldið áfram á sömu braut og munið að allt sem þið gerið og hugsið skiptir máli.

Umturnið hugsunum og lífi ykkar inn á jákvæðar og fallegar brautir og þið munið sjá hvernig ykkur fer að líða betur.

Góð orka laðar til sín góða orku. Þetta er svo einfalt í eðli sínu en ekkert er í raun einfalt fyrr en maður veit sannarlega af því.

Hugleiðið inn á friðinn, frið í hjartanu ykkar, frið inni í jörðinni og frið á jörðinni. Frið í stríðshrjáðum löndum, frið hjá stjórnmálamönnum, frið í hjarta þeirra og huga.

Friður þýðir ekki bara að vera ekki í stríði, friður er svo mikilvægur eiginleiki. Að geta fundið frið í hjarta sér og huga er alveg nauðsynlegt til að geta slakað á.

Þið þurfið að tóna ykkur niður og leyfa ykkur að gera það að minnsta kosti einu sinni á dag, að eiga stund þar sem þið stillið ykkur niður á friðinn og róna, ekki fyrir framan tæki og tól sem afvegaleiða hugann og veita endalausa afþreyingu sem matar ykkur, heldur er betra að eiga frið með sjálfum sér eða með öðrum, þar sem hugurinn fær slökun, þar sem hjartað fær róandi tilfinningu til að tóna sig niður um smávegis ef þið hafið verið á miklum hraða sem einkennir ykkur og ykkar samfélag.

Farið út, farið í bað, sitjið og hugsið, hlustið á tónlist eða teiknið mynd. Hvað sem er sem veitir ykkur friðþægingu og ró. Munið að róin er mikilvæg, til að ná ró á hugann, til að ná ró á hjartað, til að ná að hugsa skýrar og sjá hlutina í réttu ljósi getið þið ekki þeyst áfram á hraðanum án þess að slaka á.

Þið þurfið að undirbúa ykkur undir það sem eftir er af lífi ykkar, þið þurfið að taka meiri þátt í ykkar eigin lífi en ekki vera bara peð sem umheimurinn stjórnar og þið fylgið bara með.

Hvar eruð þið á bak við allt sem samfélagið hefur skapað í kringum ykkur?

Finnið rótina á sjálfum ykkur og finnið hvaða leiðir þið sjálf í raun og veru viljið fara, finnið ykkar kjarna. Biðjið um hjálp og þið munuð fá hana, leiðsögnin er alltaf til staðar en eins og ég hef sagt áður þá þarf að vilja heyra og vilja sjá. Látið ykkur skipta máli, látið ykkur finna að þið skiptið sjálf ykkur máli og hættið að velta því fyrir ykkur hvað öðrum finnst og hvað ókunnugum finnst um þær leiðir sem þið farið með ykkur sjálf.

Þið lifið hér fyrir sjálf ykkur, látið gott af ykkur leiða og notið tímann vel til að þroska ykkur, þróa ykkur , læra og gefa, kenna öðrum. Það er það sem skiptir máli.

Varðandi eldgosið í Kötlu sem svo margir hafa áhyggjur af hér þá er hægt að segja að hún muni koma með skot og bresta, það kemur gos en við getum ekki sagt ykkur nákvæmlega hvenær það verður eða hvernig því við erum ekki svo mikið að stilla okkur inn á orku fjallsins eða tímasetja hluti á þennan hátt.

Önnur eldfjöll munu gjósa en Ísland er ekkert sér á báti varðandi náttúruhamfarir eða eldgos.

Það þarf að hafa áhyggjur af hitabreytingum og kulda. Ósonlagið ykkar hefur breyst og þið verðið að undirbúa ykkur undir að veðurfar getur breyst í þeirri mynd sem þið þekkið það. Stólið ekki á að veðrið haldist eins og það hefur gert í langan tíma. Ísland mun þó standa vel að vígi í framtíðinni náttúrufarslega séð og engar áhyggjur sem þið þurfið að hafa af því, það verður vel byggilegt og langt er í að við sjáum fyrir matarskort eða annan skort á landinu sem gæti farið að valda því að fólk gæti ekki búið þar.

Setið fyrir svörum að handan.

Setti beinar spurningar fram fyrir miðilin með skriftirnar til að stýra umræðunni og að fram kæmu myndræn brot með svörunum.

Spurning: Hvað er best að gera úr því að ekki má lengur ræða trúmál í skólum landsins hvorki fyrir þau minnstu eða eldri vegna fjölmennra trúarbragða?

Svar: Farið til baka með tímann og skoðið hvernig hlutirnir hafa verið settir í samhengi í öðrum löndum þegar það hefur ekki mátt ræða trúna og stjórnmálin fara að skipta sér af. Það er allt gott við að mega ekki ræða bara eina tegund af trú því ekki er ein trú réttari en aðrar. Á meðan boðskapur trúar ykkar er góður og réttur að því leytinu til þá ætti ekki að skipta máli hvernig trúin er sett fram eða hvernig hún er rædd.

Foreldrar þurfa að bera ábyrgð á sínum börnum og finna hvernig þeir finna bestu nálgun í að ræða þessi mál og fræða börnin sínum um það sem er rétt og rangt í heiminum og lífinu. Margir vilja styðjast við bækur og boð og bönn og er það vel ef boðskapurinn kemst réttur til skila.

Spurning: Hvernig er best að þétta kærleikinn og trúna hér á landi?

Svar: Best að boða trú og von og kærkleika með því að fræða börnin okkar og gera þau meðvituð um að hver hugsun skiptir máli, hver tilfinning sem fer í gegnum þeirra hjartastöðvar og allt sem þau gera eiga þau að vanda sig við að gera. Það á að vanda sig í samskiptum, það á að hugsa vel um sjálfið og passa að bera virðingu fyrir heilsunni og huganum.

Það þarf að kenna sumum eins og þeir séu enn börn því margir hafa verið svo afvegaleiddir í sínu uppeldi og vilja ekki fara eftir því sem þeir vita innst inni að er rétt, því þeir neita að trúa og eru fastir í veraldlegum hlutum.

Best er að boða þetta í litlum skömmtum til að geta náð til sem felstra. Þeir sem eru á réttri braut þær sækja fróðleikinn sjálfir og fá leiðbeiningu en best er að kynna þetta fyrir þeim vantrúuðu með því að láta þá fá litla hluti til umhugsunar sem gætu valdið hugarfarsbreytingum smátt og smátt.

sýn miðils"Á meðan hann fer yfir þessi tvö atriði þá eru mér sýndar margar gamlar bækur og er eins og sumar þeirra séu settar fyrir framan mig. Ég kann ekki skil á bókunum en sé að þær eru ævagamlar og með brúnni og skældri kápu.

Farið er með mig til baka langt aftur í tímann. Ég sé fólk (karlmenn) tala við börnin sín og sýna þeim myndir í bókum eins og einhvers konar fræðsla eigi sér stað.

Spurning: Mér sýndist hafalda frá Kanaríeyjum þegar hluti fjalls féll í sjó fram og skapa gríðar öldu sem færi þvert yfir hafið á ógnar hraða alveg til Californiu og setti ég þetta inn í spána mina.

Svar: Kalifornía er og verður miðstöð fyrir mikla og öðruvísi orku. Þar er mikil spilling og fólk er í vandræðum með sjálft sig og með hvert það er að fara í lífinu.

Náttúrumhamfarir af ýmsum toga eiga eftir að hafa áhrif á jörðina og fólkið á jörðinni því ein jörðin er að gefast upp og það er svo mikil spenna sem losnar um með miklum umbrotum sem hafa afleiðingar.

Tsunami bylgjur gætu farið víða á land þar sem þær hafa ekki áður farið og er hafið og lífríki þess að breytast með tilkomu breytingar á mikilli orku sem er að koma til og er byrjuð að koma til jarðarinnar og þið hafið fundið og vitið af.

Sýn miðils: Gylltar strandir, löng strandlengja með gylltum sandi. Sé nær mér mannfjölda að ganga eftir göngustígum eða götu við strönd í borg. Mikill hraði á fólkinu og asi, enginn lítur upp, það er eins og allir séu bara að hugsa um sjálfan sig að æða hratt áfram.

Farið er með mig annað, ég sé eins og klett brotna hátt uppi en sé ekki hvar hann lendir, bara sé sprunguna og þegar hann losnar frá, gerist fyrst hægt (sprungan) en svo brotnar hann af með meiri hraða. Mér eru sýndar stórar öldur úti á hafi en fæ ekki að sjá þær lenda á landi neins staðar.

Spurning: New York því bæði ég fyrir 2 árum og fleirum finnst borgin illa farin eftir hamfarir??

Svar: New York er og verður í sárum eftir það sem hefur gerst og mun gerast þar.

Hryðjuverk hafa verið unnin og orkan þar er alls ekki í lagi en inn á milli eru þar fólk sem er að reyna að breyta rétt og boða út bosðkap sem fleiri ættu að hlusta á og meðtaka.

Það mun þó ekki ná nema til brota brots af þeim sem dvelja í þeirri borg og ég sé fyrir mér að það verði þungt yfir borginni sökum peningamarkaðs og borgarar í borginni munu rísa upp og efna til styrjaldar sem hefur áhrif á alla sem þar búa.

sýn miðils:Ég sé yfir New York borg, eins og ég sé að fljúga yfir borgina. Ég sé margar byggingar, sumar þeirra eru háar og Frelsisstyttuna í fjarska frá byggingunum.

Það er eins og grá slikja eða mistur yfir borginni og ég sé ekki fólk, enda er ég í fjarlægð og er eins og svífandi fyrir ofan. Ég sé bara endalausan gráan lit bæði á húsum og öllu umhverfi.

Eins og grái liturinn umlykji allt og það sjáist varla í gegnum hann. Ég veit ekki hvort það er verið að sýna mér mengun, að þetta sé borgin eins og hún er í dag eða hvort þetta er einhver orka sem er yfir borginni núna eða í framtíðinni.

Spurning: Ég var búinn að sjá fimbulfrost og óveður víða í Evrópu 2011

Svar: Hafið og himinhvolfin ykkar eru að breytast. Getur verið að þetta sé að hafa áhrif á veðurfar? Já það hefur það en smátt og smátt munuð þið sjá heitari sumur og kaldari vetra.

Snjór og frost munu setja mark sitt á líf ykkar á norðuhveli jarðar og Evrópu, norðanvegin við miðbaug verða miklir kuldar og frost og fólk þarf að búa sig vel og passa upp á viðkvæm hús þar sem ekki allar lagnir ráða við frostið og kuldann og gæti því mörgum orðið kalt og það gæti farið illa með suma.

Hafið er að breyta stefnum sínum á ákveðnum stöðum en það er í svo litlum mæli núna að vísindamenn eiga erfitt með að greina breytingarnar strax en það mun þó smátt og smátt sjást að breytingar eiga sér stað og er hægt að sjá það á lífríki hafsins og þeim sem lifa þar að þeir eru farnir að breyta stöðum sínum og færa sig til.

Fiskar og aðrar verur eru farnar að vera þar sem þær hafa ekki verið áður og fara smátt og smátt af þeim stöðum þar sem áður hentaði þeim að vera og ættu vísindamenn sem hafa áhuga á þessum efnum að veita því meiri athygli.

Kuldavetur get ég ekki tímasett betur en svo að þið munuð finna smátt og smátt breytingu og fyrr en varir skellur á ykkur frost. Hafið þó ekki áhyggjur.

Sýn miðils: Miklir kuldar, fólk að ganga eftir götum með trefil upp í háls og kappklætt, heldur um sig og fólk gengur um rjótt í kinnum og mikill strókur kemur út úr munninum eins og í miklum kulda. Geri mér ekki grein fyrir umhverfinu, ekki á Íslandi, frekar í borg eða bæ annars staðar í heiminum.

Mikið frost og snjór yfir öllu og klaki víða. Sé hafið, hafstrauma í sjónum, eins og hringiður. Sjórinn er dökkur á lit, sægrænn en dökkur eins og á miklu dýpi. Það er ólga í honum en ekki mikið brim. Inn á milli sé ég hringiður.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Hvað á ég að gera við þær upplýsingar sem þú gefur mér ?

10.10.2011.

1. Hvað á ég að gera við þær upplýsingar sem þú gefur mér sem varða ekki einungis mig, heldur okkur öll?

Við förum og svífum yfir hafið og fjöllin og þú munt fá að sjá ýmislegt sem ég tel að þú þurfir að sjá og þurfir að upplifa til að ná að þroska þig. Þú getur ekki tekið aðra með þér í sýnirnar en þú getur lýst þeim ef þú telur að það gagnist öðrum þá endilega gera það.

Ég mun ekki koma til með að segja þér hvernig þú átt að segja frá þessu, þú velur þær leiðir sem þér finnst árangursríkastar.

Það er ekki spurning um að ná til sem flestra heldur að ná til rétta hópsins, fólks sem les eða hlustar og meðtekur það sem þú segir. Það þjónar litlum tilgangi að breiða út boðskap til þeirra sem eru ekki móttækilegir fyrir honum og afskrifa allt sem þeir heyra og sjá áður en þeir vita um hvað er verið að tala.

Þó er gott að geta náð til sem flestra af þeim hópi sem ætti þá að vera hópurinn sem hefur áhuga á þessum málefnum sem við erum að fara yfir. Best er að kynna fyrir hinum í litlum skrefum, því þeir geta ekki meðtekið heildarmyndina strax.

2. Geturðu sagt mér eitthvað um mín fyrri líf? Gefið mér lýsingu á þeim?

Við skulum fara til baka saman og finna hvað þú tengir þig við. Ég sýni þér hér sandinn og húsin sem eru í sandumhverfinu.

Hér erum við að skoða blóma lífs þíns, blóma lífs í einu af þínum lífum er þú lifðir sem maður í Mið-Evrópu þar sem var mikill gróður i kringum þig. Þú gekkst á fjöll og naust þess að vera úti í náttúrunni við að týna alls kyns grös og nota þau í lyfjagerð.

Asía 1299, erfitt lífsskeið sem þú gætir þurft að reyna að fara yfir til að ná að opna betri tengingar við þann lærdóm sem þú lærðir þá þarna í því lífi sem þú þruftir að þjást mikið og varst ekki móttækileg fyrir þeim lærdómi sem þér var sendur þá.

Sálin hefur tekið mikið vaxtarstökk á þeim tíma síðan en þú hefur aldrei spurt réttu spruninganna varðandi þetta líf þitt og er kominn tími til að fara betur yfir það sem gerðist þar.

Lestu bækur eða efni um Kína frá þessum árum sem ég gaf þér áðan og það gæti hjálpað þér að muna.

sýnir mínar: Hér sé ég miklar sýnir þegar hann fer með mér yfir þetta. Fyrst sé ég eins og eyðimerkur landslag þegar hann talar um sandinn og hús sem eru byggð sennilega einhvers staðar í Afríku eða Arabalöndum þar sem húsin eru ljós og svona ljós sandlitur er áberandi bæði á jarðvegi og húsunum. Ég sé fólk ganga um en enginn þeirra sér mig.

Ég fæ að sjá sjálfa mig, er dökk yfirlitum og ég er að elda mat með einhverjum kryddjurtum. Kryddlyktin er áberandi. Ég sé að fólkið er klætt svipað og leiðbeinandi minn, berleggjað í sandölum og einhvers konar mussum eða kjólum.

Næst sé ég blómstrandi runna og mikinn gróður. Ég sé fjöll sem minna á Alpana og finn mikið ferskt og hreint loft en samt er ekki kaldur andardrátturinn.

Því næst er farið með mig til Asíu og mér finnst það hálf erfitt enda hef ég ekki góða tilfinningu fyrir Asíu yfirleitt og langar alls ekkert að fara þangað. Ég sé kínverskar konur sem eru með uppsett hár. Ég er stödd í kuldalegri byggingu úr gráum stein.

3. Hvað geturðu sagt mér um plánetuna Elenin eða loftsteina? Erum við á jörðinni í hættu vegna þeirra?
4. Hvað geturðu sagt mér um pólskipti jarðar? Hvaða áhrif munu þau hafa?

Rykský og erfiðleikar er það sem ég hef að segja varðandi þessa stjörnu og steina. Jörin verður aldrei söm og mikið mannfall verður. Líf mun ekki strokast út en líf eins og þið þekkið það mun kollvarpast og breytast mikið. Farið verður aftur til frummannsins nánast varðandi fæðuöflun og lifnaðarhætti sem snerta fæðu.

Þó munuð þið geta tekið með ykkur hluta þess tíma sem þið þekkið og búið að þeirri þekkingu sem er til staðar í dag.

Við skulum skoða það að það þarf að hjálpa sem flestum að skilja hvað lífið er og hver boðskapur þeirra lífa er, þannig að þeir nái að þroskast sem mest þegar þessi tími genugr í garð.

Ég sé ekki árið tvöþúsund og tólf frekar en annað ár en ég mun ekki gefa ykkur dagsetningu á þessum hamförum. Það eina sem ég get sagt ykkur er að það er óumflýjanlegt að hlutirnir breytist og þið vitið það mörg og bíðið í raun eftir hamförunum.

Ekki bíða eftir þeim, lifið lífunu ykkar og verið hamingjusöm. Ótti er aldrei af hinu góða og gerir ekkert annað en að hindra ykkur í þeim farvegi sem þið hafið valið ykkur að fara.

Leyfið lífinu að halda áfram, gerið það sem ykkur langar og ekki hugsa um framtíðina of mikið því lífið er núna og þið þurfið að læra að lifa í nútíðinni og hætta að velta ykkur upp úr fortíð og framtíð.

Framtíðin er breytileg ekkert er alveg öruggt og margt getur haft áhrif þar á. Þó er hægt að segja hlutina með ákveðnum líkindum. Best er að lifa daginn í dag og lifa alla daga á meðan þeir eru, ekki fara á undan og ekki vera á eftir. Þá missirðu af því sem lífið er að kenna þér í nútímanum og það er það sem mestu máli skiptir að fara yfir tilfinningarnar eins og þær eru í dag en ekki eins og þær voru í fortíðinni því fólk þroskast og þróast og upplifir nýja hluti á hverjum degi og því er ekki rétt að horfa til hvernig tilfinningar voru hér áður fyrr, áður en þú varst búin að þroskast og ná að draga lærdóm af hlutum í millitíðinni.

Hafið ekki áhyggjur af hamförum jarðarinnar, þær eru óumflýjanlegar en við skulum vera róleg og sjá hvernig hlutirnir þróast og hvenær það mun gerast.

Heilagur Frans af Assissi kom með mikla visku til jarðarbúa og gott er að skoða það sem frá honum kom því það getur hjálðað mörgum að lesa það sem hann sagði og opnar fyrir ákveðinn skilning. Meðtakið það sem ykkur er sagt, meðtakið fræðslu og meðtakið það sem þið finnið og hættið að lifa í svona rosalega mikilli rökhugsun því þið takmarkið ykkur sjálf með þessari kassahugsun sem á sér stað.

Þið þurfið ekki að hafa áhyggjur af þessum litlu sem þið eigið. Þeir eru mjög sérstakir og hafa verið sendir til ykkar.

Þið farið inn á þessa braut á hárréttum tíma og þið munuð einna helst ná að taka þá með ykkur og leiðbeina þeim inn á þessar slóðir því þar eiga þeir heima.

Ykkar hlutverk er að koma þeim til manns og halda þeim inni á réttum brautum og hjálpa þeim að mynda sem nánasta samband sem hægt er.

Farðu vel með upplýsingarnar, geymdu þær því þú munt ekki muna þær. Geymdu þær til að lesa þær síðar þegar þær eru ekki svona ferskar í minni eins og þær eru eftir að ég birti þær yfir þér.

Mundu sýnir mínar og vertu dugleg að gera eins og þú veist að þú átt að gera farðu nú að borða rétt og haltu áfram.

Þið eruð á réttri leið og leiðin mun skýrast þegar frá líða stundir, þegar nær dregur. Ég mun láta þig vita ef þú ferð á villigötur og geri það sem í mínu valdi stendur til að ná til þín ef þú ert að breyta rangt.

Þú munt ná sambandi við fleiri en mig og geta víkkað út sjóndeildarhringinn þinn til að læra að boða út það sem þú þarft að kenna fólki þegar tíminn er réttur.

Þór er á hárréttum stað í lífinu, hann er á hárréttum stað. Sál hans er gömul og þroski hans er mikill, öflugar eru tengingar og hann hefur marga góða með sér í því sem hann er að gera.

Hans hlutverk er að hjálpa og gefa ljós og hann ber ljósið út meðal manna. Hann mun líka taka að sér að kenna fleirum og er mikilvægt að hann haldi því áfram því hann er með öflugar og hreinar tengingar.

Treystu honum og haltu áfram að fylgja honum, hann getur farið með þig langt og ég leiddi þig til hans af ástæðu. Hann er líka góður vinur og mundu það.

Varðandi leiðbeinendurnar sem ég ræddi um í gær þá er ég að meina fólk sem hefur hærri tíðni en venjulegt er á ykkar jörðu, fólk sem getur átt samskipti við æðri verur sem geta leiðbeint betur þegar kemur að því að þið þurfið frekar á því að halda að fara dýpra og betur í hlutina og þá þarf að hafa manneskjur sem geta tekið á sig að útskýra, að heila að hjálpa að kenna og hugga þá sem þurfa á að halda.

Miklar orkubreytingar eiga sér stað á ykkar plánetu og reyndar fleiri plánetum líka yfir þann tíma sem spannar núna.

Orkan sést ekki eingöngu á breytingum jarðar heldur sést hún á breytingum dýra hegðunar, breytingum tilfinninga manna og breytinga í hugsun hjá ansi mörgum. Þið farið inn í hærri orkusvið og það er verið að lyfta ykkur upp. Ekki allir sem þola það þó en margir þola það.

Margir þola það en geta samt ekki höndlað það sjálfir og óstuddir og því er þörf á að safna sem flestum ljósberum saman til að þið getið hjálpað, þið verðið að taka ykkur það verkefni og finna það í hjörtum ykkar að þið hafið þá kölllun að hjálpa lífinu að halda áfram.

Ég segi lífinu því þið hjálpið jú ekki bara fólki heldur einnig öðrum lífverum og jörðinni sjálfri. Þið vitið þegar tíminn er kominn og finnið kallið en þið vitið líka að tíminn er mikilvægur núna og notið hann vel til að styrkja ykkur og láta ykkru líða vel svo þið komið sem best út úr þessu.

Varðandi þennan hring þá fer hann tákn um hreinleika, ódauðleika og skuldbindingu við hið æðra. Þú hefur valið þér mikilvægt verkefni og þú fylgir þínum ljósvegi vel og ferð eftir þinni braut.

Ég sé hreina og hvíta orku, hreina kristsorku í kringum þig og þú hefur farið á slóðir sem ekki margir menn hafa farið og fengið að upplifa hluti sem gefa þér meira en nokkur orð fá lýst.

Það er ástæða fyrir því að þú et færður inn á þetta hærra plan og færð að fara svona hátt með , hrein orka og hreint hjarta, hrein hugsun. Þú hefur hæfileika til að leiða, hæfileika til að kenna og hæfileika til að hjálpa, það hafa ekki allir þessa blöndu í sér sem þú hefur enda ertu langt kominn en munt ná enn lengra og verður það yndisleg reysla sem mun kenna þér meira en þú kannt nú þegar.

Þú hefur gott fylgilið, þeir sem vinna með þér eru kröftugir enda ekki vanþörf á því að þú hafir sterkar og ómengaðar tengingar við þá þegar þitt hlutverk er að bera út ljósið, bera út kærleikann og hjálpa öllum þeim sem þurfa á að halda.

Ég fer enn og aftur með þig í kirkjuna, dásamlegt að sjá orkuhjúpinn myndast þar fyrir ofan, nær langt út fyrir bygginguna og út til hiðanna og upp í himinn. Það koma svo margir að sem eiga erfitt með það en þarna geta þeir komið og þú hjálpar bæði þeim sem eru ykkar megin og hérna megin.

Þú munt þurfa að staðfesta trúna í hjartanu þínu og efla sjálfan þig enn frekar, hafðu ekki áhyggjur af neinu, þetta kemur til þín eins og áður og þú færð að vita meira þegar tíminn kemur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


þriðjudagur, 13. október 2015

Fundurinn var settur.

Upptaka af fundi í dag 28.10 2011.

Fundurinn var settur en að þessu sinni gerði ég smá breytingu en hún felst í því að færa farveginn til hliðar og leyfa stjórnandanum að koma fram fyrir og því betra samband og minni áhrif hugsunar farvegsins á meðan.

Spurning mín til hans í byrjun er að við vorum búnir að ræða um hringinn og tilgang hans en mig langaði að vita um allar þessar merkingar þeirra á v.helmingi líkama míns og fjölgar frekar enn hitt.

Þú skalt ekki að velta þér upp úr tilganginum annað en að þarna inn á milli eru kærleiksmyndir en þetta er mjög óvenjulegt af okkur að þetta sé gert á mannfólki og skýrist síðar.

Þá ræðir hann um ónauðsyn þess fyrir mig að þurfa staðfestingar fyrir öllu en þeir geri sér fulla grein fyrir nákvæmni minni og því verður mér svarað af hreinskilni af þeirra hálfu.

Spurður um deili á aðila sem kom og nýtti tækifærið að fá lánað talboxið mitt og ræða við viðstadda og kom stjórnandinn með nafn þess sem kom Guðmundur og vissi ég þá að þetta hafði verið Guðmundur Hermannsson móðurbróðir minn en hann lést fyrir fæðingu mína.

Aftur er komið inn á mikilvægi ljósberanna um að fara inn á brautir jákvæðrar hugsunar og gleyma einhverju sem gæti gerst í framtíðinni. Eyðið ekki tíma ykkar í óþarfa áhyggjur og deyfa orkuna með þeim hætti.

Hann vill gera ljósberunum grein fyrir mikilvægi þess að að halda heildina þar sem slíkt er nauðsynlegt.

Ég spyr um þessa óskaplegu kærleiksorku sem streymir yfir mig frá honum og svo sterk að maður vöknar við og hann segir það stafa af því að hann starfi eingöngu í hreinum kærleika og því sé hann kominn.

Þá kemur hann inn á bankahrunið í heiminum og segir það þjappa fólki saman því það sé eina vonin að fólkið og ríkisstjórnir tali saman með virðingu því að þá sjáið þið von.

Það þarf að hætta að hugsa um veraldleg gæði hvað það hefði átt eða getað átt í stað þess að horfa inn á við og á fjölskyldur sínar og sjá hve heppin þau eru.

Þú þarft að hjálpa þessu fólki sem best þú getur og ég svara að helst vildi ég bjarga heimsbyggðinni en hann svarar ekki alls staðar en þú munt líka starfa erlendis í fyllingu tímans.

Þú þarft að vita að hvar sem þú ert staddur þá sendir þú frá þér orku og kærleik í vöku og svefni enda alltaf tengdur.

Rætt var um fundinn stóra sem á að halda og ég nefni sept.2012 og svarið er að ég muni fá að vita það tímanlega.
Spurður um stjörnuhringi utan um augasteina mína þar sem farvegurinn sá þá stækka þegar ég var tengdur og svarið var að smávægileg líffræðileg breyting þurfti að gera á augum þínum til að geta unnið á þeim víddum sem þér er ætlað við kennslu og önnur störf fyrir okkur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Þú spyrð um sannleika varðandi orkustöðvarnar.

Góðar stundir 29.10.2011

Þær eru þarna, þær skipta líkamann ykkar og andlega líkamann verulegu máli. Hlutverk þeirra, þær hafa hver fyrir sig mörg hlutverk og gegna þeim án meðvitundar okkar. Ekki þurfið þið að kafa djúpt í að skilja hvernig hver og ein vinnur heldur skiptir máli að vita hvæar þær eru staðsettar, og kunna að hreinsa þær, kunna að virkja þær.

Fyllið þær af ljósi og látið ljósið hreinsa, látið hjartastöðina finna hvort það er eitthvað sem þeið eigið eftir að heila og hreinsa í henni sjálfri, hún tengist tilfinningum og tilfinningar tengjast oft samskiptum.

Hvaða samskipti hafið þið átt sem hafa skilið eftir sig í hjartastöðinni eitthvað sem þarf að endurvarpa huganum á og hreinsa út úr henni. Hvaða samskipti og tilfinningar hafa myndast í kringum þau sem hafa hjálpað hjartastöðinni að vaxa og þroskast.

Skoðið samband milli foreldra og barna til dæmis, hugsið um börnin ykkar með hjartanu ekki með huganum og látið hjartastöðina vaxa og dafna á þann hátt með því að hugsa um aðrar manneskjur eða dýr sem eiga stóran þátt í því að skapa hvernig tilfinningaverur þið eruð.

Ef þið rekist á hugsanir sem tengjast öfund, græðgi, hatri, almennum pirring eða þið finnið eins og þið dökknið og það kemur einhvers konar drungi yfir ykkur eftir að hafa hugleitt inn á samskipti sem hafa valdið þessum tilfinningum þá er spurning um að skoða það betur og fara dýpra og þið ættuð að biðja um hjálp við að laga það.

Ekki burðast með vonbrigði, reiði eða annað slíkt út í ykkur sjálf eða aðra því það heldur aftur af þroska og vexti ykkar og veldur stöðnun.

Þið viljið fá að vita meira, það er gott. Þorstinn í fróðleik er af hinu góða og svörin ættu að kalla á meiri þorsta eftir að fá að vita enn meira.

Ykkur er sýnt eins mikið og sagt eins mikið og þið ráðið við í það skipti, við megum ekki grípa fram fyrir þroskaferlið hjá ykur því þið þurfið að læra hlutina sjálf og megið ekki bara lesa það eins og í bók því þá er tilgangnum ekki náð.

Þið hafið valið ykkur að fara ákveðinn veg, hver fyrir sig og upplýsingarnar sem þið megið fá eru ekki alltaf það sem ykkur langar að vita í það skiptið því hugurinn hleypur á undan ykkur og ykkur langar að vita allt.

Opnið fyrir orkuflæði á milli orkustöðvanna ykkar, leyfið því að flæða óhindrað á milli og mynda heild sem er með kjarna víðast hvar þar sem orkustöðvarnar sjálfar eru staðsettar.

Víkkið út sjóndeildarhringinn ykkar með því að leyfa ykkur að dreyma, ímyndun og dagdraumar hjálpa ykkur að þróa og þroska með ykkur þriðja augað og hafið ekki áhyggjur af því hvað er ímyndun og hvað ekki. Þegar maður er að æfa sig þá skiptir það ekki öllu máli enda er ímyndun oft af hinu góða og gerir ekkert annað en að halda ykkur á réttri braut.

Enda er nauðsynlegt að vera lifandi og eiga sér drauma og þið eigið sannarlega að sjá fyrir ykkur þegar draumarnir ykkar rætast og leyfa því að taka á sig mynd í kollinum á ykkur því að skýrir markmiðin betur og þið munuð þá frekar feta ykkur inn á þær slóðir að ná þeim.

Ég hef sagt ykkur að halda ykkur á jákvæðum brautum, jákvæð orka er það sem þið þurfið að einbeita ykkur að á þessum tímum. Orkan í kringum ykkur og í ykkur hefur breyst og er að breytast enn og mun halda því áfram þar til hámarkinu verður náð. Ég mun ekki gefa tímasetningar sem munu ýta undir kvíða og valda því að þið gleymið því að það er ferðalagið að þessum tíma sem er að skipta máli en ekki hver útkoman verður þá, þið fáið að vita áður en að því kemur hvenær tíminn er og hvað þið eigið að gera.

Núna skiptir máli að breyta orkunni í huganum og hjartanu og láta kærleikann flæða á milli ykkar.

Myndið með ykkur hringi, þar sem þið notið kærleikann og leyfið honum að magnast upp og flæða. Hugleiðið á sama tíma, látið orkuna magnast upp með fjöldanum.

En gerið það líka í sitthvoru lagi og látið ljósið og þá yndislegu orku sem fylgir ljósinu og kærleikanum ná yfirhöndinni yfir kvíða og áhyggjur, yfir neikvæðni, sorg og reiði, yfir eftirsjá því þurfið sannarlega ekki að hafa eftirsjá og eigið að sleppa hendinni af slíkum hugsunum og tilfinningum og biðja um hjálp við að hreinsa þær frá ykkur og losna við slíkt sem veldur ykkur eingöngu vanlíðan og dregur úr ykkur.

Sjáið fyrir ykkur að þið séuð gangandi ljós, að þið leyfið ykkur að flæða. Að þegar þið hittið annað fólk að þá leyfið ljósinu ykkar að flæða um herbergið og leyfið því að fylla annað fólk líka. Fáið fólk til að hugsa jákvætt með ykkur með því að benda þeim á að fara jákvæðu leiðina að því sem það er að gera

Með tímanum þurfð þið svo að læra meira en grunnurinn er að halda sér inná brautinni þar sem trú og staðfesta, kærleikur og góðmennska ræður ríkjum.

Smávægileg atriði eins og láta eitthvað smáatriði fara í taugarnar á sér eins og þið orðið það, að láta smáatriði eða eitthvað í fari annarra hafa neikvæð áhrif á hvernig ykkur sjálfum líður er eitthvað sem þið þurfið að læra að breyta og sleppa takinu á.

Þetta er bara vani, eitthvað sem samfélagið ykkar hefur kennt ykkur með dómhörku sinni og formfestu á hvernig hlutirnir eigi að vera en í stað þess að horfa með opnum augum á hvernig hlutirnir eru raunverulega og samþykkja það með opnum hug.

Biðjið og verið þakklát fyrir það sem þið hafið, því innst inni ef fólk leiðir hugann að því þá eru allir þakklátir fyrir það sem þeir hafa. Allir hafa hluti sem þeim þykir vænt um, hluti sem þeir geta fundið að í hjartanu skipta þá svo miklu máli og notið þessa hluti til að byrja á að finna þakklætið, finna kærleikann gagnvart því fólki sem þið elskið.

Þroskið ykkur svo út frá því og sleppið því að dvelja yfir tímum sem eru liðnir, varðveitið minningarnar en ekki dvelja í fortíðinni og dvelja í því sem þið hafið þegar misst.

Ekki dvelja yfir því sem þið eigið ekki, því sem þið viljið öðlast í framtíðinni. Látið frekar svoleiðis hugsanir á jákvæðan hátt í draumana ykkar og setjið ykkur jákvæð og góð markmið með að þið viljið ná þangað seinna meir en lifið í nútíðinni og horfið með réttum augum á það sem er í kringum ykkur nú.

Gleymið ykkur ekki í lesefni sem skiptir ekki máli og munið að skoða ekki bókstaflegar merkingar þess sem ykkur er sagt og þið lesið heldur finnið boðskapinn í því og túlkið fyrir ykkur.

Það má lesa sömu bókina á margan hátt, fer eftir því hver er að lesa og hvaða boðskap hann þarf að fá í það skiptið sem hjálpar honum mest að þroskast. Þannig er það einnig í samskiptum og öðru því sem þið takið ykkur fyrir hendur, þið takið þann boðskap og þá fræðslu úr sem þið eigið að nota í það skiptið.

Nú vil ég miðla þessu til ykkar því ég vil að þið lærið að hugsa upp á nýtt með kærleikanum, þið sem þurfið að læra það. Að leyfa ekki efanum að pota sér inn í allt sem þið gerið heldur halda áfram og leyfa trúnni á hið góða og trúnni á ykkur sjálf að ráða för. Takið til ykkar það sem þið þurfið að læra, það eru einhverjir sem vita þetta en aðrir sem finnst gott að láta minna sig á og finna að þeir þurfi smá staðfestingu á að þeir séu að gera rétt og að þeir séu á réttri braut.

Þið hafið oft svo miklar áhyggjur af því hvað öðrum finnst og hafið áhyggjur af því hvað ykkur sjálfum ætti að finnast en gleymið því og verið þið sjálf og stolt af því að vera hver þið eruð og munið að þið hafið öll tilgang og ekki láta efa og skort á sjálfsöryggi koma í veg fyrir að þið finnið ykkar tilgang.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Transfundur 30 október 2011

Formáli:

Þessi fundur er sá allra sterkasti sem ég hef átt kost á og í fyrsta skipti fann ég ískuldaa neðan hnés og kærleiksorkan sem kom með að augun vöknuðu bæði hjá mér og farveginum því að þetta var eins og gamall vinu væri að snerta sálu mína.

Góðann daginn og velkomin

Sömuleiðis og þakka vel fyrir að fá að koma í þessa sérstöku sendiferð þér viðkomandi enda kominn langt að.

Við viljum á þessum stað í þróun þinni gera þér betur grein fyrir tengingum þínum og tilgangi.

Við þurfum að fara saman aftur til Mesopotamíu þar sem við störfuðum saman en þú var í konulíkama þá og barst nafnið María lítt þekkt en samt persóna með stórt hjarta til hjálpar þurfandi.

Okkur til undrunar hafa þessar 4 viðbótatengingar á mjög hárri tíðni komist slysalaust í þinn líkama og við sjáum ekki að þær skaði þig á nokkurn hátt en fáir hafa þær.
Þessar tengingar eiga eftir á næstu 2 árum eða svo á ykkar tíma verða hárfínar og þá munt þú finna að fullu mátt þeirra og tilgang.

Við skiptum okkur í hópa eftir því hvaða verkefni þú ert að vinna við en það eru gríðarlega margir sérfræðingar á bak við þig og þú ert í raun og veru aldrei einn.
Sérstakir jarðvistarhópar vinna um allan heim að skapa ró á umhverfi sitt sem þið sjálf hafið valdið með alvarlegum afleiðingum en það er erfitt hjá þeim en mun auðveldara hér á landi vegna áhuga og samheldni ykkar.

Við vinnum að því öllum árum að breyta hugarfari mannkyns til hins betra og það gerðum við í Mesopotamíu hring sem þar myndaðist og eftir að Kristur fæddist var búið að undirbúa komu hans en við vorum 15 saman.

Ég gekk undir nafninu Alexo á þessu tímaskeiðinu en það er svo merkilegt með þig að þú hefur valið þér aðila sem vinnaa að þjóðfélagsumbótum og í störfum sem lögreglumaður og þá í Bretlandi undir nafni Sir James.

Það var aðallega við rannsóknir fyrir tíma Sherloc Holmes an þú lékst þar tveim skjöldum að hjálpa þeim sem biðu aftöku vegna óréttlætis og gast þess vega hjálpað ógrynni fólks frá tortimingu.

Til þess að vinna þetta starf þurftir þú að afsala þér aðalstign þar sem þú valdir litla manninn en það gekk ekki í aðalsættum að vinna slík störf.

Þú ert í raun og veru að gera svo marga hluti í dag með þessari hreinu kærleiksorku öðrum til bóta að þú þorir varla að ræða það.

Bara svo að þú misskiljir þetta ekki að þá máttu vita að áður en þú fæddist hafði sálin þá þegar ákveðið vinnu farveginn og því skaltu ekki óttast þótt fólk finni mjög sterka orku umhverfis þig hvar sem þú ert staddur.

Þessi hópur okkar í fyrri tímum unnum við þrekvirki að undirbúa komu þess heilaga og ljósið sem fylgdi honum sem hann útbýtti til dauðadags.

Hún mun með tímanum verða enn sterkari og sjáanlegri en hún er þér nauðsynleg til að geta snert og sett ljós í hjörtu sjúkra sem hækkar um leið tíðninni kjarnan.

Kirkjur eru þér heilagar að koma þar og eiga stund með sjúkum og þess vegna hefur þú svo sterka á bak við þig og langar biðraðir að fá að nota talboxið sem við prufuðum á síðasta kirkjufundi.

Að lokum vil ég þakka fyrir það tækifæri að fá að ræða við þig í fyrsta sinn en þetta var ákveðið svona í því efra.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Farðu inn á við.

1. nóv. 2011.

Farðu inn á við, leitaðu alltaf inn á við þegar þú þarft að taka ákvarðanir og finndu hvað hjartað segir. Þið notið hjartastöðina ekki nóg enda er hún ekki að virka sem skildi hjá mörgum ykkar.

Farið þá leið að vinna í því að reyna að opna hana eins og þið getið, því það mun skipta miklu máli upp á framtíð ykkar að gera.

Þið lifið á tímum mikillar firringar og hafið afneitað því sem ykkur hefur verið kennt og sýnt í gegnum í staðinn fyrir gæði sem geta ekki fylgt ykkur áfram, gæði sem kenna ykkur ekkert og þroska ykkur ekki.

Við sáum þetta ekki fyrir og það þarf mikla vitundarvakningu hjá manneskjunum sem byggja þessa jörð til að laga það sem farið hefur miður.

Við höfum undirbúið ykkur en því miður eru ekki margir móttækilegir fyrir því en við munum halda áfram að hækka tíðni ykkar, hækka orkuna sem þið lifið í svo þið verðuð betur undir búin undir orkubreytingar komandi tíma.

Til að geta tekið við og geta tekið þátt þurfið þið að hafa hjartastöðina opna. Þið þurfið að hugsa í kærleika og lifa í kærleika. Þið þurfið að sameinast þið, þurfið að lifa saman sem ein heild en ekki einangra ykkur í sitthvoru horni og lifa í myrkri og neikvæðni.

Hafið ekki áhyggjur það gerist sem á að gerast og það er óhjákvæmilegt. Við förum með ykkur og fylgjum ykkur en þið þurfið að vakna til lífsins og taka ákvarðanir sem þið verðið að taka með hjartanu en ekki með hugsun ykkar.

Mótið ykkur sjálf, hugsanir, orð og orkan í kringum ykkur mótar ykkur og heyrið nú að það skiptir máli og ekki ýta þessu frá eins og þetta sé hvert annað sem þið lesið sem snertir ykkur ekki.

Þörf er á að endurmóta það sem þið gerið, að móta upp á nýtt hugann og hjartað og ýta frá þeirri firru og því sem þið þekkið af umhverfinu í kringum ykkur og leitið inn á við, leitið í trúnna og leitið eftir staðfestingu í hjartanu ykkar.

Ekki öll ykkar sjá og heyra, ekki öll eruð tilbúin til þess en við notum farvegi til að koma til ykkar upplýsingum og fræðslu sem þið ættuð að taka til ykkar og samsama ykkur með þó að þið upplifið sjálf ekki að fá að sjá eða heyra.

Sleppið því að hugsa alltaf um hörmungarnar í kringum ykkur og reynið frekar að nota hugann til að breyta flæðinu í hina áttina, hugsið um þá hluti sem virkilega skipta máli fyrir ykkar andlega ferðalag, það sem þið eigið að læra og meðtaka í lífinu ykkar.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Tilgangurinn er mikill.

7 Nóvember 2011

Tilgangurinn með því að ganga hér á jörð meðal ykkar og þið meðal hvors annars. Þið sjáið ekki öll tilganginn en það má benda ykkur á að tilgangurinn helgast allur samkennd, hann helgast kærleika og hann helgast því að sjá ljósið í hvort öðru.

Að læra að elska ykkur sjálf skilyrðislaust og að læra að elska aðra og stækka ykkur á þann hátt og maður gæti sagt að reyna að hámarka sig en það er aldrei hægt að ná hámarki þó því vöxturinn heldur endalaust áfram.

Opnið fyrir flæði ljóssins, opnið fyrir það inn í hugann með því að færa ykkur í átt til betri lífs og opnið fyrir það í hjartanu með því að leyfa ykkur að elska. Ekki kryfja og efast um þær tilfinningar sem þið finnið. Leyfið þeim að vaxa og dafna og leyfið nýjum tilfinningum að koma til ykkar.

Þið eruð tilfinningaverur, þið eruð ljósverur og þið lifið því miður of mörg í skugga og án sambands við ykkur sjálf.

Það þarf ekki mikla vinnu til að virkja sig á þennan hátt, bara að gefa sér smá tíma til að opna aðeins fyrir gáttina og leyfa hlutunum að flæða og koma sjálfkrafa.

Það er margt stórt að gerast, stórt á ykkar mælikvarða. Indland, Grikkland, Rússland. Jarðskjálftar, eldgos, efnahagsvandræði og mannvonska sem kemur upp á yfirborð. Spilling.

Ég gæti talið upp lengi, farið varlega og gleymið ykkur ekki í hörmungum ykkar heims, gleymið ykkur frekar í gleði heimsins og því sem veldur góðum tilfinningum en ekki kvíða og vanlíðan.

Það er verið að stilla af orkuna hjá ansi mörgum, það þarf að samræma orkuna við þær orkubreytingar sem hafa orðið á plánetunni og það tekur tíma að finna jafnvægið aftur fyrir ykkur sum.

Það munu verða kraftar sem valda miklum breytingum sem þið eigið eftir að reyna að skilja en vísinda­menn ykkar tíma fá engan botn í, enda er kunnáttan takmörkuð.

Það verða breytingar á landi og sjór mun ganga á land jafnframt í kjölfarið og það verður erfitt fyrir ykkur að skilja hvernig eða hvers vegna þett gerist. Ég fer ekki nánar út í það, bíðið og sjáið og látið ekki valda kvíða því kvíði er ekki það sem þið eigið að vera að finna.

Finnið til náungakærleika og gleði, notið hæfileikana til að elska, þið hafið öll þann eiginleika og hæfileika til að elska óendanlega, skilyrðislaust og virkjið það. Byrjið á ykkur sjálfum, þeim sem standa ykkur næst og elskið svo aðra.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Þið verðið að hlusta.


Leyfið ljósinu að koma til ykkar og vera partur af ykkur alla daga. Leyfið kærleikanum að dafna og flæða í gegnum ykkur.8 Nóvember 2011(ósjálfráð skrift) Þið verðið að hlusta, þið verðið að hugsa og leyfa því sem er að koma til ykkar að setjast og melta það.

Þið eruð á svo miklum hraða ykkur er sýnt og þið farið áfram og fáið að vita ýmislegt sem ætti að geta gagnast ykkur en þið æðið áfram á svo miklum hraða að þið nýtið ekki það sem er að koma til ykkar á þann hátt sem ætlað er.

Tíminn er ekkert of mikill, þið verðið að taka ykkur saman og fara að standa saman.

Það er svo mikil sundrung og einstaklingshyggja sem ríkir að þið eruð komin út á ystu nöf vegna þess. Það þarf að stilla ykkur inn á að hjálpa hvort öðru og hjálpa ykkur sjálfum að læra að lifa í þeirri orku sem ykkur hefur verið ætlað að lifa í en við stöndum frammi fyrir því að þið blokkið á og lokið fyrir og takið ekki eftir lærdómnum, takið ekki eftir því sem við sýnum ykkur.

Við höldum þó áfram að reyna og það mun koma til ykkar á endanum en mætti gerast hraðar hjá ansi mörgum.

Mig langar að fræða ykkur um hvað er að gerast í ykkar plánetu, ég segi í henni því að orkan er ekki einungis á henni og í kringum hana heldur er hún í henni líka og fer djúpt og hefur áhrif á hana.

Spenna hefur magnast upp og þörf er á losun og hreinsun hjá henni að innan. Einnig þarf að hjálpa henni svo við að hreinsa að utan og verð ég að biðja ykkur um að einbeita ykkur að því að senda heilunarorku til móður jarðar, að biðja ykkur um að hafa hana í bænum ykkar og senda henni ljós.

Hreinsun mannsins er svo annar handleggur en ég fer ekki nánar út í það hér og nú því það gæti haft önnur áhrif á ykkur en ég myndi ætla mér að segja ykkur frá því núna.

Margir miðlar eru að vakna til lífsins ef svo má segja, þið finnið að orkan er sterkari og að það er opnað fyrir hjá þeim sem hafa upplifað sig sem lokaða með þeirri orku sem er í kringum ykkur nú.

Virkið þessar opnanir, takið á móti því sem kemur því það er til þess að hjálpa ykkur og hjálpa ykkur að skilja og læra betur og dýpra hvað er framundan og hvað þið eigið að gera og hvert hlutverk ykkar er.

Einnig er það til góðs fyrir hvern og einn og eflir ykkur persónulega og hjálpar ykkur að nálgast það markmið sem þið fæddust með hingað á jörðina og hjálpar ykkur með þroskann sem ykkur er ætlað að ná.

Gefið því gaum að líta til himins, lítið til himins þegar færi gefst og sjáið hversu himininn er óendanlega stór svo stór að honum eru engin takmörk sett.


Þannig er það einnig með ykkur sjálf, það eru ekki takmörk og þið eigið að geta farið hærra og dýpra en þið sjálf setið takmörkin á ykkur og leyfið ykkur ekki að fara á þá staði sem þið sannarlega getið og ættuð að gera.

Ég segi ykkur enn og aftur að óttast ekki um ímyndun og óímyndaða hluti því það er þráður sem sker á milli en þið lærið að vega það og meta með tímanum og ykkur getur virst sem þið ímyndið ykkur til að byrja með en skiljið svo þegar lengra er komið hvað greinir á milli.

Ekki loka á og hugsa með ykkur að þið séuð bara að ímynda ykkur hlutina, leyfið hugsunum og tilfinningum að flæða óhindrað og sleppið því að setja veggi utan um allt. Það þarf ekki allt að vera flokkað í kassa og box eins og þið virðist eiga til að vilja gera.

Stundum skortir ykkur orð yfir það sem þið vitið eða finnið og það er allt í lagi, leyfið því samt að vera með ykkur og leyfið sýnum og draumum að flæða án þess að þurfa að skilgreina þá til hins ýtrasta.

Þið skiljið betur eftir á hvers vegna það er.

Einu takmörkin sem eru ykkur sett hafið þið sett sjálf og nú er tíminn til að losa um þær hömlur sem eru að hafa áhrif. Þið þurfið á hvort öðru að halda og gerið ykkur sýnileg fyrir hvort öðru, standið saman og leyfið sundrung ekki að komast að ykkur.


Tengið ykkur við ljósið og finnið kærleiksorku fljóta í gegnum ykkur og frá ykkur til hvors annars. Það er markmiðið. Markmiðið er einfalt í eðli sínu og ykkar tilgangur er að hjálpa og byrjið þá á því að hjálpa hvort öðru og hjálpa þeim sem eru hjálpar þurfi, notið bænir og hugsanir til þess.

Hjálpið plánetunni sem leyfir ykkur að búa hér, hjálpið henni og með því hjálpið þið ykkur sjálfum á svo margan hátt. Einfaldið hlutina frekar en að flækja þá, reynið ekki að skilja allt sem gerist í kringum ykkur, verið bara til og munið að njóta nútíðarinnar.

Þór, þú ræður hvort þú setur þetta inn eða ekki.

Ég vildi bara segja þér frá því sem hann sýndi mér í leiðinni: Eftir að hann skrifar þetta sýnir hann mér. Hann sýnir mér kort af heiminum með fókus á lönd sem virðast vera annað hvort í norðaustrarlegri Afríku eða suðvestanverðri Evrópu.

Dökk rauður litur færist yfir löndin og svo hiti, nánast eins og eldur.

Ég kíkti á kort eftir á þar sem landafræðin er ekki upp á marga fiska og sá betur að svæðin sem hann sýnir mér með þessum eldrauða lit eru miðausturlönd, aðallega í kringum Íran, kannski eins og frá Egyptalandi og Tyrklandi og yfir til austurs yfir löndin sem ná þar í kring og þar á meðal Íran.

Því næst sýnir hann mér Ísland og suðurland Íslands glóir í sýninni, rautt eða appelsínugult. Einnig er regn yfir landinu sem og Norður-Evrópu sem sést varla í gegnum eða snjór, á erfitt með að greina hvað það er sem ég er að reyna að horfa í gegnum.

Öskuský, mengun eða eitthvað slíkt sem er grátt á lit yfir Bandaríkjunum.

Svo heldur hann áfram að skrifa: Þú ræður líka hvort þú setur þetta inn - er þetta ekki svar við spurningu sem þú spurðir hann að um daginn?

Merkin standa öll fyrir kærleika hver á sinn hátt. Þið eruð merkt til að við og aðrir sjáum. Hver merking stafar af vígslum sem þið hafið farið í gegnum sem allar tengjast í gegnum kærleiksverk og eru sum merkin til að auðvelda flæði í gegnum þau og einnig til að einfalda fyrir öðrum hvað þið hafið fram að færa.

Merkingar sálarinnar, merkin fylgja sálinni en ekki líkamanum og þó ykkur virðist þau vera líkamleg þá eru þau það ekki í raun. Merkin hafa einnig tengingar sem þið sjáið ekki endilega eða upplifið en sumir í okkar heimi geta séð og fundið.

Þessi svör eru rétt hjá hjálparhellunni þar sem ég vissi tilganginn sjálfur fyrir löngu en þetta styrkir hann í að hafa vilja til að ná í réttar upplýsingar þó svo að margir komi til að sækja þær enda vel grafnar.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Setti fram nokkrar vel valdar spurningar.

13 Nóvember 2011

Setti nokkrar vel valdar spurningar úr sýnum mínum og spám á þessu og sl. ári í von um skýrari svör og þetta kom til miðilsins skriflega.

Þið eruð vel staðsett hvað varðar skjálfta og aðrar náttúruhamfarir eins og þið kallið það. Ég er búin að segja ykkur að jörðin er í hreinsun, jörðin er að reyna að ná jafnvægi sínu og getur það ekki nema að hreinsa innan frá og laga það sem hefur farið á mis og leiðrétta orkuna í kringum sig og í sér sjálfri. Þetta gerir hún m.a með spennulosun og það kemur fram í eldgosum, jarðskjálftum til að mynda.

San Andreas misgengið er að gliðna í sundur. Það má búast við skjálftavirkni í kringum þá gliðnun en það færist í sitthvora áttina og það er að myndast smátt og smátt gjá þar sem verður löng.

Varðandi Bandaríkin að öðru leyti má búast við rigningum og kulda, miklum veðra sviptum þar sem skipast á kuldatímabil og rigningar á sumum svæðum. Næsta sumar má sjá mikinn hita á þeim svæðum sem hefur verið heitt fyrir en það verður enn heitara núna. Bandaríkjamenn eru ekki undir það búnir að fara inn í þetta kuldaskeið sem þeir eiga eftir, húsakostur þeirra og faratæki eru ekki undir það búin að taka á móti slíkum veðrum enda hefur veðurfar verið stöðugt en það er að breytast.

Í Indonesíu er mikil spennulosun.

Fjöllin liggja á belti þar sem losun er að verða, það eru fleiri slík belti ef svo má segja á fleiri stöðum í heiminum en þau munu ekki öll losa um spennu á sama tíma heldur gerist þetta í má skömmtum. Það verða öskugos, miklir strókar og líka hraungos þar sem hraunið á eftir að fara niður og ógna byggðum fólks. Þetta kemur þó ekki að sök, fólkið á þessum svæðum mun aðlagast og laga sig að þeim aðstæðum sem eldgosin skapa. Ég fæ ekki betur séð en að sex eldgos verði í mismunandi fjöllum á komandi tímum, einhver þeirra hafa þegar hafist. Og einhverjum þeirra lýkur áður en önnur fara af stað.

Sendið ljós á þessa staði og hugið að móður náttúru og því sem hún er að gera og hjálpið henni við þá vinnu.

Við stóra jarðskjálfta munu grjóthnullungar brotna og veltast niður fjallshlíðar. Í einu tilfelli verður það þannig að hluti af fjallinu brotnar af og lendir í sjó. Það mun þó ekki sem slíkt hafa þau áhrif sem þú hefur séð fyrir heldur er þetta allt partur af jarðskjálfta sem mun valda því að það brotnar en hann mun einnig koma hreyfingu á hafið og valda flóðbylgju. Hún mun koma á land með miklum krafti og skella á suðausturströnd Bandaríkjanna. Þetta gerist þó ekki strax.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Að miðla fróðleik

18.11.2011

Að miðla fróðleik er mikilvægt fyrir okkur sem erum í mínum heimi. Þið á jörðu skiljið ekki alltaf hvað þið eruð að gera eða hvað þið ættuð að vera að gera. Þið gleymið tilganginum ykkar og þó ykkur sé sagt og ykkur leiðbeint þá farið þið svo auðveldlega í sama farið aftur. Þið hafið hannað og búið ykkur til svo mikið af hlutum og efni til að halda huganum uppteknum að þið notið hugann ykkar ekki á þann hátt sem ykkur er og hefur alltaf verið ætlað. Þið lifið í tilbúningi og gerviheimi, þar sem þið látið mata ykkur af upplýsingum og myndum sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum, hvorki í ykkar eigin heimi né öðrum. Þið vaknið á morgnanna og eruð ekki tengd við ykkur sjálf allan daginn, alveg þangað til þið lognist út af á kvöldin án þess að hafa leitt hugann eitt einasta skipti að því hvers vegna þið eruð hér, hvers er ætlast til af ykkur og hvers þið væntið að fá út úr tímanum ykkar, hvers þið væntið að fá frá öðru samfylgdarfólki.

Þið talið um tilviljanir, finnst þær bráðskemmtilegar og brosið. Þið áttið ykkur ekki á að ekki eru alltaf um tilviljanir að ræða þegar það er verið að reyna að sýna ykkur, reyna að vekja ykkur til umhugsunar með því að hjálpa ykkur örlítið. Það eru engar tilviljanir.

Þið sem eruð lengra komin, þið sem hafið fundið ykkar tilgang eða svona hér um bil. Þið verðið að halda áfram og þið finnið það innra með ykkur. Þegar þetta vaknar hjá ykkur þá er það alltaf til staðar, lætur ykkur ekki vera innst inni því þið hafið þörfina á að læra meira, komast lengra, hjálpa meira. Það er hinn sanni tilgangur.

Þið eigið eftir að upplifa tíma sem þið getið ekki ímyndað ykkur. Þið þurfið að vera undirbúin. Þið undirbúið ykkur með því að opna, með því að biðja, með því að tengjast hvort öðru og með því að tengjast þeim í okkar heimi sem eru hér til að hjálpa ykkur. Notið það sem ykkur hefur verið gefið og látið ekkert stoppa ykkur. Egóin ykkar munu reyna, þið munuð efast, þið munuð upplifa eins og þið séuð á rangri braut, þið munuð óttast um álit annarra, þið munuð halda að þetta sé tilgangslaust. Þið munuð upplifa blendnar tilfinningar. En þið munuð líka upplifa gleði, kærleika, sannar tilfinningar, þið munuð upplifa þroska og þið munuð upplifa að verða ríkulega launað. Smátt og smátt og sífellt. Þið fáið umbun fyrir og hún felst í ykkur sjálfum og er tengd því sem þið gerið og starfi ykkar á andlegu sviði. Takið því fagnandi að fá að taka þátt, gleðjist yfir því að geta hjálpað öðrum og nýtið ykkur tækifærið til að vaxa og þroskast.

Eftirsjá mun ekki koma til ykkar, nema þið leyfið henni það frá neikvæðum tilfinningum ykkar sjálfra. Losið ykkur úr viðjum vanans og haldið áfram. Farið á ókunnar slóðir, þenjið ykkur, prófið að gera hluti sem þið hélduð að þið gætuð ekki. Fáið leiðbeiningu og notið þau tengsl sem þið hafið.

Fyrr en varir flæðir að. Jörðin mun skola sig, hreinsa sig. Hún mun hristast og sjálfa, hún mun klofna á stöðum sem hún er heil í dag, hún mun opnast og hún mun rísa. Gjósa og brotna, falla. Svo flæðir. Haldið ykkur í norðri. Ég gef ekki upp staðsetningar. Þið sem eigið að vera á réttum stöðum verðið á þeim. Þið hafið raðast ansi mörg saman á þetta land ykkar sem telst lítið á heimsmælikvarða. Krafturinn og orkan yfir landinu er gífurlegt, krafturinn og orkan í landinu sjálfu, jörðinni er ótrúlegur. Þið hafið tækifæri hér á að magna upp samband og tengingar, nýtið ykkur umhverfi ykkar og hjálpið hvort öðru, magnið upp orkuna með fjöldanum. Finnið hvort annað.

Það þarf að leiða hópinn, það þarf að stýra honum inn á rétta braut og þið þurfið að finna og sameinast um hverjum þið treystið til þess. Það er betra að þið ákveðið það sjálf heldur en að við bendum á einhvern þar sem manneskjur hafa alltaf átt erfitt með að treysta og þá sér í lagi þeim sem líta út fyrir að hafa völd sem þeir hafa skipað sér sjálfir, þó svo að það yrði ekki raunin. Við vitum að þið vandið valið.

Nýtið það að geta beðið í fjöldanum, nýtið að geta hugleitt í fjöldanum. Tengið ykkur saman, þið þurfið ekki að vera stödd á sama stað en gæti hjálpað ykkur að hafa samskipti áður. Tengið ykkur og biðjið. Biðjið fyrir þeim sem þurfa hjálp, biðjið fyrir ykkur sjálfum og hvort öðru og biðjið fyrir Móður Jörð, hjálpið henni að ganga í gegnum þær breytingar sem hún mun ganga í gegnum og þið hafið ákveðið að hjálpa henni, það mun einnig hjálpa fólkinu.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.